Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Qupperneq 29
Vikublað 10.–12. mars 2015 Lífsstíll 21 É g er mannleg og fæ oft löngun í eitthvað sætt yfir vikuna. Ég reyni þó að forðast slíkar að- stæður með því að huga vel að mataræðinu yfir daginn, en stundum nær nammilöngunin yfirhöndinni. Það er mismunandi hvernig ég tek á slíkum aðstæðum. Ein algengasta spurningin í þjálfun- inni er hvernig við gerum það. Það er ýmislegt í hollu mataræði sem mér finnst gott og reyni ég því frekar að grípa í það en að leita í nammi. Amino Energy Efst á lista hjá mér til að komast yfir nammilöngun yfir daginn. Þetta er hægt að fá í mismunandi bragð- tegundum. Það inniheldur grænt te og koffín og veitir þér aukna orku. Enn betra er að það inniheldur engan sykur og er mjög hitaeiningasnautt. Svo er þetta bara virkilega bragðgott. Mitt uppáhaldsbragð er Fruit Fusion og fæ ég mér það um 1–2 tvisvar sinn- um yfir daginn, 3 skeiðar í 400–500 millilítra af vatni. Ég drekk ekki kaffi þannig að þetta er minn orkugjafi yfir daginn og fyrir æfingar. Hafraklattarnir mínir Það er bara eitthvað við þá sem ég stenst ekki. Það er þessi samsetning af rúsínum, kanil, banana og örlitlum kókos, sem gefur þetta sæta bragð og slekkur alveg á allri löngun í nammi. Ég lít alltaf á þá sem millimál. Ávextir Ávextir inni- halda náttúru- legan sykur og því frábær lausn á löngun í sykur. Mér finnst best að fá mér grænt epli eða peru sem hefur verið inn í ísskáp, þannig er safinn sem kemur úr ávextinum ferskur og góður. Þurrkaðar döðlur eða sveskjur Það er reyndar gott að hafa bak við eyrað að þurrkaðir ávextir eru lúmskt hitaeiningaríkir. Þess vegna fæ ég mér kannski bara tvær döðlur til að slökkva á löngun- inni, enda eru þær virkilega sætar á bragðið. Próteinstykki Mér finnst mjög mikilvægt að líta á alla fæðubót sem viðbót yfir daginn og fyrst og fremst er gott að hafa bak við eyrað að velja næringu úr hollri og fjölbreyttri fæðu. Prótein- stykki eru frábær lausn á nammilöngun í miðri viku. Þau er fín til þess að fá sér kannski einu sinni til tvisvar sinnum í viku sem milli- mál. Ég miða við að þau innihaldi í kringum 200 hitaeiningar og ekki mikið magn sykurs. Króm Ég hef verið með óþarflega mikla löngun í sykur seinustu vikurnar. Þess vegna prófaði ég að bæta krómi við þau vitamín og steinefni sem ég tek inn dag hvern. Þegar ég byrjaði að æfa lærði ég að það hjálpar meðal annars við að halda sykurlöngun niðri. 80% dökkt súkkulaði Þetta er sterkt súkkulaði og slær því á alla löngun sem ég hef í sætindi, enda er súkkulaði þar í uppáhaldi. Ég læt einn mola duga og fæ mér þá kannski einu sinni yfir vikuna. Ef ég væri að fá mér öll kvöld myndi það safnast saman í eitt. Hófsem- in góða. Það koma svo tímar sem ég fæ mér það sem mig langar í. Því ég borða vel alla daga vik- unnar, hreyfi mig mikið og er í því formi sem ég vil vera í, er sem sagt bara að viðhalda því. Þá get- ur maður verið aðeins frjálslegri í mataræðinu. En þá er mikilvægt að kunna að stoppa og láta bara smáræði duga. Fyrir flesta er það mjög erfitt og kveikir það mögulega löngun í eitthvað meira og því mikil- vægt að þekkja sín mörk. n Þangað til næst Ale ræktardurgur Sætindalöngun í miðri viku Hvað geri ég ef ég fæ löngun í sætindi í miðri viku? Alexandra Sif Nikulásdóttir ale_sif@hotmail.com Nammidagshugleiðing Þ rátt fyrir að ég stundi hollan og heilbrigðan lífsstíl og sé mikill áhugamaður þess þá finnst mér óhollur matur, nammi og slíkar kræsingar virkilega góðar líka og finnst mér fátt betra en súkkulaði. Ég tel í raun nauðsynlegt fyrir líkama og sál að njóta þess að borða óhollt inni á milli. Þar kemur hinn gullni meðalvegur sterkur inn, en það orðatiltæki nota ég mikið, þar sem það á við svo margt í lífinu. Það þýðir sem sagt að gæta hófsemi og í þessu tilviki er mjög mikilvægt að hafa hana bak við eyrað, hvort sem þú ert að fá þér hollan eða góð- an mat, því allt er gott í hófi. Nammi ekki nauðsyn Í þjálfun okkar leggjum við upp með einn „nammidag“ í viku, eða einn frjálsan dag. Við erum ekki að tala um að viðkomandi byrji daginn í næsta bakaríi, fari í hádeginu í ham- borgara, í pítsu í kvöldmatinn og kóróna daginn svo með einum stór- um nammipoka úr Nammilandi. Það virkar ekki alveg þannig og það er ekki einu sinni nauðsynlegt að þú fáir þér nammi þann daginn. Mark- miðið með slíkum degi er að borða aðeins meira af hitaeiningum en hina