Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
Björn Pálmar
Sveinsson rafiðn-
fræðingur lést eftir
krappa glímu við sláttumanninn á
Landspítalanum þann 22. sept-
ember.
Það var fyrir u.þ.b. 40 árum er
við Bjössi kynntumst en Hulda
eiginkona hans er yngsta systir
Svölu minnar. Þær systur voru á
þeim tíma að stíga sín fyrstu
skref í sambúðarmálum. Ég hafði
nú aðeins þekkt til Bjössa, við
vorum jafnaldrar og hann var af
Seltjarnarnesinu og ég í Vestur-
bænum. Við áttum strax vel sam-
an þótt ólíkir værum. Bjössi var
að læra rafvirkjun og hófu þau
Hulda sambúð og giftu sig, eign-
uðust tvo drengi, þá Þórð Örn og
Björn Inga.
Unga fólkið taldi sig lífsreynt
og fullorðið þótt rétt um tvítugt
væri. Að rafvirkjanáminu loknu
þá heldur Bjössi áfram námi í fag-
inu og fer í tækniskólann þaðan
sem hann útskrifast sem iðnraf-
fræðingur. Hann hefur störf hjá
Esso sem þá var stórfyrirtæki. Á
þeim tíma var Esso að fara í
gegnum miklar rekstrar- og
tæknibreytingar og verið var að
breyta bensínstöðvunum í meiri
elektróník þar sem dælunum var
rafstýrt og í raun allt að færast í
þá átt. Bjössi var einn aðaltækni-
maðurinn við að nútíma- og raf-
væða bensínstöðvarnar. Það er
nefnilega meira mál en margir
átta sig á að tengja saman raf-
magn og gasolíu. Rafmagn
ferðast og neistar og bensínið eld-
fimt. Allt þarf að vera rétt. Hæfi-
leiki Bjössa í rafmagnsfræðunum
var vel nýttur og í raun lagði hann
upp og tækniteiknaði rafmagn í
öllum bensínstöðvum Esso á þeim
tíma. Bjössi var í raun rafmagns-
nörd í jákvæðri merkingu þess
orðs og bjó yfir mikilli þekkingu á
þeim fræðum. Eftir mörg ár hjá
Esso söðlar Björn um og fer að
vinna hjá Eflu verkfræðistofu við
að teikna og reikna út flókna raf-
magnsþörf í mannvirkjagerð á
flestum sviðum um land allt. Raf-
magn er orðið svo ríkur þáttur í
nútímatilveru að það er ekki tekið
eftir því, allt er sjálfsagt. Á bakvið
liggur mikil tæknivinna og sér-
fræði.
Bjössi var hæglátur maður í
daglegu fasi. Hann var ekkert að
bera visku sína á borð né að
Björn Pálmar
Sveinsson
✝ Björn PálmarSveinsson
fæddist 8. desem-
ber 1951. Hann lést
22. september
2016.
Útför Björns fór
fram 3. október
2016.
skreyta sig með
kunnáttunni, en er
hann í umræðunni
sagði sitt álit á
tækninni, þá var
honum ekki mót-
mælt. Það sem hann
sagði þar var rétt.
Bjössi og Hulda
undu sér vel í ættar-
tengslum hennar í
Suðursveit þangað
sem þau fóru oft og
reglulega og dvöldust í Gamla
Garði í Borgarhöfn hjá Ragnari
bónda, móðurbróður Huldu, það-
an sem móðurætt Huldu er. Þar
leið Bjössa vel og var hann dálítið
í sínu rétta umhverfi, í fegurð og
rólegheitum sveitarinnar. Á tíma-
bili fannst okkur öðrum í fjöl-
skyldunni alveg undarlegt hversu
oft og mikla áherslu hann lagði á
að fara í Suðursveit. Það kemur í
ljós seinna að hann hafði fundið
gamla Massey-Fergusoninn og
ákveðið að gera hann upp. Að
gera upp gamlan traktor er mikið
grúsk. Þar var hann í sínu ele-
menti. Eitt sinn er öll stórfjöl-
skyldan var samankomin í Gamla
Garði á góðviðrisdegi úti við í
nostalgíu þá er Bjössi týndur og
byrjar fólk að spyrja hvar hann
sé.
