Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Blaðsíða 28
Vikublað 10.–12. nóvember 201520 Menning
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
L
ilja Guðmundsdóttir sópran
mun syngja á fyrstu sólótón-
leikunum í hádegistónleikara-
röð Íslensku óperunnar í dag,
þriðjudaginn 10. nóvember. Tón-
leikaröðin sem nefnist Kúnstpása er
haldin í Norðurljósasal Hörpu í vetur
og eru hverjir tónleikar um hálftími
að lengd og kostar 1.500 krónur inn.
Lilja er nýútskrifuð með hæstu
einkunn úr meistaranámi í söng við
Konservatorium Wien í Vínarborg. Á
meðan hún var í náminu söng hún
einnig með Íslensku óperunni, bæði
í Carmen og Peter Grimes.
Tónleikarnir eru hins vegar fyrstu
sólótónleikar Lilju hjá óperunni frá
því að hún lauk náminu. Hún mun
syngja sönglög og aríur til heiðurs
konum í tilefni af einnar aldar afmæli
kosningaréttar íslenskra kvenna.
Píanóleikarinn Antonia Hevesi mun
sjá um undirleik.
„Ég valdi mér þemað „móðir,
kona, meyja“ í tilefni af þessu mikla
kvennaári. Ég er að fara að takast
á við hin ólíku kvenhlutverk tón-
bókmenntanna. Þarna eru mæður,
tengdamæður, gyðjur og femínistar.
Ég er að syngja þetta þema en er líka
að velja margt af því sem ég hef verið
að takast á við í náminu og hef ekki
sungið hérna heima áður,“ segir Lilja.
„Ég hef verið heppin að fá tæki-
færi bæði hjá óperunni hérna heima
og úti. En fram undan er bara að fara
í fjöldann allan af prufum og reyna að
koma stóru tánni inn í bransann.“ n
Lilja syngur í Kúnstpásu
Mæður, konur og meyjar
Mæður, konur, meyjar
Lilja Guðmundsdóttir
sópran og Antonia Hevesi
píanóleikari leika saman í
Norðurljósasal Hörpu.
Mynd Sigtryggur Ari
Furðulegt og frábært
n Airwaves fór fram um helgina n Battles, SOPHIE, Sleaford Mods, Úlfur Úlfur, The Pop Group og fleiri
I
celand Airwaves 2015 lauk með
tónleikum Hot Chip og FM Belfast
í Vodafone-höllinni á sunnu-
dagskvöld. Hátíðin var gríðarlega
vel heppnuð. Þrátt fyrir rigningu
var veðrið betra en oft áður og með
fleiri tónleikasölum í stærri kantinum
– NASA sneri aftur og Gamla Bíó
var notað í annað sinn – og góðri
skipulagningu tókst hátíðarhöldurum
að koma í veg fyrir martraðarkenndar
sögur um endalausar biðraðir. Tíma-
setningar stóðust betur en stundum
áður og jafnvel þegar smávægilegar
tafir urðu – eins og á lokakvöldinu –
var upplýsingaflæðið gott í gegnum
Airwaves-smáforritið.
Óþægilegar mínútur
Hátíðin hófst með kraftmiklu mið-
vikudagskvöldi þar sem GKR, Kött
Grá Pjé og Misþyrming voru í sér-
stöku uppáhaldi hjá blaðamanni
DV. Á fimmtudeginum voru helstu
hápunktarnir á ljóða- og tónlistar-
kvöldinu Airwords í Kaldalóni. Sveim-
andi organísk og handknúin raftón-
list Arnljóts, með dreymandi orgeli
og þverflautuleik, hélt manni í heljar-
greipum. Flutningur ljóðskáldsins
Ástu Fanneyjar og tveggja aðstoðar-
manna var líklega óþægilegustu mín-
útur helgarinnar, og tókst henni að
hræra frekar duglega upp í vænting-
um um hvað má á tónleikahátíðum.
Furðulegt og frábært.
Seinna um kvöldið hrökklaðist
blaðamaður líkt og fjölmargir tón-
leikagestir út af tónleikum indífólk-
kóngsins Father John Misty í Silfur-
bergi þar sem hljóðið var til mikilla
vandræða. Hljóðfæraleikurinn rann
saman í eina leðju og óbærilegt há-
tíðnihljóð eyðilagði upplifunina af
fyrstu lögunum. Kannski lagaðist
hljóðið þegar leið á tónleikana.
