Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 41
Helgarblað 20.–23. nóvember 2015 Sport 33 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is íslensku, vanir því að þeysast áfram á ógnarhraða. Hestarnir sem keppt er á í Mongol Derby eru í eigu hirðingja sem ríða út á þeim, en hestarnir eru í raun villtir þrátt fyrir það og eru alls ekki tamdir. „Það eru engar girðingar, það eru engin hesthús. Þeir eru því villtir í þeim skilningi. Að næturlagi hafa hrossin því tækifæri til að ráfa um og geta verið komin langt frá bú- stöðum hirðingjanna í morgunsárið. Þeir eru ekki tamdir og þeir fá enga kennslu, þannig séð. Hirðingjarnir ríða alltaf á stökki og hafa litla þolin- mæði fyrir hestum sem eru latir og fara hægt yfir. Hugarfar hestanna er því mjög villt. Þeir eru ekki vinaleg- ir, eru ekki vanir alúð og yrðu bara hræddir ef einhver sýndi þeim slíkt. Þrátt fyrir það er skilningur á milli manns og hesta. Það er eitthvað í nátt- úrunni, þeir skilja að maðurinn þarf á þeim að halda, þótt hrossin treysti honum kannski ekki alveg. Þetta get- ur verið svolítið harkalegt, en fyrir þeim er þetta eðlilegt. Þeir bera mikla virðingu fyrir dýrunum, þykir vænt um þá og vita að án hestsins væru þeir ekkert,“ segir hún. „Þarna stökkva þeir á bak, en hér heima undirbúum við hestinn, temjum hann lengi og förum allt öðruvísi að þeim.“ Mikið andlegt úthald Það þarf mikið líkamlegt úthald og ekki síst andlegt til að sitja á baki svo lengi. Aníta hugaði því bæði að and- legu hliðinni og líkamanum fyrir mótið. Það læddist að henni kvíði, kannski hefði hún verið full brött að skrá sig og kannski hefði farið betur ef hún hefði beðið til 2015 til að vera til- búin. „Ég var mjög efins með þetta, en ég vildi samt ekki hætta við. Ég hafði skoðað of mörg myndbönd og séð öll slysin [sem eru skelfileg, innskot blaðamanns]. Það var svo eina nóttina á undirbúningstímabilinu sem ég vaknaði eftir draum. Ég man ekki drauminn, en ég fann að kvíðinn var allur á bak og burt. Ég vaknaði og var tilbúin. Ég vissi að það yrði bara allt í lagi,“ segir hún. „Ég fann það svo sterkt að ég hafði verið valin í þetta, að ég ætti að treysta ferlinu og trúa því að mér hefði verið ætlað að taka þátt. Eftir þetta fann ég ekki fyrir miklum kvíða, miklu frekar spennu og tilhlökkun,“ segir hún. „Ég stappaði í mig stálinu enda vissi ég að þetta var það sem mig lang- aði til að gera. Ég vildi klára þetta – ég þráði að klára. Ég hugsaði með mér að þótt ég myndi handleggsbrotna á báð- um og fótbrotna þá myndi ég komast í mark. Mér tókst að bægja óttanum frá mér og ég trúi því að ef manni tak- ist það þá gangi hlutirnir upp. Ég var mjög ákveðin og einbeitt,“ segir hún. Talaði við líkamann Aníta segist hafa farið óhefðbundna leið til að samstilla líkama og sál. „Ég tók utan um líkamann minn, kleip mig á nokkrum stöðum og ræddi hreinlega bara við hann. Útskýrði að þetta yrði erfitt í smástund, en svo fengjum við hvíld. Ég veit að þetta hljómar mjög einkennilega, en þetta virkaði fyrir mig.“ Er einfari Aníta fór ein út. Hún naut stuðnings fjölskyldunnar og vina og hafði að- ila sem aðstoðuðu hana mikið, en hún vildi fara ein í þetta ferðalag. „Mér finnst best að fá að vera bara í friði. Annað fólk getur truflað mig og ég var hrædd um að ég myndi missa fókusinn. Þetta getur verið truflun. Ég hef alltaf verið svona og veit ekkert af hverju. Ég vil bara helst fá að vera með sjálfri mér í svona aðstæðum,“ segir hún og segist stundum kannski vera einum of sjálfstæð. Hrekkjóttir Villihestarnir eru hrekkjóttir og dyntóttir, segir Aníta. Hún gat átt von á öllu frá þeim, en skipt er um hesta með reglulegu millibili á daginn. Knaparnir fá að velja sér hesta með leiðbeiningum frá hirðingjunum sem eiga þá. Stöku sinnum lenti hún í því að fá hesta sem henni fundust latir og henni gekk illa að fá þá til að spretta úr spori. „Í önnur skipti lenti ég í því- líkum blindrokum þar sem þeir æddu áfram,“ segir hún. „Þá hleypur hestur- inn áfram, hlýðir engu og þessir hestar, þeir hlaupa hratt. Þú hefur enga stjórn á dýrinu, þetta er eins og að vera í biluðum rússíbana sem stefnir niður fjall,“ segir Aníta en segist þó ýmsu vön en hefur þó blessunar- lega sloppið við alvarleg meiðsl. Hún ber í borðið og segir: „sjö, níu, þrettán. Ég hef verið mjög heppin.“ Vildi ekki lata hesta Á ferðalaginu gekk á ýmsu. Aníta borðaði ekki mjög mikið, svaf illa en náði að halda sér gangandi alla tíu dagana. „Ég gat ekki slakað á. Ég var mjög spennt og vildi drífa mig áfram,“ segir hún. „Í fyrstu fannst mér ég fá rosalega lata hesta, en það kom í ljós að hirðingjarnir vildu láta mig fá hesta sem þeir héldu að væru öryggir fyrir mig. Karlmennirnir fengu frekar erfiða og hraða hesta, en ég fékk þá sem voru latari. Ég þurfti því að gera þeim grein fyrir því að ég væri öllu vön og vildi fá kraftmikla hesta. Það var eiginlega erfiðara að fá lata hesta en þessa kraftmeiri. Það fer svo mik- il orka í að hvetja þá áfram að maður verður alveg örmagna eftir það,“ segir hún og segir að það hafi verið mikil- vægt fyrir hana að nota innsæið til að finna réttu hestana fyrir sig, fara milli- veginn. „Oftast tókst mér það,“ segir hún, enda þaulvanur tamningamaður með fimmtán ára reynslu. Á þriðja degi fékk hún þó aðeins hesta sem voru eins og hún segir sjálf „kolklikkaðir“. Það var erfiðasti dagur- inn, hún var þreytt og hafði ekki náð að safna þrótti. Það bráði þó af henni og hún náði tökum á þreytunni. Á sjöunda degi lenti hún svo í því að villast sem kostaði hana talsverð refsistig. „Ég var skyndilega komin í rosalega fallegan dal, en ég áttaði mig á því að ég var alls ekki þar sem ég átti að vera. Hesturinn minn var frekar latur, átti erfitt með að spretta úr spori og ég kallaði eftir hjálp,“ segir hún. Kona ársins En hún kláraði, varð í nítjánda sæti og vann hug og hjörtu landsmanna. Hún var valin kona ársins af Nýju lífi, gaf út bók og hefur haldið fjölmarga fyrir lestra fyrir fyrirtæki og samtök þar sem hún segir frá kappreiðinni, undir- búningnum en einnig vangaveltum hennar um íslenska hestinn. „Eftir þessa upplifun sé ég að við þurfum að huga betur að þolinu og styrknum. Hesturinn okkar er kominn af mongólska kyninu og hafði styrkinn og úthaldið frá honum, eitthvað sem ég held að við séum að missa,“ segir hún og segir að íslensku hrossin séu þjálfuð til þess að taka þátt í hring- vallagreinum, kappreiðar séu afar sjaldgæfar og að hún óttist þessa þró- un. „Við Íslendingar megum vera afar stoltir af því hvernig við hugsum um hestana okkar. Þeir fá allt hið besta, en við verðum samt að vara okkur á þessari þróun. Við verðum að skoða þetta,“ segir hún. Aníta hefur rætt þetta opinskátt og segir mikilvægt að virða hestana og þeirra hæfileika. Næsta áskorun Það er erfitt að finna nýjar áskoranir þegar maður veður beint í það erfiðasta, en Aníta er ekki af baki dottin. „Ég hélt að ég myndi róast eftir þetta en ég varð bara verri. Ég er stöðugt að leita mér að nýrri áskorun, nýjum ævintýrum.“ Líklega hefur hún þó fundið leiðina til að skora á sjálfa sig, en hún undirbýr nú hestaferðir í ferðaþjón- ustu þar sem vanir knapar geta feng- ið að upplifa ferðalög, með löngum dagleiðum þar sem riðið er að tals- verðu kappi. Takist áætlanir henn- ar verður einnig hleypt af stokkunum einhvers konar útgáfu af kappreiðum hér á Íslandi. Það yrði stærsta verkefni í hestatengdri ferðaþjónustu hér á Ís- landi og mikil áskorun. „Þetta er ekk- ert nema spennufíkn. Ég þrífst á því,“ segir hún. n Sautjánda stöðin Hér er Aníta að koma á 17. stöðina, ellefu eru eftir. MyNd Úr EiNKaSafNi Til sóma Aníta var landi og þjóð til sóma, hún hafnaði í nítjánda sæti og var svo valin kona ársins. MyNd Úr EiNKaSafNi Hópurinn Aníta var með hlífðarbún- að, brynju og hjálm auk annarra varúð- arráðstafana. Hún féll aldrei af baki og slapp við sár meiðsl undan hnakkinum sem hún hafði. MyNd Úr EiNKaSafNi „Mig langar að taka þátt í fleiri svona kappreiðum, en ég er náttúrlega búin með þá lengstu, erfiðustu og hættulegustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.