Ægir - 01.02.2017, Side 17
17
Samkvæmt samantekt Hag-
stofu Íslands nam afli íslenskra
skipa á Íslandsmiðum árið 2016
1.069 tonnum og er um að
ræða samdrátt í aflamagni frá
árinu 2015 sem nemur 247 þús-
und tonnum. Skýringin er nær
einvörðungu fólgin í minni
loðnuafla en hann var rúmlega
100 þúsund tonn í fyrra en rúm
350 þúsund tonn árið 2015.
„Samdráttur í afla uppsjávar-
tegunda var 32% á milli ára en
alls veiddust tæp 576 þúsund
tonn af uppsjávartegundum.
Botnfiskafli nam 457 þúsund
tonnum á síðasta ári sem er 4%
aukning miðað við fyrra ár. Að
venju er þorskaflinn uppistaðan
í botnfiskaflanum en tæp 264
þúsund tonn veiddust af þorski
á síðasta ári sem er 8% meira en
árið 2015. Flatfiskaflinn var
svipaður á milli ára og var tæp
24 þúsund tonnum á síðasta
ári. Afli skel- og krabbadýra
nam 12,7 þúsund tonnum sem
er jafngildir 26% aukningu mið-
að við árið 2015.
Í desembermánuði var fisk-
aflinn rúm 59 þúsund tonn sem
er 20% meiri afli en í desember
2015. Aukið aflamagn í des-
ember skýrist af auknum upp-
sjávarafla, en afli uppsjávarteg-
unda, kolmunna og síld, var 15
þúsund tonnum meiri en í des-
ember 2015. Samdráttur varð
hinsvegar í öðrum aflategund-
um, botnfiskafli dróst saman
um 14%, flatfiskafli um 41% og
skel- og krabbadýraafli um
28%,“ segir í samantekt Hag-
stofunnar
Þrátt fyrir aukið aflamagn í
desember má gera ráð fyrir að
verðmæti aflans í desember
hafi dregist saman um 5,5%
sem skýrist af aflasamdrætti
verðmætari tegunda.
Veiðar á Íslandsmiðum 2016
Loðnubresturinn skýrir
samdrátt heildarafla
Fiskafli á Íslandsmiðum
Desember Janúar-desember
2015 2016 % 2015 2016 %
Fiskafli á föstu verði
Vísitala 57,9 54,7 -5,5 88,2 84 -4,8
Fiskafli í tonnum
Heildarafli 49.775 59.482 20 1.317.143 1.069.595 -19
Botnfiskafli 30.583 26.365 -14 438.064 456.929 4
Þorskur 19.773 15.908 -20 244.463 264.355 8
Ýsa 3.292 2.287 -31 40.994 38.580 -6
Ufsi 2.083 2.630 26 48.217 49.631 3
Karfi 3.371 4.094 21 58.508 63.651 9
Annar botnfiskafli 2.064 1.446 -30 45.882 40.712 -11
Flatfiskafli 1.364 803 -41 23.540 23.939 2
Uppsjávarafli 17.480 32.064 83 845.415 575.921 -32
Síld 8.697 13.212 52 109.355 117.398 7
Loðna 0 0 - 352.866 101.089 -71
Kolmunni 8.783 18.852 115 214.870 186.915 -13
Makríll 0 0 - 168.279 170.514 1
Annar uppsjávarfiskur 0 0 - 45 5 -88
Skel-og krabbadýraafli 348 250 -28 10.069 12.720 26
Annar afli 0 0 - 54 86 57
Hagstofa Íslands
Eins og sjá má í töflunni vegur samdráttur í loðnuveiðunum þungt í heildaraflasölum þegar veiðarnar 2015 og
2016 eru bornar saman.
Áhrif loðnubrestsins eru veruleg í þeim sjávarplássum sem hafa byggt upp vinnslur á uppsjávarfiski síðustu ár.
F
isk
a
flin
n