Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Qupperneq 23
Vikublað 10. nóvember–12. nóvember 2015 Kynningarblað - Betri borgarar 7
Klassískir hamborgarar með
ekta Hlöllafíling í bragðinu
Með hinni einstöku Hlöllasósu
H
löllabátar hafa svo sannar-
lega unnið hug, hjörtu og
maga svangra Íslendinga því
fyrirtækið heldur upp á 30
ára afmæli á næsta ári sem
verður fagnað með miklum glæsi-
brag. Hlöllabátar eru nú á sex stöð-
um á landinu: Akureyri, Selfossi,
Keflavík, Smáralind, Faxafeni og Ing-
ólfstorgi.
Hlöllabátar voru stofnaðir árið
1986 og hafa alla tíð síðan notað ís-
lenskt úrvalshráefni við framleiðslu
á ferskum og bragðgóðum skyndi-
bita á góðu verði. Brauðin í réttunum
eru bökuð á hverjum degi úr úrvals-
hráefni.
Hlöllabátar láta ekki sitt eftir liggja
í hamborgurum: „Við erum með
klassíska góða hamborgara úr 100%
ungnautakjöti frá Kjötsmiðjunni,
ekkert blandað. Við erum með fjór-
ar tegundir af hamborgunum: venju-
legan hamborgara, beikonborgara,
barbeque-borgara og grísaborgara,
sem er svona pulled-pork, þetta er
hægeldað svínakjöt sem er baðað í
barbeque-sósu og síðan sett í borg-
arabrauð,“ segir Helgi Guðmundsson
hjá Hlöllabátum.
„Okkar sérstaða er klárlega
sú að á okkar hamborgurum er
Hlöllasósa, ekki þessi venjulega
hamborgarasósa. Uppskriftin er ekki
gefin upp en það er mikið af leyndar-
málum í henni. Hún gefur einstakt
bragð og færir fólki þennan Hlölla-
fíling líka þegar það fær sér borgara
hjá okkur,“ segir Helgi.
Viðskiptavinahópur Hlöllabáta er
fjölbreyttur. Á Ingólfstorgi er staður-
inn opinn frá 10.00 til 2.00 á virkum
dögum og til 6.00 um helgar. Mikið af
fólki á djamminu fær sér þá í svanginn
en á daginn kemur mikið af skólafólki
og vinnandi fólki í nágrenninu.
„Á hinum stöðunum, til dæmis í
Smáralind og Faxafeni, er stemningin
önnur, þar er mikil fjölskyldustemn-
ing, enda eru þetta miklu stærri stað-
ir, um 150 fermetra salir,“ segir Helgi.
Helgi vill meina að verð sé mjög
hagstætt á Hlöllaborgurum. Þannig
má fá hamborgaratilboð með öllu á
1.590 krónur. n