Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 26
Vikublað 10.–12. mars 201518 Neytendur Barneignir aðeins fyrir þá efnameiri n Óraunhæft að lág- og meðaltekjufólk lifi á fæðingarorlofsgreiðslum miðað við neysluviðmið n Hægt að skrimta á hámarksgreiðslum ef foreldrar taka ekki fæðingarorlof samtímis Þ að getur reynst allt að því ómögulegt fyrir lág- og meðaltekjufólk að lifa á fæðingarorlofsgreiðslum á Íslandi í dag. Útreikningar DV sýna að pari á höfuðborgarsvæð- inu getur vantað ríflega 162 þús- und krónur upp á að ná dæmigerðu neysluviðmiði velferðarráðuneytis- ins á mánuði ef reiknað er með að það leigi litla íbúð. Nýbakaðir for- eldrar þurfa tekjur vel yfir meðal- lagi til að koma út á sléttu gagnvart neysluviðmiði að meðtöldum hús- næðiskostnaði. Nær ómögulegt er fyrir foreldra að taka fæðingarorlof saman og ná þessu framfærsluvið- miði. Svo virðist sem barneignir séu aðeins fyrir hina efnameiri í íslensku samfélagi meðan aðrir eiga á hættu að stefna sér í fjárhagslega glötun við það eitt að stofna fjölskyldu. Aðstæður fólks sem á von á barni eða hyggur á barneignir geta verið eins mismunandi og þær eru margar. Foreldrar geta verið einstæðir, báðir í fullu námi, báðir í fullri vinnu með mismunandi tekjur eða annar aðili í námi og hinn í fullri vinnu og allt þar á milli. Því ber að hafa í huga að út- tektin er af þessum augljósu ástæð- um ekki tæmandi en gefur hins vegar ágætis mynd af því hversu erfið tekjuskerðing í kjölfar barneigna get- ur reynst ákveðnum hópum. Eins og fjallað var um hér á neytendasíðu DV á föstudag er það ekki aðeins tekju- skerðing sem bíður tilvonandi for- eldra við það að eignast barn held- ur getur kostnaður við meðgöngu og undirbúning fyrir komu barns- ins auðveldlega numið hátt í 640 þúsund krónum. Í blaðinu á föstu- dag verðlagði DV meðgönguna á að minnsta kosti 140 þúsund krónur, en fyrri útreikningar blaðsins á kostn- aðinum við að eignast barnið námu um 500 þúsundum. Þessar tölur ber því að hafa í huga þar sem þær geta haft áhrif á hvort og þá hversu mik- inn sparnað fólk á áður en það tekur sér fæðingarorlof. Þetta þarftu að þéna En við hvað ber að miða? Einu opin- beru upplýsingarnar höfum við í neysluviðmiðum velferðarráðuneyt- isins en á vef þess má finna reiknivél þar sem hægt að slá inn mismunandi fjölskyldugerðir og fá út bæði dæmi- gert og grunnneysluviðmið. Þetta ætti að segja okkur hversu mikið fólk þarf að þéna til að lifa sómasamlegu lífi á Íslandi í dag. Við tökum dæmi um par á höfuð- borgarsvæðinu sem er með eitt barn sem við gefum okkur að sé nýfætt og því ekki í leikskóla eða hjá dagfor- eldri. Fyrir þau er dæmigert neyslu- viðmið ráðuneytisins 411.946 krón- ur á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Inni í neysluviðmiðinu eru útgjöld vegna neysluvöru, þjónustu, tóm- stunda og samgangna. Þetta þéna þau Í fyrsta dæminu gefum við okkur að faðirinn sé í fullu starfi en móðirin í fullu námi. Hún getur aðeins tek- ið sex mánuði á fæðingarstyrk sem ekki er hægt að dreifa yfir lengri tíma en hann á rétt á þremur mánuðum í fæðingarorlofi. Faðirinn er með 400 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði. Samkvæmt reiknivél á vef Fæðingarorlofssjóð fær hann 320 þúsund krónur á mánuði, fyrir frá- drátt. Eftir frádrátt á borð við skatt, lífeyrissjóðsgreiðslur og stéttarfé- lagsgjöld á hann eftir 240.316 krón- ur á mánuði. Móðirin er