Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 ✝ Kristín HuldaÞórarinsdóttir fæddist 20. maí 1940 og var Arn- firðingur í allar áttir. Hún lést 23. september 2016. Foreldrar henn- ar voru Ingveldur Einarsdóttir, f. 1904, d. 1985, sem lengi var vinnu- kona á Tjaldanesi og á Hrafnseyri, og Þórarinn Guðmundsson, f. 1870, d. 1948, bóndi á Horni í Mosdal og Ósi í Auðkúluhreppi og á Hrafns- eyri. Hálfbræður hennar móður- megin voru Sigurður Einar Magnússon, f. 1933, d. 2008, vélsmiður á Patreksfirði, í Hveragerði og víðar, og Hreið- ar Arnar Jónsson, f. 4. apríl 1935, verkamaður í Reykjavík. Föðurmegin átti Hulda fjöl- mörg hálfsystkini: Guðný, f. Reykjavík en hafa lengstum bú- ið í Hafnarfirði og ólu þar upp dóttur sína Agnesi Brögu, f. 11. maí 1971, kennara og námsráð- gjafa. Hún er gift Vilhjálmi Þór Sigurjónssyni, f. 1974, mennta- skólakennara og eiga þau börn- in Berg Þorgils, f. 25. apríl 2007, og Huldu Valgerði, f. 3. maí 2008. Agnes er dóttir Sjafnar Steingrímsdóttur, f. 1944, og Óskars Guðmunds- sonar, f. 1950, en Bergur og Hulda gengu henni í foreldra- stað við fæðingu. Hulda var í Húsmæðraskóla Reykjavíkur veturinn 1958-1959. Hún nam á unga aldri ljósmóðurfræði og fékk starfsleyfi sem ljósmóðir vorið 1962. Þeim starfa gegndi hún í nær hálfa öld og vann við göngudeild kvenna og fæðing- ardeild Landspítalans þar til hún hætti störfum um 2008. Þau Bergur og Hulda bjuggu lengi við Breiðvang 57 en er aldur færðist yfir fluttu þau að Hringbraut 2b í Hafnarfirði. Hulda veiktist af krabbameini snemma í sumar og barðist hetjulega uns yfir lauk. Útför Huldu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 4. október 2016, klukkan 15. 1896, d. 1972, Ólöf Daðína, f. 1898, d. 1921, Bernharðína, f. 1899, d. 1925, Guðbjörg, f. 1901, Guðmundur Al- bert, f. 1903, d. 1985, Snorri, f. 1904, d. 1963, og Guðrún Aðalheið- ur, f. 1906, d. 2001. Hulda ólst upp á Tjaldanesi og á Hrafnseyri við Arnarfjörð hjá fósturforeldrum sínum sem voru þau Guðný ljósmóðir, elsta systir hennar og bóndi hennar Jón Kristinn Magnússon Waage, f. 1896, d. 1981. Hulda giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi Bergi Ásgrímssyni, f. 1934, sem lengi var verkstjóri í Kassa- gerð Reykjavíkur, ættaður frá Suðureyri við Súgandafjörð. Þau Bergur og Hulda hófu bú- skap sinn að Hvassaleiti 18 í Hér kveð ég merkilega konu, Kristínu Huldu Þórarinsdóttur, tengdamóður mína. Ég kom inn í fjölskylduna fyr- ir 10 árum, þegar við Agnes ákváðum að rugla saman reyt- um. Fljótlega varð Agnes ólétt, öllum til mikillar gleði og þá sér- staklega Huldu tengdamóður minni. Því hún var ljósmóðir í fyllsta skilningi þess orðs. Hún var móðir ljóssins, bar það áfram til síns fólks. Hún fylgdist vel með með- göngum dótturinnar og tók sjálf á móti barnabörnunum, Bergi Þorgils og Huldu Valgerði. Barnabörnin voru uppspretta endalausrar gleði tengdamóður minnar. Minnstu smáatriði urðu að skemmtisögum þegar hún var leyst af eftir að hafa setið yfir börnum dagpart eða kvöldstund. Hún talaði ekki mikið um eig- in barnæsku, en ljóst er að hún þætti ekki til fyrirmyndar í dag. Henni var því mikið í mun að barnabörnin hennar fengju sem best atlæti og sameinuðumst við um það. Í stóru sem smáu tók hún þátt í lífi fjölskyldunnar á Hraunbrún og létti undir á alla kanta. Ég fékk að vera uppá- haldstengdasonurinn og hún var uppáhaldstengdamóðir