Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Síða 36
Vikublað 10.–12. nóvember 201528 Fólk
Ástir og Álög
í Hollywood
n Fæst hjónaböndin þola álagið n Enn eru þó nokkur sem virðast hamingjurík
F
yrir þá sem elska stjörnurnar
í Hollywood geta fréttir um
skilnað þeirra virkað eins og
fast högg í andlitið. Mörg-
um brá til að mynda í brún
þegar fréttir af skilnaði popp-
rokkhjónanna Gwen Stefani og
Gavin Rossdale birtust fyrr á ár-
inu sem og þegar skilnaður Blake
Shelton og Miröndu Lambert skók
sveitatónlistarheiminn á svipuðum
tíma. Á dögunum kom svo í ljós að
Shelton og Stefani eru nýjasta tón-
listarparið en þau eru einmitt bæði
dómarar í söngþættinum The Voice.
Notfærði sér ástandið
Stefani og Ross-
dale voru eitt
svalasta par
Hollywood í 13
ár en samkvæmt
netmiðlinum
Hollywood Life
tekur Rossdale,
sem er forsprakki
hljómsveitarinn-
ar Bush, fréttun-
um um samband
hans fyrrverandi
við sveitasöngvar-
ann með stóískri
ró. „Hann veit að
Blake er góður maður og það er það
mikilvægasta í hans huga. Hann á
náttúrlega þrjú börn með Gwen.
Hins vegar telur hann að Blake hafi
notfært sér hversu viðkvæm Gwen
var eftir skilnaðinn,“ hafði netmiðill-
inn eftir kunningja rokkarans.
Grátandi Lambert
Samkvæmt slúðurblöðunum á
Lambert hins vegar ekki sjö dag-
ana sæla. Hver fréttin af fætur
annarri hefur birst þar sem söng-
konan er sögð hafa verið með grát-
stafina í kverkunum á Country
Music Awards-hátíðinni sem haldin
var nokkrum klukkutímum eftir að
Shelton og Stefani opin-
beruðu samband sitt.
Dæmi um aðra
stjörnuskilnaði sem komu
eins og þruma úr heið-
skíru lofti hlýtur að vera
skilnaður leikaranna Bens
Affleck og Jennifer Garn-
er, raunveruleikastjarn-
anna Bruce Jenner og Kris
Jenner, tónlistarfólksins
Jennifer Lopez og Marcs
Anthony og ofurfyrirsætunnar Heidi
Klum og söngvarans Seal.
Farsælu hjónaböndin
Þrátt fyrir langan
lista skilnaða eru þó
enn til hjónabönd í
Hollywood sem virð-
ast ætla að halda
út þrátt fyrir álögin
sem virðast liggja á
ástum í Hollywood.
Efst á lista eru
leikarahjónin Calista
Flockhart og Harri-
son Ford, leikar-
inn Hugh Jack-
man og eiginkona
hans Deborra-Lee
Furness, leikara-
hjónin Sarah
Michelle Gellar og
Freddie Prinze Jr., Kyra Sedgwick og
Kevin Bacon, Goldie Hawn og Kurt
Russel, sveitatónlistarhjónin Faith
Hill og Tim McGraw og leikarahjón-
in Sarah Jessica Parker og Matthew
Broderick. n
Flott hjón
Bacon og Sedg
wick hafa verið
gift frá árinu
1988.
Kántrístjörnur Blake Sheldon og Miranda
Lambert eru þekktar sveitasöngvastjörnur.
Búið bless Skilnaður Heidi Klum og Seal kom mörgum á óvart.Jennifer Lopez og Mark Antony Erfiður skiln
aður.
Enn sterk saman Leikarahjónin Calista
Flockhart og Harrison Ford virðast enn
hamingjusöm.
Þegar allt lék í lyndi Gwen Stefani og
Gavin Rossdale höfðu verið saman í 13 ár.
Blússandi hamingja Leikarahjónin
Matthew Broderick og Sarah Jessica
Parker hafa verið gift frá 1997 og
saman mun lengur. Á myndinni eru
þau ásamt þremur börnum sínum.
Hugh Jack-
man og frú
Hjónin hafa
verið gift frá
árinu 1996.
Við elskum umslög
- en prentum allt mögulegt
• Nafnspjöld
• Reikninga
• Veggspjöld
• Bréfsefni
• Einblöðunga
• Borðstanda
• Bæklinga
• Markpóst
• Ársskýrslur
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is