daga vikunnar. Við hugsum nammidaginn sem eins konar ör- yggisventil, til að breyta út af vanan- um og einnig til þess að koma í veg fyrir stöðnun. Nammidagurinn er sá dagur sem þú getur nýtt þér til þess að borða að- eins umfram þetta venjulega. Það er jafn mikilvægt þennan dag sem aðra daga vikunnar að borða vel og reglu- lega yfir daginn, fá sér svo kannski góðan kvöldmat og eftirrétt, jafnvel smá bakarísmat um daginn eða ann- að í þeim dúr. Borða vel um morguninn Sjálf er ég meðvituð um að borða vel og reglulega yfir þennan dag svo ég breytist ekki lítið skrímsli um kvöldið og missi mig í gleðinni. Oft fæ ég mér stærri skammta af þeim mat sem mér finnst góður. Ég er ekki að horfa á klukkuna kvöldið áður og bíða eftir að klukkan slái á miðnætti svo ég geti dottið ofan í nammipok- ann á 50 prósenta afslætti eins og ég eigi lífið að leysa. Mér finnst gott að byrja daginn á góðum morgunmat. Oftast verð- ur hafragrautur fyrir valinu sem ég geri stærri og matarmeiri, þannig ég hafi næga orku til þess að taka uppáhaldslyftingaæfingu vikunnar, sem er rass og hamur. Eftir hana kem ég við í Nammilandi og kaupi mér bland í poka sem inniheld- ur nánast eingöngu súkkulaði og narta úr honum yfir daginn. Um kvöldið verður svo einhver dýrind- is kvöldmatur fyrir valinu sem ég fæ mér ekki oft eins og t.d. pítsa, hamborgari eða girnilegur heim- ilismatur hjá mömmu með naan- brauði sem ég geri sjálf. Oftar en ekki geri ég þetta í góðra vina hópi og finnst mér einstaklega gaman að halda matarboð á þeim degi sem ég vel sem minn „trít“-dag vikunnar. Laugardagarnir eru oftast nær slíkir dagar hjá mér. Það er gam- all vani frá því ég var lítil og fékk gull- pening til þess að labba út í sjoppu að kaupa mér bland í grænan poka. „Það koma svo tímar sem ég fæ mér það sem mig langar í. Því ég borða vel alla daga vikunnar. Marsdöðlugott É g hafði oft smakkað döðlugott í veislum og haldið að vinnan á bak við það væri gífurleg og því aldrei lagt í að gera það sjálf. Ég rakst hins vegar á uppskrift að döðlugotti þegar ég var að vafra um á netinu og það kom mér virkilega á óvart hversu auðveld hún væri í framkvæmd. Ég er ein af þeim sem geta ómögulega farið nákvæmlega eftir upp- skrift og er sælkeri mikill. Þess vegna hugsaði ég mér að auka hráefni myndi gera döðlugottið að enn meiri karamellu, flestar uppskriftirnar á netinu innihalda lakkrís sem ég var ekki eins hrifin af. Það var ýmislegt sem kom í huga minn en að lokum varð Mars fyrir valinu og úr því varð þessi dísæta og himneska blanda sem bráðnar í munni. Hráefni n 600 g döðlur saxaðar smátt n 250 g smjör n 120 g púðursykur n 5–6 bollar Rice Crispies n 600 g Nóa Siríus konsúmsúkkulaði (fínt að miða við 400 g, ef þú vilt ekki of þykkt lag ofan á) n 4 lítil Mars-stykki söxuð smátt Aðferð Ég byrja á að setja döðlurnar, smjörið og púðursykurinn saman í pott og passa að hann sé nægilega stór því restin af meðlætinu mun svo bætast við. Þetta bræði ég hægt og rólega saman á lágum hita og er mjög mikilvægt að hræra í þessu á meðan. Sjálf nota ég gaffal til verks- ins því þetta verður mjög klístrað. Þegar blandan er farin að líkjast karamellu og farin að klístrast tek ég pottinn af hitanum og leyfi að standa í um 2–3 mínútur áður en Rice Crispes og Mars er bætt við. Ég hræri alltaf einn bolla af Rice Crispies saman við í einu svo ég endi ekki með það á gólfinu og bæti Mars einnig við inn á milli. Þegar þetta er tilbúið set ég það í bökunarform eða eldfast mót sem ég hef sett bökunarpappír í og leyfi að standa í smástund og kólna áður en ég bæti súkkulaðihjúpnum ofan á. Súkkulaðið bræði ég yfir vatnsbaði og helli yfir döðlugottblönduna í mótinu og dreifi úr með sleif. Að lokum þarf að koma þessu í frystinn og leyfa því að vera þar þangað til hjúpurinn er alveg frosinn. Því næst tek ég þetta úr frystinum (passa að þetta sé ekki gagn- freðið því þá verða átök), sker niður í litla bita eftir smekk og nýt þess í botn. Döðlugottið geymist best í kæli eða frysti. Spennandi uppskriftir Ég leyni á öðrum spennandi og girnilegum uppskriftum sem ég hlakka til að deila með ykkur inn á milli fróðleiks um æfingar, heilsu og hollustu. Það vill líka svo skemmtilega til að amma mín kom því í kring að langþráður draumur minn rættist um jólin er ég eignaðist bleika KitchenAid sem ég þarf að fara að nota af einhverju viti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.