Morgunblaðið - 04.10.2016, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
Breski hljóm-
sveitarstjórinn
Neville Marriner
er látinn, 92 ára
að aldri. Frá
þessu greinir
BBC. Marriner
nam við Kon-
unglega háskól-
ann í Bretlandi
og við Tónlist-
arháskólann í París áður en hann
hóf að leika með Sinfóníuhljóm-
sveitinni í London. Hann stofnaði
kammerhljómsveitina Academy of
St Martin in the Fields sem lék sína
fyrstu tónleika 1959. Sveitin vakti
heimsathygli og sinnti hljóðrit-
unum af krafti.
Marriner látinn
Neville Marriner
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur,veitti indversk-
kanadísku kvikmyndagerðarkon-
unni Deepu Mehta heiðursverðlaun
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík (RIFF) við hátíðlega at-
höfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
„Heiðursverðlaunin eru veitt þeim
sem hafa skarað fram úr í kvik-
myndagerð,“ segir Hrönn Marinós-
dóttir, stjórnandi RIFF, en verð-
launin voru nú veitt í 10. sinn. „Eitt
af meginmarkmiðum hátíðarinnar er
að varpa ljósi á nýja og framsækna
kvikmyndalist, en við viljum einnig
gera eldri verkum og höfundum
þeirra skil. Það er mikilvægt að
þekkja hina umfangsmiklu og fjöl-
breyttu sögu kvikmyndalistarinnar
líka.“
Þrjár kvikmyndir Deepu Mehta,
Góðu strákarnir, Miðnæturbörnin
og Birtingarmynd ofbeldis, eru
sýndar á hátíðinni. Sú síðastnefnda
var Evrópufrumsýnd á RIFF sl.
sunnudag, en hún var heims-
frumsýnd fyrir aðeins þremur vikum
á kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Í ár hlýtur kvikmyndaleikstjórinn
Darren Aronofsky einnig heiðurs-
verðlaun RIFF og verða þau veitt á
Bessastöðum á morgun af Guðna
Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.
Hátíðin stendur til 9. október og er
allar nánari upplýsingar og miðasölu
að finna á riff.is.
Morgunblaðið/Ófeigur
Gleði Dagur B. Eggertsson veitti Deepu Mehta heiðursverðlaun RIFF.
Deepu Mehta veitt
heiðursverðlaun
Þýski fjöllistamaðurinnFriedrich Liechtensteiner þeirrar hyggju aðbensínstöðvar séu róman-
tískustu staðirnir á jörðinni. Með
þann vísdóm að leiðarljósi lagðist
hann í ferðalög milli bensínstöðva
um Evrópu þvera og endilanga og
úr varð röð tíu sjónvarpsþátta,
Tankstellen des
Glücks (Bensín-
stöðvar hamingj-
unnar) og nú
hefur heimildar-
mynd unnin úr
þáttunum litið
dagsins ljós.
Liecthenstein
er skemmtikraft-
ur og dándimað-
ur. Hann gengur
um með sólgler-
augu með gylltri umgjörð og það
glampar á fagurgyllt naglalakkið á
fingrum hans, alltaf elegant til
fara. Á köflum minnir hann á
krómað popplistaverk eftir Jeff
Koons þegar hann ekur um á sín-
um gyllta Bens frá 1976 og raular
fyrir munni sér lagið sitt 1000 lítr-
ar: Ég gæti sett þúsund lítra á
tankinn og kæmist þó aldrei á
áfangastað.
Hans-Holger Friedrich fæddist
árið 1956 í Stalinstadt í Austur-
Þýskalandi þar sem nú heitir Ei-
senhüttenstadt. Hann starfaði við
leik og leikstjórn fram yfir alda-
mót þegar hann tók að hasla sér
völl í rafpoppi og tók sér lista-
mannsnafnið Friedrich Liechten-
stein. Hann hefur sagt í viðtali að
síðast hafi sést til Hans-Holgers
2003. Hann vakti athygli um allt
Þýskaland eftir að hann kom fram
í auglýsingu fyrir matvöruversl-
anakeðjuna Edeka.
Það er afrek í sjálfu sér að gera
heila mynd um bensínstöðvar, hvað
þá að fá sjónvarpsstöð til að fram-
leiða tíu þætti. Liechtenstein
fylgja hins vegar alltaf einhverjar
uppákomur, skrítnar, skemmti-
legar og furðulegar og á vegi hans
verða kynlegir kvistir.
