Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 20
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Helgarblað 20.–23. nóvember 2015
Fyndið að vera
„heimsfræg“ á Íslandi
Algjörlega mín
eigin sannfæring
2012 var versta
ár lífs míns
Íslenskan kostar
Katrín Edda Þorsteinsdóttir er einn vinsælasti „snappari“ Íslands. – DV Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir er með Chron's sjúkdóminn. – Bleikt.is
V
ið fögnum öllum góðum frétt
um og ein slík barst á dögun
um, þess efnis að ríkið og at
vinnulífið hefðu ákveðið að
taka höndum saman til að tryggja að
íslensk tunga verði gjaldgeng í sam
skiptum á netinu og í snjalltækjum.
Til stendur að fjárfesta í rannsókn
um og þróun til að af þessu geti orðið.
Kostnaður verður mikill, um einn
milljarður, jafnvel meira.
Nútímamaðurinn er tæknivæddur,
er stöðugt í nálægð við tæki og tól,
eyðir dágóðum tíma á netinu flesta
daga og síminn er venjulega límd
ur við hann. Samskiptaformið í
þessum tækjum er áberandi mik
ið á ensku með þeim afleiðingum að
enskan er orðin Íslendingum nánast
jafn töm og íslenskan. Reyndar hef
ur einhver hluti íslenskra ungmenna
betra vald á ensku en íslensku og er
í meiri tengslum við enskumælandi
menningarheima en þann íslenska.
Með fullri virðingu fyrir tungu Shake
speares þá er þetta ekki æskileg þró
un. Við hljótum að óska þess að kom
andi kynslóðir tali og tjái sig á íslensku
og geti notað tungumál sitt á sem
flestum sviðum. Það er sannarlega
orðið tímabært að bregðast við og
gera íslenskuna að hluta af tölvuheim
inum. Sérfræðingar segja að það þurfi
að gerast sem fyrst þar sem tækniþró
unin í heiminum sé gríðarlega hröð.
Íslendingar eru fámenn þjóð og
það kostar að tala tungumál sem
fáir tala og skilja. Við eigum ekki að
gráta þann kostnað. Menntamála
ráðherra, Illugi Gunnarsson, hefur
sagt að kostnaðurinn við að aðhafast
ekkert í þessum málum muni reyn
ast okkur dýr. Það er hárrétt hjá hon
um. Það má ekki gerast að þjóð glati
tungu sinni vegna eigin skeytingar
leysis. Íslenskan varðveitist ekki
nema að henni sé hlúð og hún ræktuð
í öllum samskiptaformum og þar má
tölvuheimurinn ekki verða útundan.
Annars gæti svo farið að enskan yrði
svo að segja öllum landsmönnum
tamari en íslenskan sem um leið yrði
stimpluð sem sérvitringslegt tungu
mál fárra.
Ríki og atvinnulíf eru sannarlega
á réttri leið þegar þau ákveða að
styrkja framgang íslenskrar tungu
í samskiptum á netinu og í snjall
tækjum. Íslendingar hljóta að fagna
þessu framtaki. Hinn tæknivæddi Ís
lendingur mun vonandi, innan ekki
of langs tíma, geta nýtt tæki sín og tól
á hinu ástkæra og ylhýra móðurmáli.
Þess á milli getur hann leitað í bækur
og unað sér þar við góðan skáldskap á
hinu fallega máli okkar. Hann finnur
örugglega ekki betri leið til að örva og
efla málkennd sína. n
Hrossakaup
Þeir fóstbræður Össur Skarphéðins
son og Ögmundur Jónasson eru
með böggum hildar yfir tillögu ut
anríkisráðherra um að leggja nið
ur Þróunarsamvinnustofnun. Sjá
þeir félagar, sem áður hafa kom
ið að slíkum hrossakaupum, bara
hinum megin borðsins, mikið
plott í spilunum. Vænir Ögmund
ur Sjálfstæðisflokkinn um stuðn
ing við þetta mál gegn því að fá á
móti stuðning við frumvarp sitt um
opinber fjármál. Sandkornsritari
áttar sig á að málið er skýrt dæmi
um hrossakaup þegar þessir tveir
sérfræðingar í slíkum viðskiptum,
kveða upp samhljóða dóm.
Aðstoðar Grikki
Það vakti athygli þegar fregnir bár
ust af því að Glenn Kim, ráðgjafi ís
lenskra stjórnvalda við losun hafta,
væri orðinn helsti ráðgjafi fjármála
ráðherra Grikkja í viðræðum við
helstu lánardrottna þess. Færri vita
hins vegar að Jón
Þ. Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri
alþjóðasamskipta
og skrifstofu seðla
bankastjóra, hefur
um skeið verið við
loðandi það risa
vaxna verkefni að endurreisa gríska
bankakerfið.
Þannig situr Jón í stjórn gríska
Fjármálastöðugleikasjóðsins sem
hefur unnið að því að tryggja
endurfjármögnun fjármálakerfis
ins. Þá lék Jón stórt hlutverk í hafta
vinnu stjórnvalda en hann var á
meðal þeirra sem skipuðu sérstak
an framkvæmdahóp um áætlun um
losun hafta.
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?
A
ð einu leyti var ég sáttur við
afstöðu Alþjóðagjaldeyris
sjóðsins í kjölfar hruns.
