Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 38
Helgarblað 20.–23. nóvember 201530 Fólk Viðtal mér mjög þreytt að mega ekki ræða nein mál nema þau séu eitthvert lífsspursmál.“ Valdi þetta sjálf Aðspurð segir hún að það hafi kom­ ið tímar sem hún vildi taka allt til baka og fá að hverfa inn í fjöldann að nýju. „Þegar álagið verður yfir­ þyrmandi getur þetta orðið um of, sér í lagi þegar manni líður illa og vill fá að vera í friði. Þá væri ég al­ veg til í að fá að vera venjulegur 24 ára námsmaður sem þarf bara að vakna, fara í skólann og heim aftur að horfa á sjónvarpsþátt. En ég valdi mér þetta sjálf og finnst þetta skemmtilegt og er þakklát fyrir þann stað sem ég er á. Ég vil ekki bara vera fyrirmynd fyrir ungt fólk í pólitík heldur fyrir fólk sem vill stíga út fyrir þægindarammann, sama á hvaða sviðum það kann að vera. Ég vil líka sýna ungu fólki að pólitík­ in geti verið skemmtileg og að við getum haft áhrif til að breyta sam­ félaginu til hins betra.“ Setur upp grímu Áslaug kemur fyrir sjónir sem ákaflega örugg, félagslynd og lífs­ glöð ung kona en ekki er alltaf allt sem sýnist. „Áföllin hafa haft meiri áhrif en ég læt uppi en ég er sæmi­ lega góð í því að fela það. Ég er ekki mikið fyrir að tjá mig um mínar til­ finningar og mætti eflaust oft vera einlægari en sem betur fer á ég góða vini og fjölskyldu sem ég get talað við þegar mér líður illa,“ segir hún og bætir við að gríman sem hún setji upp verði oft til þess að fólk telji hana góða með sig. „Sumir telja mig kalda en mér finnst ég bara bein­ skeytt og segi hlutina eins og þeir horfa við mér. Aðrir halda kannski að ég sé agalega snobbuð, hrokafull og sjálfhverf. Fólk getur verið fljótt að dæma og setja sig á háan hest. Ég er ekki allra en eru ekki fáir sem eru það? Ég veit ekki hvort það sé eftir­ sóknarvert. Ég reyni bara að vera ég sjálf og ég held að ég sé bara þokka­ lega venjuleg.“ Stefnir á þing Áslaug Arna hlýtur að teljast ein af vonarstjörnum Sjálfstæðisflokks­ ins en flokkurinn má muna sinn fífil fegurri ef litið er til fylgismælinga í skoðanakönnunum. En hvert stefn­ ir hún? Er hún ekki bara rétt að byrj­ a?„Ég hef ekki hugmynd um það. Ég veit bara að ég er að gera það sem mér finnst skemmtilegt og reyna að hafa góð áhrif. Hvert það leiðir mig veit ég ekki. Þótt ég sé skipulögð hugsa ég ekki mjög langt fram í tí­ mann. Það er svo óspennandi. Fyrir mánuði hefði enginn getað sagt mér að ég yrði í forystu Sjálfstæðisflokks­ ins. Það er einmitt svo skemmti­ legt,“ segir hún og segir líklegt að hún eigi eftir að setjast á þing í ná­ inni framtíð. „Ætli það ekki. Þar eru tækifærin til að breyta hlutunum og hafa almennileg áhrif.“ Vill hafa áhrif „Að mínu mati eiga stjórnmál ekki að verða ævistarf. Það á að vera möguleiki fyrir fyrir fólk að fara inn á Alþingi og starfa þar í einhvern tíma og fara svo þaðan aftur. Stjórn­ málaþátttaka á að vera sjálfsögð í smá tíma en að þeir sem taki þátt þurfi ekki að vera þar til eilífðar­ nóns. Auðvitað verða alltaf einhverj­ ir sem verða þarna lengi, sem er gott til að tryggja ákveðna þekkingu, en það verður að vera hægt að snúa sér að öðru eftir stjórnmál. Annars er ómögulegt að fá ungt og hæfileika­ ríkt fólk þarna inn. Nýjar kynslóðir koma með breyttar áherslur og nýjar hugmyndir. Eldri kynslóðin hefur lengi talað um að vilja breyta póli­ tíkinni og nú verður það vonandi hægt þannig að það verði minna talað en meira framkvæmt og póli­ tíkin gerð áhugaverðari og eðlilegri með því að talað sé mannamál. Það er svolítið mikil vægt að tala með einföldum og skýrum hætti svo al­ menningur nái utan um þessi stóru og viðamiklu mál. Mig langar ekki að gera stjórn­ málin að ævistarfi. Mig langar samt til að geta farið inn í þau í einhvern tíma, haft áhrif og hleypt svo öðrum að. En það er ekki gefið að maður geti alltaf valið tímasetningar með góðum fyrirvara. Stundum verður maður bara að taka af skarið, láta slag standa og grípa tækifærið.“ n „Ég er 25 ára en ekki fertugur reyndur stjórnmálamaður. Landsfundur Áslaug er í forystu Sjálfstæðisfl okksins. Veit hvað hún vill Áslaug Arna er óhrædd við að koma fram með sínar skoðanir. mynd Sigtryggur ari náin Áslaug segir erfiðleikana eflaust hafa gert samband systkinanna enn betra. Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.