Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2015, Qupperneq 38
Vikublað 10.–12. nóvember 201530 Fólk
Listaelítan gerði
sér glaðan dag
Sýning á verkum Nínu Sæmundsson opnuð í Listasafni Íslands
Á
föstudag var opnuð sýning
á verkum listakonunnar
Nínu Sæmundsson – Listin
á Hvörfum – í Listasafni Ís-
lands. Nína var fyrsta ís-
lenska konan sem gerði höggmynda-
list að ævistarfi. Fjölmargir gerðu sér
leið í Listasafnið og var það frú Vig-
dís Finnabogadóttir sem fékk þann
heiður að opna sýninguna, sem
stendur yfir fram til 17. janúar. Sýn-
ingarstjóri er Hrafnhildur Schram. n
Glæsilegar konur Sýningarstjórinn, Hrafnhildur Schram, stillti sér upp með frú Vigdísi
Finnabogadóttur sem opnaði sýninguna.
Falleg hjón
Fríkirkju-
presturinn,
Hjörtur Magni
Jóhannsson, og
eigkona hans,
Ebba Margrét
Magnúsdóttir,
kunnu vel
að meta
sýninguna og
brostu út að
eyrum.
Smart Ármann Reynisson rithöfundur var
flottur í tauinu, eins og alltaf.
Sýningarstjóri Hrafnhildur Schram
sýningarstjóri fékk að sjálfsögðu
blómvönd við opnun sýningarinnar.
Már kátur Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri lét sig ekki vanta í Listasafn
Íslands. Að sjálfsögðu var eiginkonan Elsa
Sigurveig Þorkelsdóttir með í för.
Tveir góðir Það fór vel á með Knúti
Bruun hæstaréttarlögmanni og Birni
Bjarnasyni, fyrrverandi ráðherra.
Sykurmolar
á Skúlagötu
Einar Örn og Curver með myndlistarsýningu saman
M
yndlistarsýningin Tveggja
turna hjal var opnuð í síð-
ustu viku í Listamenn Gall-
erí á Skúlagötu. Það eru
Einar Örn Benediktsson
og Curver Thoroddsen sem standa
að sýningunni. Þetta er í fyrsta skipti
sem þeir félagar sýna verk saman,
þrátt fyrir að hafa unnið saman í
Ghostigital í á annan áratug. Báðir eru
þeir með glæný verk á Skúlagötunni.
Töluverður reytingur var af fólki opn-
unardaginn og gamlir félagar skutu
upp kollinum. Björk Guðmundsdótti
söngkona mætti til að mynda og barði
sýninguna augum. n
Sykurmolar Sigtryggur Baldursson lét
sig að sjálfsögðu ekki vanta á sýningu hjá
gömlum Sykurmola.
Spekingar spjalla Björk Guðmundsdóttir, söngkona og kollegi Einars úr Sykurmolunum, og
Andri Snær Magnason ræddu málin ásamt fleirum á Skúlagötunni. Björk og Andri Snær boðuðu
til blaðamannafundar í upphafi Airwaves-hátíðarinnar og tilkynntu að þau ætluðu að nota há-
tíðina til að ræða við erlenda blaðamenn um hugsanlegan sæstreng á milli Íslands og Bretlands.
Fjölbreytt verk Turnarnir hjala saman hvor á sínu tungumálinu en eru báðir að segja sögur,
hvor á sinn hátt. Verkin eru bæði í lit og svarthvítu. Teiknuð, prentuð, upptekin og hugmynduð.
Félagar
Andri Snær
Magnason
rithöfundur
kíkti á sýn-
inguna og
ræddi málin
við félaga
sinn.
Feðgar Einar brá á leik
ásamt syni sínum fyrir
framan ljósmyndara.