mín. Við vorum hennar fólk og því var það mikið áfall þegar hún greindist með krabbamein í byrjun júlí. Enn meira högg er að hún skuli einungis hafa lifað tæpa þrjá mánuði eftir grein- ingu. Ég minnist fallegrar, góðrar konu sem sá hið góða í fólki og mundi eftir þeim sem fáir mundu eftir. Ég minnist konu sem heim- urinn tók hörðum tökum en svaraði með mýkt og blíðu. Ég minnist uppáhaldstengda- móður minnar með hlýju í hjarta og þakka þá gæfu að hafa þó fengið tíu góð ár með henni. Vilhjálmur Þór Sigurjónsson. Stráin í hlaðvarpanum sveifl- uðust í vindinum og hljómkviða ómaði fyrir eyrum. Hulda ljós- móðir óx úr grasi á sögufrægum stað – Hrafnseyri við Arnar- fjörð. Þar var vettvangur mikils drama fyrr á öldum og þar höfðu einhverjir mestu ljúflingar Ís- landssögunnar troðið stíga; Hrafn Sveinbjarnarson og Jón Sigurðsson. Annar þeirra hafði hjúkrað fólki og læknað en hinn einbeitti sér að félagslegum meinum þjóðarinnar og veitti henni for- ystu til sjálfsbjargar og sjálfs- þurfta. Það var ekki mulið undir Huldu Þórarinsdóttur á æskuár- um. Hún var að sumu leyti ein á báti á bernskudögum sínum og þurfti að berjast til sjálfsbjarg- ar. Og þá kann meðvitundin um sögufrægð staðarins, ævintýri forsetans Jóns og þó umfram allt læknisins Hrafns að hafa veitt henni innblástur. Hún helgaði líf sitt frá unglingsárum hjúkrun og nýju lífi – og bar með sæmd hið fagra starfsheiti ljósmóðir. Fjölskyldubakgrunnur Huldu var flókinn og margræður. Á ungum aldri mætti hún stundum harðneskju sem hefði getað spillt fyrir í uppvexti. En Hulda Þórarinsdóttir lét ekki mótlæti buga sig, hún þroskaðist við hverja áraun, og í stað hörku mætti hún mannlífinu af hjarta- gæsku og mildi. Hulda giftist ung öðrum Vest- firðingi, Bergi Ásgrímssyni, og alla ævi ræktu þau fagurt sam- band sem auðgað var með dótt- urinni Agnesi Brögu vorið 1971. Þau ólu hana upp af alúð og elsku sem þau áttu svo ómælt af – og þegar Agnes eignaðist börn fengu þau einnig að njóta umönnunar og ástúðar afa og ömmu, Bergs og Huldu. Lífið er ævintýri – og í einu tilbrigðinu þáttuðust saman ör- lög okkar. Þegar Agnes komst til manns tók hún til að leita líf- fræðilegs uppruna síns. Og þá kom fram eins og í vísunni forð- um að faðirinn, það var ég. Og þá byrjaði nýtt ferli aðlögunar og fjölskyldutengsla sem í sjálfu sér var ósköp íslenskt, og hefði getað valdið félagslegum kulda og fælni. En í þessu tilviki var ljósmóðirin söm við sig, hún tók mér og minni fjölskyldu, Krist- ínu, konu minni, og Melkorku, hálfsystur Agnesar, sem viðbót við sína fjölskyldu, fagnaði okk- ur og gladdi á hverri fjölskyldu- stund. Við urðum sjálfsagður hluti af hennar félagsmengi – fjölskyldu Bergs og Huldu. Í því flókna tilfinningafélagi sem við áttum saman bar aldrei skugga á, hún var alltaf ljósmóð- irin ljúfa sem tók stöðu með birt- unni, börnunum, ljósinu. Eftir þessa reynslu hljómar ein kviða í huga okkar og hjarta: Takk, elsku Hulda, takk. Óskar Guðmundsson í Véum. Kæra vinkona. Örfáar línur að leiðarlokum. Hugurinn reikar til baka til haustsins 1961 er við hittumst fyrst við anddyri fæðingardeild- ar Landspítalans, báðar að hefja þar nám. Við deildum saman herbergi og urðum vinkonur að eilífu upp frá því þar sem tryggð og kær- leikur ríkti okkar í milli. Þó svo að samvera okkar væri ekki samfelld var vinátta okkar það upp frá því. Þú tókst