Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 35

Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Alþjóðlega Listahátíðin Cycle verð- ur opnuð á morgun í Gerðarsafni í Kópavogi en hátíðin er vettvangur samtímatónlistar og myndlistar segir Guðný Guðmundsdóttir, list- rænn stjórnandi Cycle. „Þetta er í annað sinn sem við höldum hátíðna, sem sameinar heim tónlistar og myndlistar og teygir anga sína um alla Hamra- borgina í Kópavogi,“ segir Guðný en hátíðin samanstendur af sýningu í Gerðarsafni, fjölmörgum tón- leikum og gjörningum auk þess sem stofnað hefur verið til sam- starfs við Listaháskóla Íslands þar sem nemendum gefst kostur á að taka þátt í vinnustofum og fyr- irlestraröðum með listamönnum há- tíðarinnar. „Meðal gjörninga verður m.a. einn staðsettur í hrauninu við Kópavogskirkju. Þar er um ein- hvers konar rafræna listræna leið- sögn að ræða þar sem listamað- urinn tekur áhorfandann á ákveðna staði í hrauninu og víðar.“ Sífelldar endurtekningar Sýningarstjóri hátíðarinnar í ár er Eva Wilson rithöfundur en Guðný segir Evu hafa komið að mörgum áhugaverðum verkefnum. „Hin þýsk- og franskættaða Eva hefur komið að mörgum áhugaverð- um verkefnum. Hún hefur stýrt til að mynda Schinkel Pavillion í Berl- ín, verið sýningarstjóri hjá Thyss- en-Bornemisza Art Contemporary í Vín og staðið fyrir sjálfstæðum sýn- ingum. Eva hefur komið að sýningu á verkum eftir Philippe Parreno, Gretchen Bender, Ragnari Kjart- anssyni, Olaf Nicolai, Pauline Beaudemont og fleiri.“ Þá er yfirskrift hátíðarinnar í ár ÞÁ og ná efnistökin yfir sífelldar endurtekningar, framtíðarspá og fortíðarminni. „Já, tíminn sjálfur er í forgangi og það verða um hundrað íslenskir og erlendir listamenn sem túlka hann með sínum hætti,“ segir Guðný en meðal þeirra sem túlka hugtakið verður Johannes Paul Raether en gjörningur hans kynnir eina af hinum tilbúnu sjálfs- myndum hans sem birtast á mis- munandi almenningssvæðum. „Þær rannsaka, kenna og segja sögur. Litríkar verur, samsettar úr venjulegum hlutum, ræða flókin málefni eins og lífræna tímg- unartækni, hnattrænan ferða- mannaiðnað eða upplýsinga- og tölvutækni. Í verki Raethers fyrir Cycle birtist eitt þessara teikna. Alkemísk tækninorn sem kölluð er Protekto.x.x. setur á svið endurfæð- ingu sína á Íslandi eftir að hafa komið á uppnámi og brotnað niður í raunveruleika og skáldskap í Applebúðinni í Berlín fyrr í sumar.“ Guðný segir að síðan haldi Raether með hópinn af stað úr miðbæ Kópavogs og mun nornin leiða gesti sína áfram í „psycho- raunsæjum“ rannsóknarleiðangri um mismunandi iðnaðarsvæði á borð við Rio Tinto Alcan álverið og heilsufyrirtækið Bláa lónið sem vinnur með affallsvatn. Áfram verð- ur haldið eftir Reykjanesskaganum – til þess að safna sýnum fyrir við- varandi rannsóknir á því sem norn- in kallar „kapítalgenískt“ eign- arhald og snjallsímablæti og mun bræða sitt fimmta „kommúnisat“ sem absúrdmálm. List Listamaðurinn Johannes Paul Raether ferð með áhorfendur sína í ferðalag í gjörningi sínum og tekur ferðin eflaust nokkurn tíma. Nornaleiðangur úr Kópavogi til Rio Tinto  Listahátíðin Cycle opnuð á morgun í Gerðarsafni Textílfélagið opnar sýningu í Anarkíu listasal í Kópa- vogi laugardaginn 29. okt næstkomandi kl 15-18. Tuttugu og þrjár félagskonur taka þátt í þessari sýn- ingu og sýna bæði myndverk og hönnun. Textílfélagið var stofnað árið 1974 og er eitt af aðildarfélögum SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna og eitt þeirra félaga sem standa að Hönnuarmiðstöð en eitt af aðalmarkmiðum félagsins er að gæta hagsmuna fé- lagsmanna sinna og kynna list þeirra og hönnun á innlendum og erlendum vettvangi. Textílfélagið opnar sýningu í Kópavogi Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Leikhópurinn Soðið svið frumsýnir Extravaganza, nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur. Sýningar verða á Nýja sviði Borgarleikhússins og er frumsýnt 28. október næstkom- andi. Sýningar verða út nóvember. Uppfærslan er samstarf Borgarleik- hússins og Soðins sviðs, sem er nú að setja upp verk í þriðja sinn hér á landi. Leikarar eru María Heba Þorkels- dóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Hannes Óli Ágústsson. Í verkinu er mikið af nýrri tónlist eftir Ólaf Björn Ólafsson (sem einnig er þekktur sem Óbó). Þarf að vinna í lundabúðinni Salka Guðmundsdóttir, höfundur verksins, segir að hugmyndin hafi fæðst vegna áhuga á því hvernig borgarlandslagið hafi breyst að undanförnu. „Þetta gerist í einhverri undarlegri útgáfu af veruleikanum. Verkið er grátbroslegt gamanleikrit og fjallar um Lýdíu, sem býr í fyrr- verandi félagsblokk sem hefur verið breytt í gistirými fyrir ferðamenn. Hún fær að vera þarna eftir gegn því að vinna í lundabúðinni og að tékka túrista inn allan sólarhringinn. Það er langt síðan ég byrjaði á verkinu og mér finnst hafa hlaðist upp fréttir sem eru sambærilegar því. Mér fannst ég vera að skrifa súrrealisma en svo eru að birtast fréttir af hót- elum þar sem eru í alvöru einhverjar konur að vinna allan sólarhringinn,“ segir Salka. Án vitundar fasteignafélagsins sem á blokkina hefur áhugasagn- fræðingurinn Guðbrandur Númi hreiðrað um sig í geymslurými en fer um borgina að næturlagi í leit að púslum í borgarsöguna og vinnur að epískri Reykjavíkurrevíu. Revíusýning í leikritinu Salka segir æfingar hafa gengið vel. „Þetta er að mörgu leyti flókin sýning. Það er mjög mikil tónlist í verkinu og það fléttast inn í þetta revíusýning sem á að halda þarna í blokkinni sem persónurnar standa að,“ segir hún. „Þetta er sýning inni í sýningunni.