Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Síða 6
6 Fréttir Vikublað 10.–12. nóvember 2015
Frúin í Hamborg
með 500 milljarða
n Stöðugleikaframlag slitabúanna í samhengi n Dygði til að gera stærstu sveitarfélögin skuldlaus
S
litabú Kaupþings, Glitnis og
Landsbankans (LBI hf.) hafa
fallist á stöðugleikaskilyrði
stjórnvalda og munu greiða
alls 491 milljarð króna til
ríkissjóðs í formi stöðugleikafram
lags, skattgreiðslna auk endur
heimtu Eignasafns Seðlabanka Ís
lands (ESÍ) frá búunum þremur. Frá
þessu var greint í lok síðasta mánað
ar. En hversu há upphæð er tæpir
500 milljarðar í raun? Hefðbundnu
launafólki er fyrirgefið þó að það
missi alla jarðtengingu þegar svim
andi háar upphæðir sem þessar eru
til umræðu. DV ákvað því, lesendum
til glöggvunar, að setja þær fjárhæð
ir sem hér er um að tefla í samhengi
við aðrar en hugsanlega skiljan
legri stærðir í íslensku efnahagslífi
og raunveruleika. Bæði til gagns og
gamans. Eins konar Frúin í Ham
borg með 500 milljarða.
Líklega mun meira
Stöðugleikaframlagið umtalaða
skiptist í þrennt. Um er að ræða 379
milljarða í framsali ýmissa eigna
frá slitabúunum, til dæmis reiðufé,
hlutafé í innlendum fyrirtækjum og
kröfur á fyrirtæki og sveitarfélög. 30
milljarðar eru í formi bankaskatts
og 81 milljarður í gjaldeyrisendur
heimtur ESÍ úr búunum sem mun
fara til ríkisins.
Þá ber einnig að hafa í huga að
bókfært virði þessara innlendu eigna
og krafna sem slitabúin framselja til
stjórnvalda er mun lægra en nafn
verð þeirra. Það eru talsverðar líkur
taldar á því að verðmæti þeirra
muni reynast umtalsvert meira en
bókfærða virðið segir núna til um.
Þannig er gert ráð fyrir því í sviðs
mynd Seðlabankans að ef endur
heimtur þessara eigna verði 15 pró
sent meiri en sem nemur bókfærðu
virði, þá muni stöðugleikaframlagið
verða 599 milljarðar króna.
Mætti reka Landspítala í áratug
En ef við höldum okkur við upp
hæðina 500 milljarða þá er ljóst að
umtalsvert mætti afreka fyrir slíka
fjárhæð, þó að ljóst verði að þeir
peningar sem fást í gegnum stöð
ugleikaframlagið muni renna til að
grynnka á skuldum ríkissjóðs yfir til
tekið tímabil og hér sé ekki um ein
greiðslu í reiðufé sem hægt verði að
nota allt í einu.
Það mætti til dæmis reka
Landspítalann í áratug, miðað við að
samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 2016 fær hann rétt tæplega 50
milljarða króna á næsta ári. Raunar
mætti reka heilbrigðiskerfið í heild í
rúm þrjú ár fyrir þessa upphæð þar
sem gert er ráð fyrir að tæpir 160
milljarðar renni til heilbrigðismála í
fjárlagafrumvarpinu. Bora mætti 40
Vaðlaheiðargöng sem áætlanir gera
ráð fyrir að muni kosta tæpa 12,5
milljarða króna og þá mætti greiða
upp skuldir 11 stærstu sveitar
félaganna á Íslandi sem námu í fyrra
rúmum 452 milljörðum króna.
Eins og aukafjárlög
Og fyrst við erum að tala um skuldir
og kröfur þá myndi upphæðin ekki
duga til að dekka tvær af umtöl
uðustu skuldum síðari ára; skuldir
ríkissjóðs og upprunalegu Icesave
kröfuna. Í september 2015 námu
skuldir ríkissjóð 1.399 milljörðum
króna en grynnka mætti hraustlega
á þeim skuldum, niður í um 900
milljarða fyrir stöðugleikaframlagið
og allt sem því tilheyrir. Þá nam
upprunalega Icesavekrafan, sælla
minninga, rúmum 1.300 milljörðum
króna. Það kannski segir mikið um
hversu há sú krafa var á sínum tíma,
að stöðugleikaframlagið myndi
samt sem áður skilja eftir 800 millj
arða gat þar.
Þá mætti einnig líta svo á að með
stöðugleikaframlaginu sé íslenska
ríkið að fá nærri heil aukafjárlög því
samkvæmt áðurnefndu fjárlaga
frumvarpi fyrir árið 2016 er gert ráð
fyrir að gjöld ríkissjóðs á næsta ári
verið 681 milljarður. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Svona líta 500
milljarðar út
St
öð
ug
le
ik
af
ra
m
la
gi
ð:
500
milljarðar
Gj
öl
d
rík
is
sj
óð
s:
*
681
milljarður
159,9
milljarðar
49,9
milljarðar
146,9
milljarðar
74,4
milljarðar
Sk
ul
di
r 1
1 s
tæ
rs
tu
sv
ei
ta
rf
él
ag
a:
He
ild
ar
sk
ul
di
r r
ík
is
sj
óð
s:
1.399
milljarðar
1.300
milljarðar
Va
ðl
ah
ei
ða
rg
ön
g:
12,5
milljarðar
**
H
ar
pa
:
17,5
milljarðar
**
8
milljarðar
**
32
milljarðar
* Skv. fjárlagafrumvarpi 2016 ** Áætlað
Mætti gera æði margt
Svona líta 500 milljarðar út í
samanburði við ýmis útgjöld
og skuldir. Mynd Sigtryggur Ari
Up
pr
un
al
eg
a I
ce
sa
ve
-k
ra
fa
n:
452
milljarðar
Va
xt
ag
jö
ld
rí
ki
ss
jó
ðs
:*
Al
m
an
na
tr
yg
gi
ng
ar
o
g
ve
lf
er
ða
rm
ál
:*
Re
ks
tu
r L
an
ds
pí
ta
la
ns
:*
He
ilb
rig
ði
sm
ál
:*
Ný
ja
r h
öf
uð
st
öð
va
r L
an
ds
ba
nk
an
s:
Ný
A
irb
us
A
33
0-
30
0
br
ei
ðþ
ot
a:
gríðarháar fjárhæðir Bora mætti 40 Vaðlaheiðargöng sem áætlanir gera ráð fyrir að
muni kosta tæpa 12,5 milljarða króna.
ATN Zebra 16
Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin
• Diesel
• Vinnuhæð: 16,4m
• Pallhæð: 14,4m
• Lágrétt útskot: 9,3m
• Lyftigeta: 230kg
• Aukabúnaður: Rafmagns-
og lofttenglar í körfu.
• Til afgreiðslu strax
Ýmsar aðrar ATN spjót- og
skæralyftur til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara.