Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Qupperneq 12
Vikublað 10.–12. nóvember 201512 Fréttir
Ótti og upplausn ef
Ásta verður sakfelld
n Hjúkrunarfræðingar íhuga hvort þeir treysti sér í starfið í ljósi ákæru
Þ
að er ákveðinn skaði skeður
með ákærunni, en ef því
verður fylgt eftir með sak
fellingu þá býð ég ekki í það
ástand. Þá á ég ekki bara
við varðandi hjúkrunarfræðinga
heldur öryggismenningu spítalans og
mönnun heilbrigðisstétta yfir höfuð,“
segir Guðríður Kr. Þórðardóttir, for
maður hjúkrunarráðs Landspítalans,
sem er líkt og ótal heilbrigðisstarfs
menn á Íslandi í dag uggandi yfir
þeim möguleika að hjúkrunar
fræðingurinn Ásta Kristín Andrés
dóttir verði hugsanlega sakfelld fyrir
manndráp af gáleysi í starfi.
Ástu er gefið að sök að hafa láðst
að tæma loft úr belg barkaraufar
rennu þegar hún tók Guðmund
Má Bjarnason úr öndunarvél og
setti hann á svokallaðan talventil 3.
október 2012 með þeim afleiðing
um að hann kafnaði. Aðalmeðferð í
máli ríkissaksóknara gegn hjúkrunar
fræðingnum og Landspítalanum lauk
í síðustu viku og voru henni gerð ítar
leg skil í helgarblaði DV.
Íhuga uppsagnir
Varað hefur verið afleiðingum og því
hættulega fordæmi sem ákæran, svo
ekki sé talað um hugsanleg sakfellingu
í málinu, gæti haft á heilbrigðiskerfið.
Ljóst er að fjölmargir hjúkrunar
fræðingar og heilbrigðisstarfsmenn
eru hugsi yfir stöðu sinni og hefur
DV heimildir fyrir því að einhverjir
íhugi uppsagnir ef til sakfellingar
kemur. Guð ríður segir að hún hafi ekki
persónulega heyrt hjúkrunarfræðinga
segja að þeir ætli að segja upp unn
vörpum.
„En það sem að ég hef séð, og við
erum búin að vera að tala um undan
farin ár, er að hjúkrunarfræðingar eru
að flýja spítalann einmitt vegna þess
að þeim finnst þeir ekki geta veitt eins
góða hjúkrun og þeir vildu og hafa
metnað til vegna álags, manneklu og
undirmönnunar.“
Hvað er að veði?
Guðríður segir að á sumum deildum
Landspítalans sé sífellt verið að
hringja og bjóða aukavaktir og það sé
verulega íþyngjandi og þessu fylgi sí
fellt ónæði á frítíma.
„Auðvitað er maður hræddur um
að ef það er þetta sem er að veði, frels
issvipting og fjölskyldur okkar. Það
firrir sig enginn ábyrgð, en reyndir
hjúkrunarfræðingar eru að flýja spít
alann vegna þess að þeir treysta sér
ekki til að tryggja öryggi sjúklinga við
þessar aðstæður.“
Undir þetta tekur Ólafur Guðbjörn
Skúlason, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. „Ég veit að margir
eru að hugsa um hvort þeir treysti sér
til að vinna við hjúkrun eftir þetta [mál
Ástu, innsk. blm.]. Þeim eru skapað
ar þannig aðstæður að þeir geta ekki
sinnt starfinu eins og þeir vilja og
spyrja sig hvort þeir séu reiðubúnir að
leggja líf sitt að veði.“
Guðríður segir að þessi staða sé
nokkuð sem hjúkrunarfræðingar hafi
bent á í mörg ár og það sem kjarabar
átta þeirra hafi að miklu leyti snúist
um í sumar. „Þessi reiði hjúkrunar
fræðinga vegna sinnuleysis stjórn
valda til að mæta kröfum hjúkrunar
fræðinga til að auka nýliðun í starfinu
og þar fram eftir götunum. Fólk var
kannski ekkert að átta sig á því að
þetta var eitt af því sem hvíldi hvað
þyngst á fólki.“
Mun leiða til þöggunar
En hvaða stöðu myndi það setja hjúkr
unarfræðinga í ef Ásta Kristín yrði
sakfelld? Guðríður kveðst sannfærð
um að það myndi setja ákveðið for
dæmi og hafa áhrif á öryggismenningu
spítalans. „Að því leyti að það verð
ur þöggun. Maður er hræddur um að
alvarlegum atvikum yrði frekar sópað
undir teppið. Að þetta fari ekki í þessar
atvikaskráningar, rótargreiningar, fólk
fari frekar að hugsa um; gæti ég lent
í því að verða bara ákærð? Gæti þetta
orðið að lögreglumáli? Og það á ekki
bara við um hjúkrunarfræðinga heldur
lækna að sjálfsögðu líka. Þarna er bara
verið að taka einn heilbrigðisstarfs
mann sem vinnur undir miklu álagi
og ber ábyrgð á lífi fólks og það firrir
sig enginn þeirri ábyrgð en eins og hef
ur margoft komið fram í þessu máli þá
er þetta röð atvika sem orsakast af of
miklu álagi. Kerfisvillu í rauninni.“
Ótti og óöryggi
Þó að ekki liggi staðfest fyrir hvort til
hópuppsagna komi vegna málsins þá
segir Guðríður ljóst að því fylgi „rosa
legt óöryggi“ sem hafi raunar verið
við lýði lengi en aukist í við þetta.