í fullu námi við Há- skóla Íslands og fær mánaðarlegan fæðingarstyrk upp á 139.591 krónu fyrir frádrátt í sex mánuði. Að frá- dregnum skatti og teknu tilliti til persónuafsláttar hefur hún 138.426 krónur á milli handanna í hverjum mánuði. Þá þrjá mánuði sem þau eru saman heima með barnið í fæðingar- orlofi hafa þau því heildartekjur upp á 459.591 krónu en ráðstöfunartekj- ur upp á 378.742 krónur. Þetta þýðir að þau eru strax 33.204 krónum undir hinu dæmi- gerða neysluviðmiði velferðarráðu- neytisins fyrir þeirra fjölskyldugerð. En, og þetta er stórt en, þá á eftir að greiða húsaleigu. Kíkjum á það. Þurfa þak yfir höfuðið Parið leigir 65 fermetra, tveggja her- bergja íbúð í austurbæ Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum um með- alleiguverð á hvern fermetra í leig- ugagnagrunni Þjóðskrár kostar fer- metrinn á tveggja herbergja íbúð, sem staðsett er á milli Kringlumýrar- brautar og Reykjanesbrautar, 1.993 krónur. Þau greiða því 129.675 krón- ur á mánuði í leigu. Þeir sem þekkja til á leigumarkaði í Reykjavík eru þó fljótir að sjá að það væri býsna vel sloppið að leigja íbúð í Reykjavík fyrir þessa upphæð í dag. Þessi við- miðunarupphæð er því hófstillt. Þegar við leggjum leigukostnað- inn við þau mánaðarlegu útgjöld sem kveðið er á um í neysluviðmið- inu má því sjá að áætluð heildarút- gjöld parsins eru alls 541.621 króna á mánuði á móti tekjum upp á 378.742 krónur. Eftir standa hinir nýbökuðu foreldrar því í 162.879 króna mín- us í hverjum mánuði, þann mánuð eða mánuði, sem þau eru saman í því fæðingarorlofi sem þau eiga rétt á. Nánari útlistun á stöðu þeirra má sjá í töflu 1 a). Fjárhagsstaða þeirra eru litlu skárri þegar maðurinn er ekki í fæðingarorlofi og úti á vinnumark- aðinum meðan móðirin er heima með nýfætt barn þeirra. Með full- um launum hans og fæðingarstyrk hennar eru þau enn 113.351 krónu undir neysluviðmiðinu að með- talinni húsaleigu. Þau sökkva lengra undir neysluviðmiðið ef við gefum okkur að móðirin fari aftur á fram- færslu frá LÍN að að sex mánuð- um loknum meðan faðirinn tek- ur þriggja mánaða fæðingarorlof. Nánari útlistun um mögulega stöðu þeirra miðað við þessar forsendur má sjá í töflu 1 b). Pör þurfa helst að dekka níu mánuði En eins og kemur fram í dæmi 1 b) þá er það oftast þannig að pör reyna að dekka fyrstu níu mánuði í ævi ný- fædds barns með fæðingarorlofi. Ástæðan er oftast sú að til að njóta niðurgreiðslu vegna daggæslu er miðað við níu mánaða aldur barns hjóna eða sambúðarfólks. Ef foreldri er einstætt eða í námi geta niður- greiðslur hafist við 6 mánaða aldur barns. Foreldrar geta því skipt með sér orlofinu til dæmis þannig að annað taki sex og hitt þrjá mánuði í kjölfar- ið. Það þýðir hins vegar að þau geta aldrei verið saman í fæðingaror- lofi með hinu nýfædda barni nema launalaust. Það þykir mörgum afleit tilhugsun. Ein algeng lausn á því er að annað þeirra, t.d. móðirin, taki sex mánuði en dreifi orlofinu yfir níu mánaða tímabil og taki á sig skertar greiðslur sem því nemur. Þá er búið að dekka fyrstu níu mánuðina og faðirinn í þessu tilfelli getur átt þrjá heila mánuði með móður og barni, kjósi hann að gera það. Enn í mínus í fullri vinnu En foreldrarnir í dæmi okkar ná ekki einu sinni neysluviðmiðinu sem við miðum við þótt þau séu bæði í fullri vinnu áður en þau fara í fæðingar- orlof. Staðan skánar skiljanlega um- talsvert við það að þau eigi nú