Hann studdi að sett yrðu
á gjaldeyrishöft. Fulltrúar
AGS sáu sem var að annar valkostur
var ekki fyrir hendi. Ella yrði gjald
eyrisforðinn, það litla sem til var, á ör
skotsstund að engu orðinn. Reynd
ar fæ ég seint skilið hvers vegna AGS
þröngvaði Íslandi á sama tíma til að
taka himinhá lán til að byggja upp
gjaldeyrisforða tímabundið með ærn
um vaxtakostnaði þótt ljóst væri að
hann yrði ekki notaður í bráð. En það
er önnur saga.
Höftin björguðu okkur
Það breytir því ekki að stuðningur
AGS við höftin kom sér vel. Bæði gegn
kreddufólki á hægri kanti stjórnmál
anna, sem mátti ekki á gjaldeyris
höft heyra minnst af fagurfræðilegum
ástæðum, og síðan gegn bíró
Kratismanum, sem benti á að sam
kvæmt „fjórfrelsi“ EES væri það hin
mesta goðgá að setja hömlur á fjár
magnsflutninga og sérlega illa þokk
að í Brussel.
Lagasetning, runnin undan rifjum
Seðlabankans, um að setja slitabúin
inn fyrir ramma gjaldeyrishafta var
annað gríðarlega mikilvægt skref.
Sjálfstæðisflokkurinn barðist hat
rammlega gegn þessu og Framsókn
sat hjá. En með þessu tvennu, al
mennu höftunum og síðan með því að
koma böndum á slitabúin, var Íslandi
sköpuð staða gagnvart hrægamma
sjóðunum sem klófest höfðu búin.
Óábyrg verslunarelíta
Það hefur verið undrunarefni hve
barnaleg og um leið óábyrg íslenska
verslunarelítan hefur verið í umræðu
um höftin. Hún hefur dramatíserað
meinta skaðsemi þeirra og sannast
sagna hef ég oft orðið forviða við
að hlýða á talsmenn útflutningsfyr
irtækja sem sjálf eru undanþegin
höftunum tala þau niður og ýkja nei
kvæð áhrif þeirra. Umræðan hef
ur verið mjög ógagnrýnin á þennan
veg, einnig af hálfu margra fjölmiðla
manna. Þannig spurði fréttamaður
bankasérfræðing í tengslum við fréttir
af samningunum við slitabúin, hvort
almenningur myndi strax finna fyrir
afnámi haftanna. Sérfræðingurinn
sagði að á því léki enginn vafi! Stað
reyndin er hins vegar sú að almenn
ingur hefur nánast ekkert fundið fyrir
höftunum! Öðru máli gegnir að sjálf
sögðu um lífeyrissjóðina.
Af illri nauðsyn
Höftin eru eingöngu við lýði vegna
þess að þau hafa verið nauðsynleg
vörn fyrir Ísland. Ótrúlegustu aðil
ar hafa hins vegar verið reiðubúnir
að fórna hagsmunum Íslands á alt
ari kreddu sinnar. Og lyktir málsins
hefðu þurft að verða aðrar. Í stað þess
að sýna kröfuhöfum að þess væri ekki
að vænta að höftum yrði aflétt í bráð,
þeim yrði gert að greiða 39% skatt sem
næmi 850 milljörðum, var ákveðið
með nær öllum greiddum atkvæðum
á Alþingi að fela Seðlabankanum vald
til að semja kröfuhafana undan skött
um og skapa þeim hraðbrautir til að
flytja fjármagn til síns heima.
Sökudólgurinn fundinn
Og erum við þá komin að fyrirsögn
þessa greinarkorns um „sagnfræði
framtíðarinnar“. Þegar efasemdar
menn hafa leitt getum að því að efna
hagskerfið muni ekki geta staðið undir
þeim fjárútlátum og gjaldeyrisflutn
ingum sem slitabúin hafa fengið sam
þykkt og að þá þurfi að öllum líkum að
láta áfram gilda höft eða takmarkanir
gagnvart öðrum, lífeyrissjóðum og al
menningi, þá höfum við þegar fengið
nasasjón af viðbrögðunum því söku
dólgurinn er fundinn!
Þegar gammarnir eru flognir
Allt hefði þetta gengið upp, að mati
fjármálaráðherrans og höfuðsagn
fræðings framtíðarinnar, ef ekki hefðu
komið til óraunhæfir kjarasamningar.
Eða gera menn sér ekki grein fyrir því
að samið var um launahækkanir sem
nema hundrað milljörðum króna?
Það var alltaf augljóst að slíkan froðu
kaupmátt væri ekki hægt að flytja úr
landi! Á þennan veg hafa rök Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra leg
ið og þannig munu þau hljóða þegar
grynnkar á gjaldeyrisforðanum. Allt
hefði farið vel ef almenningur, og þá
sérstaklega meintur óábyrgur hluti
verkalýðshreyfingarinnar, hefði ekki
klúðrað málum. Minnumst þessara
yfirlýsinga þegar höftin verða fram
lengd, að gömmunum löngu flognum
úr laupum sínum. n
Framtíðarsagnfræði Bjarna
Ögmundur Jónasson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari „Ótrúlegustu aðilar hafa hins vegar
verið reiðubúnir að fórna
hagsmunum Íslands á
altari kreddu sinnar.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Það er sannarlega
orðið tímabært
að bregðast við og gera
íslenskuna að hluta af
tölvuheiminum.
Ásmundur Friðriksson talaði ekki við flokk sinn áður en hann hvatti til sniðgöngu Símans. – DV