„Eins og að skvetta olíu og eld og
maður er hræddur um hvers lag for
dæmi er verið að setja í heilbrigðis
kerfinu ef hún verður sakfelld.“
Ólafur Guðbjörn segir að að
stæður hjúkrunarfræðinga fylgi ekki
þeirri miklu ábyrgð sem starfinu fylgi.
„Rannsóknir hafa sýnt að með því að
manna vel með hjúkrunarfræðingum
þá deyr fólk síður, fylgikvillum fækkar
og sjúklingar útskrifast fyrr. Sjúkling
um farnast í raun bara betur. Ef þú
ert að vinna þarna, með allt of fáum
hjúkrunarfræðingum, með allt of
veikum sjúklingum og í allt of lélegu
húsnæði þá er þér ekki gert kleift að
sinna hjúkruninni sem þú vilt sinna.
Hjúkrunarfræðingar vilja ekki lenda í
þeim aðstæðum að gera óvart mistök
út af umhverfinu og einhver deyr.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Safnað fyrir Ástu Kristínu
„Þetta hefði getað verið ég,“ hugsa flestir heilbrigðisstarfsmenn
Hjúkrunarfræðingar og heilbrigðisstarfs-
menn hafa fylkt liði og standa sameinaðir
að baki Ástu Kristínu og vörn hennar í
málinu. Á föstudag stofnaði hjúkrunar-
fræðingurinn Helga Rósa Másdóttir Face-
book-stuðningshópinn „Samhugur í verki“
sem á fimmta þúsund manns hafa þegar
gengið í. Þar hefur rignt inn stuðningsyfirlýs-
ingum og samhugurinn augljóslega mikill.
Helga Rósa stofnaði þar að auki styrktar-
reikning fyrir Ástu en fram kom við aðalmeðferð málsins að það hafi reynst henni afar
þungbært.
„Ætla má að flestir sem unnið hafa í heilbrigðiskerfinu síðustu misseri geti sett sig í
spor ákærðu,“ skrifar Helga. Þá hefur stuðningsyfirlýsingum frá heilbrigðisstarfsfólki
birst undir umræðumerkingunni #ÞettaHefðiGetaðVeriðÉg sem er einmitt það sem ótal-
margir heilbrigðisstarfsmenn sem sinna starfi sínu undir gríðarlegu álagi hugsa þegar
þeir kynna sér mál og ákæruna á hendur Ástu Kristínu.
Þeir sem vilja taka þátt í að styrkja Ástu geta lagt inn upphæð eftir getu og vilja á
eftirfarandi reikning sem verður opinn til 15. desember næstkomandi. Þá verður henni
færð upphæðin sem safnast hefur. Fram kemur að um einstaklingsframtak sé að ræða
sem gert sé með vitund forystu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ástu:
Samhugur
Reikningsnúmer: 0546-14-404044 - Kennitala: 060779-4659
Lífið að veði? Ólafur Guðbjörn Skúlason,
formaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, segir aðstæður þannig að hjúkr-
unarfræðingar geti ekki sinnt starfi sínu sem
skyldi og spyrja þeir sig því hvort þeir séu
reiðubúnir að leggja líf sitt að veði.
Nýtur mikils stuðnings Ásta Kristín Andrésdóttir sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi í starfi. Málið skekur nú þegar laskað heilbrigð-
iskerfi en samhugur og stuðningur í garð Ástu meðal samstarfsfólks og kollega er óumdeilt. MyNd Sigtryggur Ari„Ef því verður fylgt
eftir með sakfell-
ingu þá býð ég ekki í það
ástand.