“ Tragíkómískar aðstæður Leikhúsgestir ættu að skemmta sér vel yfir þessum undarlega veru- leika sem jafnvel gæti verið sannur. „Ég kalla þetta grátbroslegan gamanleik af því að aðstæðurnar sem að fólkið er í eru í raun mjög tragí- kómískar,“ segir Salka að lokum. Soðið svið sýnir leikritið Extravaganza  Grátbroslegt gamanleikrit um skúmaskot borgarlífsins Grátbroslegt María Heba Þorkelsdóttir leikur eitt aðalhlutverkið í Extra- vaganza, sem leikhópurinn Soðið svið setur upp í Borgarleikhúsinu. leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 21.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 18/11 kl. 19:30 25.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 21.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 25.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Horft frá brúnni (Stóra sviðið) Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 11.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 14.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 25/11 kl. 19:30 13.sýn Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 29/10 kl. 13:00 Lau 5/11 kl. 15:00 Lau 19/11 kl. 13:00 Lau 29/10 kl. 15:00 Lau 12/11 kl. 13:00 Lau 19/11 kl. 15:00 Lau 5/11 kl. 13:00 Lau 12/11 kl. 15:00 Sýningum lýkur í nóvember! Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti (Kúlan) Fim 27/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 5.sýn Frumlegt og ögrandi samtímaverk Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 26/10 kl. 20:00 Mið 2/11 kl. 20:00 Fös 28/10 kl. 20:00 Lau 5/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið) Lau 29/10 kl. 20:00 30.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 31.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Lofthræddi örnin Örvar (Kúlan) Lau 19/11 kl. 15:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 26/11 kl. 15:00 Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki. Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 27/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 11:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 3/12 kl. 11:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 3/12 kl. 13:00 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s. Lau 19/11 kl. 20:00 119.s Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s. Sun 20/11 kl. 20:00 120.s Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Fim 24/11 kl. 20:00 121.s Sun 30/10 kl. 20:00 110. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Fös 25/11 kl. 20:00 122.s Fim 3/11 kl. 20:00 111. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s Fös 4/11 kl. 20:00 112. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s Sun 27/11 kl. 20:00 124.s Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 29/10 kl. 13:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 13/11 kl. 13:00 14.sýn Sun 30/10 kl. 13:00 10.sýn Sun 6/11 kl. 13:00 12.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 15.sýn Mið 2/11 kl. 19:00 aukas. Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Njála (Stóra sviðið) Mið 26/10 kl. 20:00 Fim 10/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Mið 16/11 kl. 20:00 Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Hannes og Smári (Litla sviðið) Lau 29/10 kl. 20:00 8. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas. Sun 30/10 kl. 20:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 10.sýn Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar Extravaganza (Nýja svið ) Fim 27/10 kl. 20:00 Fors. Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn Fös 28/10 kl. 20:00 Frums. Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Mið 16/11 kl. 20:00 9.sýn Lau 29/10 kl. 20:00 2. sýn Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 3. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Þri 1/11 kl. 20:00 Fors. Fös 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Mið 2/11 kl. 20:00 Fors. Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Fim 3/11 kl. 13:00 Fors. Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas. Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn Aðeins þessar sýningar. Örfáir miðar lausir. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.