bæði rétt á hærri greiðslum miðað við heildartekjur sem launþegar. Í dæmi 2 a) er sýnt hvernig málin myndu líta út hjá parinu ef bæði væru í fullri vinnu með heildartekjur upp á 400 þúsund krónur hvort. Þar er litið á hvernig það kæmi út fyrir þau að skipta orlofstökunni á milli sín til að dekka níu mánuði. Þá eru þau samt rúmum 11 þúsund krónum undir viðmiðinu auk húsaleigu. Í dæmi 2 b) er sýnt hvernig dæmið lítur út ef móðirin dreifir sex mánaða fæðingarorlofi sínu yfir níu mánuði sem gerir það að verkum að faðirinn getur leyft sér að taka þrjá mánuði með allri fjölskyldunni. Þetta fyrir- komulag kemur afar illa við fjárhag parsins eins og sjá má. Þá mánuði sem þau eru saman í fæðingarorlofi eru þau rúmum 124 þúsund krónum undir viðmiðinu. Þegar faðirinn er í vinnu en konan ein með barnið eru þau síðan ríflega 74 þúsund krónum undir settu marki. Þurfa hámarksgreiðslur til að eiga afgang Í dæmi 3 er sýnt hvernig fjárhags- staða parsins lítur út ef báðir aðilar Mikil tekjuskerðing Það er stórt augnablik í lífi hvers foreldris að eignast sitt fyrsta barn. Fæstir vilja missa af fyrstu vikum og mánuðum í lífi barnsins en til þess þarf að taka fæðingarorlof. Ljóst er að tekjuskerðingin sem því fylgir getur reynst mörgu lágtekjufólki þungbær. Mynd 123rf.coM nær ómögulegt að ná neysluviðmiði Jafnvel þótt pör eigi rétt á hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði geta þau ekki tekið fæðingarorlof á sama tíma og náð neysluviðmiði velferðarráðuneytisins þegar leigukostnaður er meðtalinn. Staða tekju- lægri verðandi foreldra er enn verri gagnvart þessu viðmiði. Mynd Sigtryggur Ari Átt þú rétt á fæðingarstyrk? Þú gætir sótt þér verulega búbót til stéttarfélagsins Mörg stéttarfélög veita félagsmönnum margvíslega styrki. Þar á meðal eru fæðingarstyrkir. Þótt mismunandi sé hversu háir þeir eru þá geta þeir numið hátt í ríflega 200 þúsund krónum, eftir stéttarfélögum og úthlutunarreglum hvers þeirra. Hjá SFR nemur fullur styrkur 220 þúsund krónum vegna hvers barns. Hjá Bandalagi háskólamanna (BHM) nemur fullur styrkur 200 þúsund krónum og Kennarasamband Íslands greiðir að hámarki 215.600 krónur svo eitthvað sé nefnt. Er því óhætt að hvetja verðandi foreldra til að athuga hjá sínu stéttarfélagi hvort það bjóði upp á fæðingarstyrki enda ljóst að hægt er að sækja verulega búbót í sjóði þeirra. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Dæmi 1 a) Hér tekur móðirin sex mánuði á fæðingarstyrk sem námsmaður en faðirinn sína þrjá mánuði í fæðingarorlofi og tekur þá alla á fyrstu þremur mánuðum ævi barnsins. Þetta fyrirkomulag dekkar hins vegar aðeins sex mánuði en til að njóta niður- greiðslu vegna daggæslu í heimahúsi í Reykjavík þarf barn hjóna eða sambúðarfólks að hafa náð níu mánaða aldri. tafla 1 a) Mánuður/ forsendur Móðir, 6 mánuðir faðir, 3 mánuðir ráðstöfunartekjur Útgjöld 1 138.426 kr. 240.316 kr. 378.742 kr. 541.621 kr. -162.879 kr. 2 138.426 kr. 240.316 kr. 378.742 kr. 541.621 kr. -162.879 kr. 3 138.426 kr. 240.316 kr. 378.742 kr. 541.621 kr. -162.879 kr. 4 138.426 kr. 289.844 kr. 428.270 kr. 541.621 kr. -113.351 kr. 5 138.426 kr. 289.844 kr. 428.270 kr. 541.621 kr. -113.351 kr. 6 138.426 kr. 289.844 kr. 428.270 kr. 541.621 kr. -113.351 kr. Fjárhagsstaða foreldra eftir sex mánuði, að því gefnu að þeir hafi ekki átt nokkurn sparnað: -828.690 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.