Morgunblaðið - 26.10.2016, Qupperneq 12
og þjóðsögunum og ennþá eiga er-
indi. „Furðumenning er víðtækt hug-
tak sem á ensku er kallað fandom og
er viðhaft um samfélag aðdáenda
furðusagna, svokallaðra „sci-fi“ og
„fantasy“ bókmennta, sem eru
býsna yfirgripsmiklar. Við vildum
þýða konseptið yfir á íslensku og
gera furðumenningu að nokkurs
konar samheiti yfir fyrirbærið,
allt frá draugum og forynjum til
geimvera og
stjörnustríða.
Og ekki bara í
bókum heldur
líka í teiknimynd-
um, sjónvarpsþátt-
um, kvikmyndum,
myndlist og tónlist.“
Í rauninni er
Alexander á því að
furðumenningin
sé alltumlykj-
andi í öllum list-
greinum og
kimum sam-
félagsins úti
um allan
heim. „Sam-
eiginlegt ein-
kenni er að á ein-
hverjum tíma-
punkti fær raunveruleikinn að víkja;
náttúrulögmál eru brotin með göldr-
um eða vísindum eða eitthvað ónota-
legt læðist inn, eitthvað sem ekki er
eðlilegt,“ útskýrir hann.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Nördumst aðeins saman,“sagði m.a. í fréttatilkynn-ingu sem skipulagshópurIcecon, furðusagnahátíð-
ar á Íslandi 2016, sendi fjölmiðlum
síðsumars og gaf upp stað og stund
fyrir nördaháttinn. Markmiðið var að
smala saman hópi áhugafólks um
furðumenningu; fantasíur, vís-
indaskáldsögur, hrollvekjur og allt
þar á milli auk þess að kynna hátíð-
ina, sem nú styttist óðum í.
„Þetta er allt að smella saman,“
segir Alexander Dan Vilhjálmsson,
furðusagnahöfundur og einn skipu-
leggjenda hátíðarinnar, þeirrar
fyrstu sinnar tegundar á Íslandi að
hans sögn. „Hátíðahöldin standa yfir
frá föstudegi til sunnudagskvölds og
þegar hafa 115 manns skráð sig til
leiks. Íslendingar nokkurn veginn til
jafns við þátttakendur frá öðrum
löndum á Norðurlöndunum, Bret-
landi og Bandaríkjunum, og konur til
jafns við karla.“
Pallborðsumræður
og grímuball
Hátíðin verður haldin í Iðnó og
miðast dagskráin að miklu leyti við
furðusagnabókmenntir auk þess sem
boðið verður upp á umræður um önn-
ur efni eða listgreinar sem tengjast
furðumenningu. Meðal dagskrárliða
eru pallborðsumræður, viðtöl og
grímuball auk þess sem settir verða
upp sölu- og kynningarbásar. Heið-
ursgestir hátíðarinnar eru rithöfund-
arnir Elizabeth Bear frá Bandaríkj-
unum og Karin Tidbeck frá Svíþjóð.
Þótt furðumenning sé nýyrði
segir Alexander furðuna alla tíð hafa
verið til staðar í sagnahefð Íslendinga
Furðan alltaf til stað-
ar í sagnahefðinni
„Sameiginlegt einkenni [furðusagna] er að á einhverjum tímapunkti fær raunveru-
leikinn að víkja; náttúrulögmál eru brotin með göldrum eða vísindum eða eitthvað
ónotalegt læðist inn- eitthvað sem ekki er eðlilegt,“ segir Alexander Dan Vilhjálms-
son, einn skipuleggjenda Icecon furðusagnahátíðarinnar á Íslandi 2016.
Furðusagnahöfundur Alexander Dan er einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016
TWIN LIGHT gardínum
Betri birtustjórnun með
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
40 ára
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
Vörumerkið Roð er tiltölulega nýtt af
nálinni, en að því standa Hjördís
Þorfinnsdóttir og dóttir hennar, Elín
Guðmundsdóttir, en þær reka einnig
kjólabúðina Hosiló á Selfossi. Roð er
hins vegar samheiti hnappa sem þær
hanna og framleiða úr íslensku fiski-
roði; aðallega laxaroði en einnig roði
af hlýra og karfa.
Fram kemur á sunnlenska.is,
fréttavef Sunnlendinga, að þær
mæðgur hafi fjárfest í hnappagerð-
arvél fyrir nokkrum árum til að hafa
möguleika á að búa til hnappa á kjól-
ana í versluninni þegar á þurfi að
halda.
Hjördís mætir á Skapandi sam-
verustund í Bókasafni Reykjanes-
bæjar kl. 16 í dag, miðvikudaginn 26.
október, og kynnir hönnun sína, en
roðhnapparnir er sagðir vinsælir á
alls konar fatnað, ekki síst lopapeys-
ur.
Vefsíðan www.facebook.com/rodbuttons
Fiskiroð Roðhnappar sóma sér vel á alls konar fatnaði, ekki síst lopapeysum.
Roðhnappar á samverustund
Magnús Þór Þorbergsson leiklist-
arfræðingur verður gestur á fundi
Félags íslenskra fræða kl. 20 í kvöld,
miðvikudag 26. október, sem haldinn
er í Safnaðarheimili Neskirkju við
Hagatorg. Erindi Magnúsar Þórs
nefnist Úr baðstofu í borðstofu: Leik-
hús, sjálfsmynd þjóðar og mótun ís-
lenskrar nútímamenningar.
Í erindi sínu fjallar hann um rætur
og þróun hugmynda um íslenskt
þjóðarleikhús, tengsl þeirra við
menningarlega þjóðernishyggju og
sviðsetningu þjóðarinnar í leikhús-
inu. Hann veltir því m.a. upp hvernig
breytingar í starfi Leikfélags Reykja-
víkur á þriðja áratug liðinnar aldar
spegla menningarlegt umrót og
breytta samfélagsgerð í kjölfar full-
veldis og hvernig Leikfélagið átti þátt
í mótun íslenskrar nútímamenningar.
Endilega . . .
. . . hlýðið á er-
indi um þróun
leikhúss
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðleikhúsið Vonin um þjóðleikhús
hafði mikil áhrif á leikhússumhverfið.
Myndlistaskólinn í Reykjavík opnar
dyr sínar kl. 10-14 á morgun, fimmtu-
daginn 27. október, og býður gestum
og gangandi að koma og sjá hvað
gerist þegar gjörningahópur yfirtek-
ur listaskóla á framhaldsskólastigi;
Systraakademían – Yfirtakan, nefnist
gjörningur hópsins Sisters Hope,
sem þessa dagana hafa tekið yfir
starf skólans og gera tilraunir með
því að beina sjónum dagskólanem-
enda í auknum mæli að skynjun, ver-
und og samveru við kennara og ann-
að starfsfólk.
Systraakademían er norrænt verk-
efni sem Sisters Hope hleypti af
stokkunum árið 2014, en verkefnið á
rætur í gjörningalist, listrann-
sóknum, kennslufræði og aktívisma.
Markmið þess er að skapa og búa til
jarðveg fyrir nýtt menntakerfi sem
tekur í ríkari mæli mið af skynjuninni
og hinu ljóðræna.
Listrænn stjórnandi Sisters Hope
er Gry Worre Hallberg.
Opið hús í Myndlistaskólanum í Reykjavík
Yfirtaka
Systraaka-
demíunnar
Merkilegt Systraakademían leggur
áherslu á skynjun, verund og hið ljóð-
ræna í listsköpun.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Morgunblaðið/Ómar
Skrímsli
Furðan tek-
ur á sig
margar
myndir.
Ljósmynd/Wikipedia