En það gerði þó ekki mikið til því
að í næsta sal var The Pop Group,
fimmtugar breskar verkamannatýpur
að spila sturlað danspönk, með póli-
tískum hrópum og vídeólist í bak-
grunni. Það var fámennt á tónleikum
þessarar goðsagnakenndu síðpönk-
sveitar en allir sem voru inni virtu-
st dýrka bandið og sungu með: „We
are all prostitutes,“ og svo framvegis.
Einar Örn dansaði fremstur meðal
jafningja í áhorfendaskaranum, Dr.
Gunni kinkaði letilega kolli í takt við
músíkina og David Fricke, tónlistar-
blaðamaður Rolling Stone, brosti sínu
breiðasta.
raftónlist fyrir gítarnörda
Á föstudag var Úlfur Úlfur frábær í
Hafnarhúsinu. Þeir eru orðnir óum-
deildir konungar íslensks hiphops,
sem er hætt að
elta bara megin-
straum banda-
rísks rapps og
farið að mótast
út frá hreyfigetu
íslenskrar tungu
og hugmynda-
heimi. Agent
Fresco-strák-
arnir sáu um
hljóðfæraleik
og voru þéttir
eins og við var
að búast og
gestirnir Emmsjé Gauti og Kött Grá
Pje keyrðu upp stemminguna. Salur-
inn söng með fullum hálsi. Furðu-
veran Ariel Pink og hljómsveit hans
Haunted Graffiti héldu þá eftirminni-
lega tónleika í Silfurbergi.
Á laugardagskvöld spilaði banda-
ríska raddlausa rokkbandið Battles
sína sérstöku blöndu súrkálrokks og
raftónlistar fyrir gítarnörda. Tveir
gítar leikarar með lúpp-pedala og
hljómborð, og trommuleikarinn á milli
þeirra fremst á sviðinu. Dansvænt en á
sama tíma gott til að horfa á og strjúka
skeggrótina spekúlerandi.
danspopp framtíðarinnar
Breski raftónlistarmaðurinn SOPHIE
spilaði magnað sett á NASA. Hann
lék síðast á Íslandi í febrúar á sónar-
danstónlistarhátíðinni í Hörpu. Þá
virtist fólk ekki vera búið að kveikja
almennilega á honum, en núna var
NASA stappfullur og þurftu einhverjir
frá að hverfa. SOPHIE var ofursvalur
í framtíðarlegum pleðurjakka og með
rauðan topp slútandi yfir andlitið. Sú
sérstaka blanda helíumraddaðs fram-
tíðarpopps, tölvuleikjatónlistar og
súrrar tilraunakenndrar danstónlistar
sem er oft kennd við vini SOPHIE í út-
gáfufyrirtækinu PC Music er smám
saman að smitast inn í meginstraum-
inn, en SOPHIE pródúseraði lag
með Madonnu fyrr á árinu. Þó að
melódíurnar séu sykursætar og gríp-
andi var ekki gerð nein tilraun til að
halda taktinum gangandi eða gera
áhorfendum auðvelt fyrir að dansa.
Fólk lét stöðug uppbrot og hraða-
breytingar þó ekki hafa áhrif á sig og
dansaði til að gleyma.
Sleaford Mods var í mestu upp-
áhaldi hjá blaðamanni á þunnum
sunnudegi í Vodafone-höllinni. Það
gerist ekki mikið einfaldara. Tveir
breskir dúddar, annar ýtir á „play“
á tölvunni og drekkur bjór á meðan
hinn rappar mikinn reiðilestur um
stöðuna í heiminum með aust-mið-
enskum hreim og óhefluðu verka-
mannablóti. Endurtekinn einfaldur
trommutaktur og sami bassastrengur-
inn yfirleitt sleginn allt lagið. Svo ein-
falt, svo gott. n
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
„Einar Örn dansaði
fremstur meðal
jafningja í áhorfenda
skaranum, Dr. Gunni kink
aði letilega kolli í takt við
músíkina og David Fricke,
tónlistarblaðamaður
Rolling Stone, brosti sínu
breiðasta.
Kvennakraftur Rapp-
gengið Reykjavíkurdætur
lék nokkrum sinnum á
hátíðinni og vakti að
venju mikið umtal.
Myndir ÞorMAr Vignir gunnArSSon
raftónlist fyrir
gítarnörda
Bandaríska tilraunarokk-
bandið Battles lék á
als oddi í Silfubergi á
laugardagskvöld.
geimglamúr Steinunn
Harðardóttir, DJ Flugvél og
Geimskip, lék bæði á fimmtu-
dag og sunnudagskvöld.
Sykur Agnes
Björt Andradóttir
og félagar spiluðu
dansvænt rafpopp
sitt í Hafnarhúsinu á
fimmtudagskvöld.