veikindum þínum með æðruleysi. Þetta er „verk- efni“, sagðir þú, sem mér er ætl- að. En elsku Hulda mín, ég kveð þig með þessum fallegu ljóðlín- um sem eiga svo vel við þig, og berðu kveðju til allra í sumar- landinu: Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Með þökk fyrir allt. Kærleiks- kveðja. Þín vinkona, Jónína Ingólfsdóttir. Hulda Þórarinsdóttir ✝ Aðalgeir Guð-mundsson fæddist að Saur- brúargerði í Grýtu- bakkahreppi 9. nóvember 1925. Hann lést á Dval- arheimilinu Hlíð 23. september 2016. Foreldrar hans voru Rannveig Jónsdóttir, f. 23. júlí 1885, d. 24. maí 1979, og Guðmundur Krist- jánsson, f 21. mars 1877, d. 12. janúar 1959. Systkini Aðalgeirs eru Bryndís, f. 18. nóvember argerði til fermingaraldurs, þá flutti fjölskyldan til Akureyrar þar sem hann bjó til æviloka. Að- algeir stundaði sjómennsku frá unga aldri til 1960, síðari ár á togurum ÚA. Þá stofnaði hann, ásamt Jóhanni bróður sínum, Sandblástur og málmhúðun sf. og starfaði þar í um 20 ár, en lauk starfsævinni sem nætur- vörður í Slippnum. Aðalgeir og Sigrún bjuggu á æskuheimili Sigrúnar, Sand- gerði, sl. 35 ár, þar sem smá- bátahöfnin var í sjónmáli og eyddi Aðalgeir fjölmörgum stundum þar, enda hafði hann alla tíð brennandi áhuga á sjó- mennsku og öllu sem tengdist henni og átti trillur fram á síð- ustu ár. Útför Aðalgeirs fer fram frá Glerárkirkju í dag, 4. október 2016, klukkan 13.30. 1910, d. 23. maí 1968, Tryggvi, f. 19. mars 1913, d. 23. desember 1990, Þórarinn, f. 8. apríl 1915, d. 13. septem- ber 1955, Jóhann, f. 13. maí 1917, d. 14. mars 1993, og Kristján, f. 20. mars 1931, d. 11. október 1992. Aðalgeir kvænt- ist Sigrúnu Arnþórsdóttur 1980, Sigrún fæddist 16. janúar 1927, þau áttu engin börn. Aðalgeir ólst upp að Saurbrú- Elsku Alli frændi, afabróðir minn, er farinn, síðastur af sínum systkinum, hann er búinn að horfa á eftir og kveðja margt af fólkinu sínu á langri ævi, og hafði oft orð á því við kveðjuathafnir við mig. Alli átti engin börn sjálfur, en hann var ákaflega barngóður mað- ur, ég minnist þess að hafa komið til hans og langömmu, Rannveigar á Ránargötuna, frá því að ég var mjög ung, svo ung að ég náði ekki upp í lokuna á hurðinni, og þurfti að berja fast svo Svava eða Tryggvi á neðri hæðinni heyrðu í mér til að hleypa mér inn, þá hljóp ég eins og fætur toguðu upp stig- ann, mátti ekkert vera að því að tala við þau. Amma var fyrstu árin sem ég man eftir á róli, en sat oft á rúmstokknum í litla herberginu á móti eldhúsinu. Það var í sérstöku uppáhaldi að fá bakkana hennar ömmu í eldhúsinu lánaða og draga upp myndirnar á þeim í gegnum smjörpappír, ég sat oft við eldhús- borðið og teiknaði þegar Alli kom heim úr vinnu og sagði: „Ertu þarna elskan mín?“ Síðar, þegar ég var orðin eldri og flutt upp á brekku, þá var farið í hjólatúra með nesti og oftar en ekki fórum við Kræklingahlíðina og upp í sumarbústaðinn til Alla, hann var oft þar þegar við komum, þá stóð Ladan hans niðri við hlið, og tók hann glaður á móti mér og Gunnu Óttars, æskuvinkonu minni. Við höfum ekki verið gaml- ar þegar við fengum að gista þar, fyrst með honum og svo fengum við lyklana, það var þvílík upp- hefð, að fá að gista þarna einar. Ég man enn eftir því þegar við lágum uppi í kojunni í káetunni, sem hann smíðaði inni í bústaðnum og pískruðum. Hann var svo nat- inn við allt sem hann gerði, og bú- staðurinn bar