Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Page 22
Vikublað 10.–12. mars 20156 Hönnun - Kynningarblað Öskjur og kassar fyrir skart- gripi og hönnunarvörur S pírall prentþjónusta ehf. býður upp á öskjur og kassa fyrir skartgripi og aðrar hönnunarvörur í fjölda stærða. „Hægt er að fá upp- hleypingar á öskjurnar og einnig gyll- ingu ef að viðskiptavinir óska þess,“ segir Þórarinn Böðvarsson, annar eigenda Spírals. Öskjurnar má fá í fjölmörgum stærðum, í bylgjupappa og kartoni og ýmist í brúnum eða hvítum lit. Einnig eru nokkrar stærðir í boði í öðrum litum. „Við bjóðum upp á að að setja glugga á öskjurnar sem við framleið- um, en þannig sést varan betur,“ seg- ir Þórarinn. Meðal iðnhönnuða og skart- gripasmiða njóta koddarnir mik- illa vinsælda, en nafnið draga um- búðirnar af koddalaga útliti sínu. Koddarnir eru vel fallnir til að varð- veita hönnun af margvíslegu tagi, en þeir eru gjarnan notaðir undir há- gæða tískufatnað, svo sem hanska, trefla, höfuðföt og jafnvel stærri flíkur. Þórarinn segir matta kodda og glansandi kodda með litríkri áferð eiga jafnt upp á pallborðið hjá við- skiptavinum Spírals. Fyrirtækið var stofnað árið 2001 og hefur verið í Hafnarfirði síðan 2007, eigend- ur þess eru Guðjón Guðjónsson og Þórarinn Böðvarsson. Fyrirtækið á góðan hóp af viðskiptavinum víðs vegar um landið sem þeir sinna með póstsendingum eða senda til með vöruflutningafyrirtækjum. Spírall veitir jafnframt fjölþætta þjónustu í eftir- vinnslu prentgripa, svo sem flokkun, röðun og gormun bóka, dagatala og kynningarefnis. Spírall prentþjónusta ehf. er að Stakkahrauni 1 í Hafnar- firði, opið er virka daga frá kl. 8–17. Sími Spírals er 553-8383 og netfangið er spirall@spirall.is n G ullsmiðja Óla hefur í yfir tutt- ugu ár framleitt eigin línu af skartgripum sem henta vel til gjafa við öll tækifæri, allt frá skírnargjöfum, fermingar- gjöfum, brúðkaupsgjöfum og allt þar á milli, eða ef fólk vill kaupa fallegt og eigulegt skart til eigin nota, klassískt skart sem hefur notagildi til fjölda ára. Gullsmiðja Óla var stofnuð á kvennadaginn 19. júní 1993 og var í upphafi í Hamraborg og eftir við- komu í miðbænum og í Smáralind var verslunin flutt aftur í Hamraborg árið 2013, tæpum 20 árum eftir stofn- un hennar. Eigendur eru Óli Jóhann Daníelsson, gullsmiður og gullsmíða- meistari, og eiginkona hans, Eygló Sif Steindórsdóttir. „Við höfum unnið saman alveg frá því að við kynntumst 20. nóvem- ber 1982,“ segir Óli, en þau kynntust á dansgólfinu á Broadway. Auk skartgripanna hefur Gull- smiðja Óla einnig til sölu mynd- ir sem Eygló Sif málar, en um er að ræða hönnun beint frá býli í bókstaflegri merkingu segir Óli. Myndirnar, sem vak- ið hafa mikla athygli, mál- ar Eygló á eggjaskurn frá landnámshænum í eigu hjónanna. Eggjaskurnin er mulin niður, fest á striga og svo máluð. Þegar skurnin hef- ur drukkið litinn í sig er svo lakkað yfir. „Þær eru mjög sérstakar og flott- ar,“ segir Óli. Eygló býr einnig litina til sjálf, en þeir fást ekki hér á landi og var hún í nokkra mánuði að prófa sig áfram með litagerðina. Á Menn- ingarnótt árið 2013 voru fyrstu mynd- irnar seldar hvort tveggja Íslendingum og útlendingum, en þá var Gullsmiðja Óla staðsett í Veltusundi. Ómetanleg afmælisgjöf Þegar Eygló átti afmæli í fyrra sagði hún við eiginmann sinn að hún vildi ekki dýra gjöf í afmælisgjöf, Óli lof- aði því, en ákvað að gefa henni sér- staka gjöf og keypti munnblás- ið kampavínsglas. „Á glasið gróf ég 11.688 hjörtu, sem eru dagarnir frá því við kynntumst, frá 20. nóv- ember 1982 til 20. nóvem- ber 2014. Hvert hjarta er innan við fermillimetri á stærð og verkið tók mig um 50 klukkustundir,“ segir Óli og brosir. Hann segir að þegar hann var að grafa í glasið hafi minningar frá yfir 30 ára ferðalagi þeirra hjóna saman rifjast upp og segir hann að þetta hafi verið eins og að fletta gömlu myndaalbúmi og ótalmargar góðar og skemmtilegar minningar rifjast upp. „Tímamót sem standa upp úr eru táknuð með stærra hjarta og gyllingu, eins og brúðkaups- dagurinn okkar, fæðingar- dagar barna og barnabarna og silfurbrúðkaupsdagurinn okkar,“ segir Óli að lokum. Gullsmiðja Óla áletrar á alls konar glös, t.d. brúðar- glös, bjórglös, glerkönnur. Einnig er fyrirtækið sérhæft í viðgerðum á skartgripum. Gullsmiðja Óla er að Hamraborg 5 í Kópavogi, verslunin er opin virka daga frá kl. 10–18 og laugardaga frá kl. 10–14. Sími Gullsmiðju Óla er 564-3248. n Gullsmiðja Óla er á Facebook Á síðu Glósa myndlist á Facebook má sjá myndir Eyglóar. Gullsmiðja Óla hefur í yfir tuttugu ár framleitt eigin skartgripalínu Spírall prentþjónusta ehf. Við vinnu sína Þórarinn Böðvarsson. Myndir Sigtryggur Ari Öskjur Hér má sjá nokkur sýnishorn. Öskjur til ýmissa nota Hægt er að fá þær í ýmsum stærðum. Koddarnir Njóta mikilla vinsælda. Kassar Nokkur sýnishorn í svartri útgáfu. Á vinnustofunni Óli gullsmíðameistari að störfum. Myndir Sigtryggur Ari Einstök gjöf til eiginkonunnar Á glasið gróf Óli 11.688 hjörtu, sem er fjöldi daganna frá því þau kynntust. Fallegur hringur Nýtt skart frá Óla Hálsmen Skart frá Óla Mynd eftir Eygló Málað á eggjaskurn List Eyglóar Landnámshæna máluð á eggjaskurn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.