Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Blaðsíða 27
Vikublað 10.–12. nóvember 2015 Lífsstíll 19
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
Næg bílastæði við
Kolaportið
Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A
Plankaparket
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Þýsk gæði!
Þ
egar fólk heyrir orðið fram-
hjáhald hugsa flestir með
sér að um sér að ræða kyn-
ferðislegt samneyti við ann-
an en maka. Það er vissu-
lega grófasta gerð framhjáhalds,
en það er ýmislegt annað sem get-
ur talist til svika við maka eða er að
minnsta kosti á gráu svæði þegar
kemur að tryggð. Þetta er kannski
eitthvað sem sá sem stundar fram-
hjáhaldið eða svikin áttar sig ekki
á fyrr en honum er bent á það. En
annað er augljóst, eins og lygar eða
daður við vinnufélaga. Það getur
verið gott að grípa í taumana áður
en það er um seinan. Hér eru nokk-
ur dæmi um hegðun sem telst vera á
gráu svæði ef þú vilt vera trú/r maka
þínum.
Leynileg sambönd
Flestir eiga í vinasamböndum við
aðra en maka, enda er það í flest-
um tilfellum fullkomlega eðlilegt
og jafnvel nauðsynlegt. Stundum
er um að ræða vinskap við fyrrver-
andi maka, vinnufélaga eða einfald-
lega æskuvini sem við deilum okkar
dýpstu leyndarmálum með. En um
leið og þú ferð að laumast til að eiga
í samskiptum við þessa einstaklinga,
eða þér finnst einhver þeirra full-
nægja tilfinningalegum þörfum þín-
um, þá er eitthvað að. Það er gott að
spyrja sig hvort maður myndi haga
sér alveg eins með viðkomandi ef
makinn væri viðstaddur, og ef svarið
er nei þá ertu líklega á hættusvæði.
Að fela peninga
Mörg pör eru með sameiginlega
bankareikninga og því getur verið
erfitt að fela eyðsluna. En þeir sem
ætla sér að leyna makann í hvað
peningarnir fara, þeir finna leið-
ir til þess. Peningamál valda allt að
70 prósent rifrilda á milli para og
það er einfaldlega þannig að ef þú
eyðir peningum í eitthvað og lýgur
að maka þínum varðandi það, eða
einfaldlega leynir meðvitað í hvað
þú eyðir, þá er það ákveðin gerð af
svikum.
Sífellt að kvarta yfir makanum
Auðvitað kemur það fyrir að við
ræðum lesti maka okkar við annað
fólk, sérstaklega vini. Og það er í
góðu lagi að ræða slíkt ef það gerist
stöku sinnum. En um leið og þú ert
ítrekað að setja út á maka þinn við
aðra, þá er eitthvað að. Að vera sí-
fellt að tala um hvað þér finnst mak-
inn latur, óaðlaðandi, leiðinlegur,
ósanngjarn eða eitthvað í þeim dúr
er ekki bara vanvirðing við hann
heldur vakna þá líka upp spurn-
ingar af hverju þið eruð í sambandi
yfir höfuð.
Niðurlægja fyrir framan aðra
Ef þú ert stanslaust að gera lítið úr
maka þínum eða niðurlægja með
kaldhæðnum athugasemdum og lé-
legu gríni fyrir framan aðra þá er lík-
legt að eitthvað sé að í sambandinu.
Þetta er særandi þrátt fyrir að maki
þinn reyni að bera sig vel. Með
þessari hegðun ertu bókstaflega að
segja að þú berir ekki virðingu fyrir
sambandi ykkar.
Tilfinningalegur óheiðarleiki
Slík svik geta verið af ýmsum gerð-
um. Allt frá því að segjast vilja vera í
sambandi með einhverjum sem þú
ert ekki viss um að þú elskir, til þess
að segjast vera sáttur við eitthvað
sem þú ert ekki sáttur við. Að gera
sér upp fullnægingu myndi falla
undir slík svik. Ef þú gerir eitthvað
eða segir eitthvað í samskiptum við
maka þinn sem þú veist innst inni
að þú ert ekki sátt/ur við, þá eru það
óheiðarlegt.