Allt í einu opnast hlöðudyrnar,
mikið traktorsbank heyrist og út
kemur Bjössi á uppgerðum flott-
um traktornum með strákslegt
glott á andlitinu og þeysir fram
hjá öllum á glæsilegri ferð. Þetta
var ógleymanleg og myndræn
sjón.
Við þökkum Bjössa samfylgd-
ina og hugur okkar og ástúð er
hjá Huldu, Dodda, Birni Inga,
þeirra mökum og börnum á þess-
ari stundu og samkenndin rík.
Farvel Bjössi.
Sigurður Lárus Hall,
Svala Ólafsdóttir,
Krista Sigríður Hall,
Ólafur Árni Hall.
Bjössi hennar Huldu er fallinn
frá eftir stutt en erfið veikindi.
Hann var á besta aldri og fráfallið
því sárt.
Ég hef þekkt Bjössa nær alla
ævi því hann er búinn að vera
maður Huldu móðursystur minn-
ar frá því að ég var barn. Bjössi,
sem var rólyndur og ekki maður
margra orða, varð þannig sem
ungur maður hluti af náinni stór-
fjölskyldu sem eyðir saman jól-
um, áramótum og stórhátíðum og
finnst best að vera sem flest sem
oftast.
Eflaust hefur Bjössa stundum
þótt nóg um matarstússið sem
fylgdi en alltaf mætti hann, klyfj-
aður mat og góðum veigum, og
gott spjall um daginn og veginn
var aldrei langt undan enda var
hann greindur og vel að sér. Á
tæpum fjórum árum hafa synir
Huldu og Bjössa, Doddi og Björn
Ingi og þeirra frábæru konur,
Helga og Dóra eignast þrjár
dásamlegar litlar stúlkur. Bjössi
var algjör súper-afi. Hann ljóm-
aði í kringum fallegu afastelpurn-
ar sínar og þau Hulda nutu afa-
og ömmuhlutverksins til hins ýtr-
asta. Ekkert var of gott fyrir litlu
augasteinana þeirra.
Bjössi var afar hjálpsamur og
þannig varð að við eyddum hluta
úr sumrinu 2004 saman. Ég var í
fæðingarorlofi og fannst tilvalið
að teikna fyrirhugaðar breyting-
ar á gamla húsinu okkar í tölvu en
nokkuð vantaði upp á kunnátt-
una. Bjössi var mikill tölvuteikn-
ari og bauðst til að kenna mér. Ég
vissi að hann hafði ekki ótak-
markaðan tíma en ekki lét hann
mig finna það. Hann var tilbúinn
að sitja við kvöld og helgar, þol-
inmóður og vandvirkur. Bjössi
hefði aldrei fúskað við neitt. Upp
á sitt besta var Bjössi í Gamla
Garði í Suðursveit hjá Ragnari
ömmubróður mínum. Þangað
fóru þau Hulda eins oft og þau
gátu og eru orðin eins og ein af
heimamönnum í Borgarhöfn. Fá-
einum árum áður en amma lést
fjölmenntum við í sveitina henn-
ar. Þá sást vel að sveitin hennar
ömmu var líka sveitin þeirra
Huldu og Bjössa. Ekki síður
Bjössa, sem hefur árum saman
hjálpað Ragnari frænda með ým-
is verk og meðal annars gert upp
forláta traktor sem hafði aðdrátt-
arafl fyrir krakkana. Við eigum
margar góðar minningar úr þeirri
góðu ferð sem Hulda átti frum-
kvæði að.
Síðasta minning okkar um
Bjössa er ljúf, glaður, nýkominn
úr fríi á Krít með Huldu sinni
mætti hann í grillboðið hjá pabba
og mömmu um verslunarmanna-
helgina síðustu. Sumarkvöldið
var fallegt og því lengi setið yfir
góðum mat og spjalli og ekki var
hægt að sjá að hann kviði yfir-
vofandi aðgerð þótt eflaust hafi
hann gert það. Þessa minningu
geymum við í hjartanu.
Við kvöddum hann á spítalan-
um en þar var mjög af honum
dregið. Hulda, synir og tengda-
dætur hafa staðið fallega og þétt
saman á erfiðum tímum og um-
vafið þannig hvert annað og
Bjössa sinn ást og hlýju. Þannig
fjölskyldu átti Bjössi og þannig
fjölskylda verða þau áfram.
