Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Qupperneq 20
Vikublað 10. nóvember–12. nóvember 20154 Betri borgarar - Kynningarblað
Pörusteikarborgari, góð tónlist
og Lebowski-þemað svíkja engan
„Hef enn engan hitt sem hatar þetta þema“
A
rnar Þór Gíslason á Le-
bowski-bar segir að aðdrag-
andinn að stofnun staðar-
ins hafi verið afar langur,
en þema staðarins er hins
vinsæla og sígilda kvikmynd Cohen-
bræðra, The Big Lebowski: „Staðurinn
var í raun átta ár í vinnslu. Búið að spá
mikið í þetta enda algjörlega nýtt hér á
landi að tileinka einn veitingastað til-
tekinni kvikmynd. Tónlistin hérna er
þannig að engum líkar illa við hana,
þetta eru bara lög frá tímabilinu 1960
til 1980. Það er enginn annar staður
sem fókuserar bara á þessa tónlist.
Aldurshópurinn hérna er líka breiður
eða allt frá 20 upp í 70 ára. Stundum
er þetta eini staðurinn í bænum með
dansgólf á mánudags- og þriðjudags-
kvöldum en þá erum við stundum
með um 100 manns á dansgólfinu og
fullsetinn stað.“
Arnar segir að vegna Lebowski-
þema staðarins dragi hann að mjög
marga útlendinga:
„Hérna eru daglega um 300–500
manns fyrir utan að taka myndir af
staðnum og margir koma til að fá sér
borgara eða sjeik. Þetta er staður með
ákveðið þema og enn hef ég engan
hitt sem líkar ekki við þetta þema.“
Arnar segir að gestir komi á mjög
mismunandi tímum. Kvöldin eru vin-
sæl, ekki síst vegna fótboltaleikja en
fótboltinn er sýndur á sex risaskjám.
„Við erum með dj á hverju kvöldi
og náum alltaf að keyra upp stemn-
ingu. Síðan erum við með „pub quiz“
með kvikmyndaspurningum. En há-
degin eru líka mjög sterk hjá okkur.
Þá koma hingað ferðamenn, fólk sem
vinnur í miðbænum og svo skólafólk.“
Nautalundarborgari og
pörusteikarborgari
„Hakkið okkar er sérblandað og
brauðin sérbökuð. Það er alvöru
100% nautakjöt í þessu og fitumagn-
ið er sérblandað fyrir okkur. Ham-
borgararnir okkar falla virkilega í
kramið og fólk er jafnvel að taka með
borgara, birgja sig upp af hamborgur-
um fyrir útileguna og þess háttar.“
Arnar segir að af öðrum ólöstuð-
um sé nautalundarborgarinn vin-
sælastur:
„Hann er stærri og með aukafitu-
innihaldi sem gerir hann sérstaklega
safaríkan. Hann er stærri og veglegri
en hinir og er bara kóngurinn. Að
mínu mati sá besti á Íslandi. Síðan
eru beikonborgarinn og ostborgarinn
hefðbundni líka vinsælir, auk þess
erum við með Honey-Boo kjúklinga-
borgarann.“
Arnar segir að Lebowski-barinn
reyni að selja sína hamborgara eins
ódýrt og mögulegt er og treysti frem-
ur á að selja mikið magn.
„Auk þess erum við með ham-
borgara mánaðarins sem er breyti-
legur. Núna er framundan jólaborgar-
inn, sem er pörusteikarborgari. Hann
verður á boðstólum um miðjan nóv-
ember. Þetta er alvöru pörusteik
með skorpu og sultaður rauðlaukur
og fleira tilheyrandi. Þetta vill kúnn-
inn að við séum með helst allt árið,
sem er vel skiljanlegt, en það eru ekki
alltaf jólin.“ n