Neita að ræða hlutina
Að neita eða nenna ekki að ræða
mikilvæga hluti við makann er ekki
bara ein gerð af svikum heldur er
sambandinu í raun haldið í gíslingu
á meðan ástandið er þannig. Að
vera sífellt að ræða mál úr fortíðinni
sem þið bæði tölduð afgreidd skap-
ar svipaða spennu í sambandinu og
er aldrei til góðs. n
ritstjorn@dv.is
Ert þú óheiðar-
legur maki?
Framhjáhald og svik geta verið með ýmsum hætti
Virtu sambandið Ef þú ert sífellt
að niðurlægja maka þinn fyrir fram-
an aðra og gera lítið úr honum, þá
sýnirðu sambandinu vanvirðingu.
S
amkvæmt nýrri bandarískri
rannsókn er ungt fólk öfund-
sjúkara en það eldra. Rann-
sóknin var framkvæmd af
prófessor Christine Harris og út-
skriftarnemanum Nicole Henniger í
Kaliforníuháskólanum í Dan Diego
og birtist í tímaritinu Basic and App-
lied Social Psyschology.
Öfund er dauðasynd
Harris og Henniger segja tilgang
rannsóknarinnar að hluta til kom-
inn vegna þess að öfund sé oft talin
upphaf að fjölda skelfilega atburða.
Í rannsókninni kemur fram að ungt
fólk öfundar aðallega jafnaldra sína
af sama kyni. „Öfund getur verið sterk
tilfinning,“ segir Harris og bætir við
að kristin trú setji hana til að mynda
á meðal dauðasyndanna sjö.
Meira en þrír fjórðu hlutar að-
spurðra í rannsókninni höfðu upplif-
að öfund á síðastliðnu ári eða 79,4%
kvenna og 74,1% karla. Upplifunin
virtist minnka með aldrinum en 80%
yngri en 30 ára höfðu upplifað öfund
á síðustu tólf mánuðum en 69% í hópi
fólks eldra en fimmtíu ára.
Flestir reyndust öfunda einstak-
linga af sama kyni. „Það kom okkur á
óvart. Konur öfunda helst aðrar konur
og karlar aðra karla. Maður hefði get-
að ímyndað sér að konur myndu
frekar öfunda karla þegar kæmi að
fjárhagsstöðu en það var sjaldnast
þannig,“ lét Henniger hafa eftir sér.
Fegurð og ástarævintýri
Samkvæmt rannsókninni öfunda
flestir aðra einstaklinga á svipuðu
aldursreki en öfund breyttist með
aldrinum. Yngra fólk mældist helst
öfundsjúkt vegna útlits, ástarævin-
týra, námsárangurs og félagslegrar
stöðu. Til að mynda sögðust 40%
þátttakenda í hópnum yngri en 30 ára
hafa öfundað aðra vegna ástarævin-
týra en færri en 15% þeirra í
hópnum 50 ára og eldri.
Það góða við öldrun
Öfund vegna peninga og
starfstitla mældust algeng á
meðal allra hópa en mæld-
ist þó meiri hjá eldri einstaklingum.
Höfundar rannsóknarinnar segja
sjaldnast mikinn mun á kynjunum
en þó voru fleiri karlar sem öfunduðu
aðra karla vegna atvinnustöðu og
fleiri konur en karlar sem öfunduðu
aðrar konur vegna útlits.
Harris og Henniger geta ekki skil-
greint hvort munurinn á aldursflokk-
unum sé tilkominn vegna
þroska eða mismunandi kynslóða.
„Hvor tveggja útskýringin er áhuga-
verð en við þurfum nýja stóra rann-
sókn til að skera úr um það. Ég hef
samt á tilfinningunni að takið sem öf-
und hefur á fólki minnki með aldrin-
um. Ég held að þetta séu góðu frétt-
irnar er kemur að öldrun,“ lét Harris
hafa eftir sér. n
Ungt fólk öfundsjúkara Öfundsverður? Margir karlar öfunda aðra karla á svipuðum aldri vegna atvinnustöðu þeirra