Skarðið er stórt og hans verður
sárt saknað. Elsku Hulda mín,
Doddi, og Helga, Björn Ingi og
Dóra og litlu dætur.
Ykkar missir er mikil. Það er
sárt að hugsa til alls sem afastelp-
urnar og þið hafið nú misst. Við
munum öll sakna Bjössa og eins
og ég hvíslaði í eyrað hans undir
lokin, takk fyrir allt elsku Bjössi,
við pössum fólkið þitt.
Ólöf, Ásgeir og börn.
Í dag er til moldar borinn
vinnufélagi okkar og vinur Björn
Pálmar Sveinsson. Þungur harm-
ur er kveðinn að samstarfsmönn-
um hans hjá Verkfræðistofunni
EFLU hf.
Björn Pálmar kom til starfa
hjá EFLU árið 2007 en áður hafði
hann starfað um langt skeið hjá
Olíudreifingu. Strax kom í ljós
hversu mikill öðlingur hér var á
ferð og féll hann þegar vel inn í
samheldinn hóp vinnufélaga.
Björn var ekki maður margra
orða eins og við vitum öll sem
þekktum hann. Bjössi lét verkin
tala. Hann lét ekkert frá sér
nema það væri úthugsað og í full-
komnu lagi. Gott var að leita til
hans og tók hann öllum vel, ekki
síst unga fólkinu sem þurfti á leið-
sögn að halda við sín fyrstu skref
hjá EFLU. Við vinnufélagarnir
leituðum mikið til hans við lausn
flóknari verkefna enda var hann
mikill reynslubolti. Bjössi sinnti
stórum hópi viðskiptavina og var
alls staðar vel liðinn. Honum var
einkar lagið að vinna með öðrum
enda einstaklega lipur í mannleg-
um samskiptum.
Bjössi kom alsæll úr sumarfrí-
inu í byrjun ágúst, vel hvíldur og
útitekinn, hann hafði greinilega
notið sumarsins. Hann var sáttur
að vera kominn aftur í vinnuna
enda naut hann sín þar vel og það
átti vel við hann að takast á við
krefjandi verkefni.
Það skyggði þó á að hann hafði
fengið boð um að koma í „rann-
sókn“ eins og hann orðaði það,
sem krafðist innlagnar á Land-
spítalann. Reiknað var með að
hann yrði frá vinnu í um það bil 10
daga, sem gæti þó dregist eitt-
hvað ef allt færi á versta veg.
Hann ætlaði að vera í sambandi
og leyfa okkur að fylgjast með
hvernig gengi.
En Bjössi átti því miður ekki
afturkvæmt úr þessari rannsókn.
Fljótlega kom í ljós að ástandið
var alvarlegt og að aðgerðin hefði
ekki gengið sem skyldi. Við
vinnufélagarnir fengum að fylgj-
ast með gangi mála næstu vikur
en Hulda og synirnir héldu okkur
upplýstum. Fréttin af andláti
Bjössa var okkur öllum mjög
þungbær.
Við erum þakklát fyrir að hafa
kynnst og starfað með þessum
heiðursmanni og hans er sárt
saknað. Við minnumst margra
góðra stunda sem við áttum sam-
an. Hann leyfði okkur að fylgjast
með einu af sínum áhugamálum,
sem var upptekt á gömlum trak-
torum. Því áhugamáli sinnti hann
í Suðursveitinni, en ferðirnar
þangað voru honum mjög hug-
leiknar. Nokkrir innandyra hjá
EFLU deildu sama áhugamáli og
nutu þeir reynslu hans og greið-
vikni.
Missir Huldu og fjölskyldu er
mikill. Við samstarfsmenn Björns
Pálmars hjá EFLU sendum þeim
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Davíð Eysteinn Sölvason.
Gunnlaugur
Árnason var fæddur
1923 og ólst upp í
foreldrahúsum á
Gnýstöðum á Vatnsnesi í Vestur-
Húnavatnssýslu. Hann kynntist
strax þeim tvískipta búskap sem
þá tíðkaðist víða með ströndinni,
þegar búið var bæði til lands og
sjávar. Hann tók snemma þátt í
þeim störfum sem vinna þurfti,
sláturfjárrekstrum á haustin,
öðru fjárragi, skepnuhirðingu sem
og sjósókn úr heimalendingu, allt
eftir árstíðum. Hann fór síðan
ungur að heiman til sjós, meðal
Gunnlaugur Árnason
✝ GunnlaugurÁrnason fædd-
ist 11. mars árið
1923. Hann lést 14.
september 2016.