Í Lígúríu á Ítalíu hittir hann fyr-
ir Svisslendinginn Dieter Meier,
einn af höfuðpaurum hljómsveitar-
innar Yello, milljónamæring og at-
vinnumann í póker, þar sem hann
er að setja bensín á brúsa og þeir
bresta í söng.
Í Danmörku heimsækir hann
bensínstöðina í Skovshoved, sem
Arne Jakobsen teiknaði á fjórða
áratug liðinnar aldar í framúr-
stefnulegum fúnkísstíl. Þar er enn
selt bensín, en inni í stöðinni, sem
hann tók við af föður sínum, rekur
Oliver Steindorsson ísbúð og lýsir
því hvernig hann gerði hana upp
svo að nú er hún eins og ný.
Við heimsækjum bensínstöð á
gangstéttarbrún í París. Ein
bensínstöðin er eins og hola í vegg.
Þar er ekið inn á skífu, sem síðan
er snúið við með handafli ef bens-
ínlokið er fjær dælunni eða öku-
maður er feiminn við að bakka út.
Auk þess að hampa bensín-
stöðvum hefur Liechtenstein sér-
stakt dálæti á dansinum Electric
Slide eða Rafrennslinu og tekur
sporið, sem faðir hans kenndi hon-
um, við hvert tækifæri. Hann slær
upp danskennslu á bensínstöð svo
úr verður hópatriði, sem gæti verið
úr kvikmyndinni Grease, og undir
lok myndar efnir hann til veislu
þar sem gestirnir koma uppábúnir,
sumir eins og þeir séu að mæta til
leiks í Rocky Horror Picture
Show. Og alltaf líður Liechtenstein
áfram með bros á vör, mjúkur í
hreyfingum og talar sinni djúpu
röddu til áhorfenda.
Við fáum hins vegar lítið að vita
um sögumanninn. Í einu atriði
sækir hann kodda og sæng í skott-
ið og leggst til svefns aftur í bíln-
um sínum inni í bílageymslu. Er
Liechtenstein heimilislaus?
„Öll glötuðum við sakleysi okkar
þegar við tókum bensín,“ segir
Liechtenstein á einum stað í
myndinni. Luis Bunuel hefði senni-
lega talað um hið hógværa aðdrátt-
arafl bensínstöðvanna. Liechten-
stein hefur kannski glatað
sakleysinu, en hann hefur varð-
veitt í sér barnið og er í essinu
sínu í þessari sérstöku og sér-
viskulegu mynd.
Rómantík? Dándimaðurinn Friedrich Liechtenstein er sannfærður um að bensínstöðvar séu rómantískustu staðir
heims. Í Lúxusbensíni miðlar hann þeirri sannfæringu sinni af sérvisku og alúð og rekur hver uppákoman aðra.
Dansað og duflað við dæluna
RIFF
Lúxusbensín bbbnn
Leikstjórn: Jeremy JP Fekete, Marco
Wilms og Tuan Lam. Þýska, danska,
franska og ítalska. Þýskaland, Dan-
mörk, Austurríki, Frakkland, Lúxem-
borg, Ítalía, Slóvakía, 2016. 90 mín.
Flokkur: Heimildarmyndir.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Friedrich
Liechtenstein
Bíó Paradís: Þri. 4. okt., kl. 22.00,
fim. 6. okt., kl. 21.45.
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2016
MAGNIFICENT 7 7:20, 10
FRÖKEN PEREGRINE 5:20
BRIDGET JONES’S BABY 8
EIÐURINN 6, 9, 10:30
STORKAR 2D ÍSL.TAL 5:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Vertu viðbúinn
vetrinum
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 22. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 17. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Meðal efnis.
Vetrarfatnaður • Skórfatnaður fyrir veturinn
Bílinn tekin í gegn fyrir veturinn
Flensuvarnir. • Ferðalög erlendis
Íþróttaiðkun og útivist • Vetrarferðir
innanlands • Bækur, spil og fl. • Snyrtivörur
Námskeið og tómstundir • Leikhús, tónleikar
og ýmisleg afþreying.• Skíðasvæðin hérlendis.
Mataruppskriftir