þess vitni hve mikið dálæti hann hafði á sjónum og sjó- mannslífinu. Okkur fannst þetta rosalega stór og flottur bústaður, í dag brosi ég þegar ég sé hvað hann er í raun lítill. Alli sagði aldrei nei við mig, ég er ekki viss um að ég myndi leyfa 12 ára börnum að vera einum í bústað í dag, en það sem ég á góðar minningar af frænda mín- um og gamla gula bústaðnum í hlíðinni, jarðarberjunum sem uxu villt, læknum sem var ískaldur og „pollinum“ sem Alli bjó til og leiddi vatn í, þar var hægt að busla á heit- um dögum, í minningunni var alltaf sól í gilinu. Svo liðu árin, ég flutti í burtu en eftir að ég kom aftur heim fyrir 11 árum hittumst við oftar og síðustu ár áttum við margar stundir saman sem ég er þakklát fyrir í dag, það verður skrýtið á Þorláksmessu að koma ekki oftar við í Sandgerði og fá hangikjötsflís að smakka. Sig- rún mín, innilegar samúðarkveðjur til þín, elsku vina. Magga, Her- mann og fjölskylda, samúðarkveðj- ur til ykkar allra, þið eruð einstök og gott að kynnast ykkur. Þér, Alli minn, þakka ég góðvild og elsku í minn garð og fjölskyldu minnar, ég heyri röddina þína segja „þú heitir svo fallegu nafni“ þegar ég skrifa þessi orð og hugsa til þín, hvíl í friði, elsku vinur. Rannveig. Aðalgeir Guðmundsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegi sonur okkur, faðir, bróðir, mágur og unnusti, ODDUR HARALDSSON, jöklafari, Litla Kambi, sem lést af slysförum 18. september, verður jarðsunginn 6. október klukkan 14 frá Ólafsvíkurkirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en bent er á reikning fyrir Hellnakirkju 190-05-064048 kt: 600169-7349, . Sigurlaug Konráðsdóttir, Haraldur Yngvasson, Aþena Ösp Oddsdóttir, Baldur Bent Oddsson, Víðir Haraldsson, Kolbrún Þ. Ólafsdóttir, Kolfinna S. Haraldsdóttir, Vignir Hauksson, Konráð Haraldsson, Eydís S. Haraldsdóttir, Þórkatla Kristín Valþórsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS HARALDSDÓTTIR, Gaukshólum 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Hilmar B. Gunnarsson, Ann Mary Jörgensen, Kristján Á. Gunnarsson, Jóna Björg Pálsdóttir, Haraldur Gunnarsson, Katrín Steingrímsdóttir, Gunnar G. Gunnarsson, Jóna K. Rögnvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur og bróðir, HAFSTEINN KRISTINSSON, Bakkagerði 2, Stöðvarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans, Hringbraut, 29. september. Útför fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju 15. október klukkan 14. . Kristófer Hafsteinsson, Sigrún Ísey Jörgensdóttir, Jóhannes Hafsteinsson, Líf Sigurðardóttir, Inga Björnsdóttir og systkini hins látna. Maðurinn minn, sonur, bróðir og mágur, TEITUR ÁRNASON, varð bráðkvaddur í London 2. október 2016. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Carolina Thorbert, Hildur Kristjánsdóttir, Kári Ibsen Árnason, Sigurrós Jóns Bragadóttir, Flóki Árnason, Jenný Guðmundsdóttir. Ástkær móðir mín og dóttir okkar, RAGNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR flugstjóri, Lækjasmára 6, Kópavogi, varð bráðkvödd á heimili sínu 24. september. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. október klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á reikning til stuðnings syni hennar, reikningsnúmer 526-14-403532, kt. 141113-2750. . Alexander Berg Ragnheiðarson, Sigríður Valdimarsdóttir, Guðjón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.