Úför Gunnlaugs
fór fram 3. október
2016.
annars frá Norðfirði
þar sem frændi
hans, Jakob á
Strönd, gerði út.
Hann varð fljótt vel
að manni og gjald-
gengur til hvers sem
var, gætinn og
ódeigur. Sjó-
mennska varð síðan
lífsstarf hans og
mörg síðustu sjó-
mannsárin var hann
á strandferðaskipum Ríkisskipa.
Ekki fer hjá því að þeir sem
stunda sjómennsku áratugum
saman komist jafnvel í hann
krappan í glímunni við Ægi, en
þegar Gunnlaugur, þá kominn yfir
áttrætt, var spurður um þess hátt-
ar á sólfögrum degi hér syðra, þá
vildi hann lítið um það tala og
nefndi að sér þætti einna eftir-
minnilegast frá sjómannsferlinum
þegar hann hefði verið á síldarbát
á árunum um eða eftir seinna stríð
og sótt hefði verið norður fyrir
Grímsey um hásumar í góðri tíð.
Þá hefði sólin ekki gengið undir,
skin hennar gyllt spegilsléttan
hafflötinn og fuglinn þagnað um
stund um lágnættið.
Gunnlaugur var lengi búsettur
á Skagaströnd, þar sem kynni tók-
ust með honum og Helgu Bernd-
sen og settu þau saman heimili,
fyrst þar nyrðra en fluttu til
Reykjavíkur á áttunda áratugn-
um.
Í samfélaginu eru góðir ná-
grannar gulls ígildi. Gunnlaugur
og Helga fluttu hér í húsið á Háa-
leitisbrautinni fyrir talsvert á
fjórða áratug síðan og bjuggu hér
allt þar til Gunnlaugur veiktist og
Helga býr hér enn. Gunnlaugur
var góður nágranni, vildi hvers
manns vanda leysa, börnum var
hann notalegur og þau fundu að
honum var óhætt að treysta.
Það er komið haust, laufblöðin
falla af trjánum og fjúka til með
haustvindunum, dreifa sér um
tún, stéttir og bílaplön. Til
skamms tíma var Gunnlaugur að
eltast við blöðin, safna þeim sam-
an með laufhrífu og kústi og troða
ofan í svarta poka. Þetta endurtók
hann nánast á hverjum degi þar til
síðasta laufblaðið var fallið. Hann
var einstaklega natinn við að
halda lóðinni hreinni, sópaði stétt-
ir og bílaplön reglulega, fór vel í
allar kverkar, allt skyldi vera skín-
andi hreint. Hann útbjó sér sér-
stakt áhald sem hann notaði til að
krafsa upp grasið og arfann sem
tróð sér upp á milli gangstétta-
hellnanna. Hann var alltaf að þar
til að hann þurfti frá að hverfa
vegna veikinda. Já, nú er komið
haust og laufblöðin leika lausum
hala um tún og stéttir, enginn
Gunnlaugur til staðar.
Hans er sárt saknað. Við vott-
um Helgu Berndsen, Guðrúnu og
Ívari og börnum þeirra, Einari
Þór og Helgu Sigríði, okkar
dýpstu samúð.
F.h. núverandi og fyrrverandi
íbúa að Háaleitisbraut 17,
Hermann Tönsberg og
Sigurður Kristjánsson.
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðar-lausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
TEK NIÐUR TRAMPÓLÍN Tek að
mér að taka niður trampólín gegn
mjög vægu gjaldi. Áratuga reynsla.
Maður tryggir sig ekki eftir á :)
Sími: 824-4302
Kv Atli
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn
og tek að mér ýmis
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Til leigu
Til leigu nýlegt 285 - 1.000 fm
atvinnuhúsnæði í Reykjavík
285 fm bil með allt að 9 m lofthæð,
stórar innkeyrsludyr, góð malbikuð
lóð, og greið aðkoma.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir í s. 661 7000
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð