Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Blaðsíða 31
Vikublað 10.–12. mars 2015 Menning 23 Leiklist Tilnefningar til Menningarverðlauna DV 2014 Dómnefnd: Silja Aðalsteinsdóttir (formaður), Arngrímur Vídalín og Bryndís Loftsdóttir. Bergur Þór Ingólfsson Fyrir leikstjórn og handrit barna- leikritsins Hamlet litli hjá LR Í Hamlet litla tekst Bergur Þór á við það ögrandi verkefni að koma sögu Hamlets prins eftir William Shakespeare á svið með þrem leikurum í klukkutíma verki ætluðu börnum. Handrit hans er afar þétt og heldur jafnvel yngstu áhorfendum spenntum og áhugasömum allan tímann. Fjörugri tónlist, forvitnilegum leikbrúðum, leikmunum og allri þeirri tækni sem fyrirfinnst í leikhúsinu er teflt saman ásamt firnasterkum leikurum og allt gengur upp. Bergur kemur sögu Hamlets vel til skila á þessum stutta tíma og splæsir auk þess inn eftirminnilegu atriði þar sem Ófelía talar um móður sína með þeim hætti að enginn verður ósnortinn. Það er mikil upplifun fyrir áhorfendur á öllum aldri að sjá þessa sýningu, hún opinberar ýmsa galdra leikhússins, kynnir fjöl- breytt frásagnarform og er unnin af slíkri alúð að lengi verður minnst. Hilmar Jónsson Fyrir leikstjórn verksins Furðulegt háttalag hunds um nótt hjá LR Verkið fjallar um einhverfan dreng, Christopher, sem fórnar öllu haldreipi sínu í leit að sannleikanum um fjölskyldu sína. Hilmar skapar frábært jafnvægi milli hins eintóna einhverfa drengs og allra hinna litskrúðugu persónanna, þannig að áhorfendur umbera krefjandi nærveru Christophers og taka þátt í hinu strembna ferðalagi í leit að sannleikanum með honum. Tíu sterkir leikarar fara með þrjátíu og átta hlutverk og eru þar allir hver öðrum betri, jafnvel hundurinn sem kemur inn í lok sýningarinnar sýnir algjöran stjörnuleik. Leikmynd, lýsing, hljóðmynd og sviðshreyf- ingar leikara vinna saman á einstakan hátt undir stjórn Hilmars og mynda á fimmta tug mismunandi staðsetninga verksins á spennandi og trúverðugan hátt. Þetta er ákaflega flókin og viðamikil sýning en allar tæknilegar úrlausnir ganga upp og eru í raun listaverk út af fyrir sig. Elma Stefanía Ágústsdóttir Fyrir leik sinn í þremur sýningum í Þjóðleikhúsinu Elma Stefanía setti sterkan svip á þrjár gerólíkar persónur í þremur eftirminnilegum og áhrifamiklum leiksýningum á árinu: Ástu Sóllilju, lífsblómi Bjarts í Sumarhúsum í ögrandi og umdeildri sýningu Þorleifs Arnar Arnarssonar á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness, Abigail Williams, forsmáða ástkonu Johns Proctor, í glæsilegri uppsetningu Stefans Metz á Eldrauninni eftir Arthur Miller og Herbjörgu Maríu unga í viðburðaríkri og auðugri sýningu Unu Þorleifsdóttur á Konunni við 1000° eftir Hallgrím Helgason. Um leið viljum við gefa leikstjórum, öðrum leikurum og sviðslistamönnum þessara sýninga fallega rós í sitt hnappagat. Unnur Ösp Stefánsdóttir Fyrir túlkun sína á Nóru í Dúkkuheimili Ibsens hjá LR Í umskiptunum úr yfirborðskenndri hamingju til örvæntingar sýnir Unnur Ösp einstaklega næma tilfinningu fyrir togstreitu í sál kúgaðrar konu sem neyðist til að fórna öllu til að bjarga sjálfri sér. Þrátt fyrir háan aldur verksins á það enn erindi eins og sannaðist í kraftmikilli uppfærslu Hörpu Arnardóttur. Aðrir leikarar áttu einnig sinn þátt í áhrifum sýningar- innar, einkum Hilmir Snær í hlutverki Þorvalds, og þá ekki síður leikmynd Ilmar Stefánsdóttur sem myndar hið ótrausta undirlag sem heimilið er byggt á. Marta Nordal Fyrir leikstjórn sína á Ofsa eftir sögu Einars Kárasonar Leikhópur Mörtu Nordal og Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur, Aldrei óstelandi, hefur vakið athygli á síðustu árum fyrir frumlegar og áhrifamiklar sýningar þar sem þau hafa nýtt sér útvarpsleik- hústækni á ýmsan hátt til að ná utan um og magna efnivið sinn. Ofsi gerist á Sturlungaöld og segir frá glæsilegri brúðkaupsveislu sem endar með morðbrennu og sögupersónur skipta tugum; þó komu fjórir leikarar sögunni til skila á einkar áhrifaríkan hátt á litlu sviði með því að beita slagverki, útvarpstækni og ýmsum sviðsbrellum á afar hugmyndaríkan hátt. Allir sem komu að þessari sýningu eiga hrós skilið en Marta fær tilnefningu sem leikstjóri hennar. Framhald á næstu síðu  VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.