Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 20.–23. nóvember 2015 Gullfallegt atvinnuhúsnæði til leigu á 1. hæð, Laugavegi 163, 70,7 m2, granít- flísar á gólfi og baðherbergi. Upplýsingar í síma 553-4400 Atvinnuhúsnæði til leigu „Spámaður Guðs“ lofar kraftaverkum í Austurbæ S jálfur get ég vissulega ekki læknað nokkurn mann af neinu en ég veit að Jesús getur læknað hvern sem er af hverju sem er,“ segir sænski prédikarinn Mattias Lekardal í trúarfríblaðinu Betra land, þar sem lofað er kraftaverkum og lækning- um á sérstökum Kraftaverkakvöld- um í Austur bæ um helgina. Á for- síðu blaðsins, sem sjónvarps stöðin Omega gefur út, er Lekardal kall- aður „spámaður Guðs“ sem muni einnig spá og biðja fyrir sjúkum í beinni útsendingu á sjónvarpsstöð- inni. Á baksíðu blaðsins er auglýsing fyrir Miracle Festival Reykjavík sem fram fer nú um helgina, 20.–22. nóv- ember og sagt að Lekardal og vin- ur hans, Stefan Edefors, muni koma fram og er því lýst yfir með stóru letri að „Blindir munu SJÁ, Daufir munu HEYRA og Lamaðir munu GANGA.“ Í umfjöllun sem Lekardal skrifar um sig sjálfan í blaðinu segir hann frá því hvernig hann hafi, með því að biðja fyrir fólki, horft upp á krabba- meinsveika læknast algjörlega, ein- hverfan dreng hjóla í fyrsta skipti, unga stúlku með vandamál í mjöðm og annan fótlegginn styttri en hinn ganga og hlaupa í fyrsta skipti eftir að hann bað fyrir stúlkunni. Hann segist hafa séð Jesú lækna blinda, heyrnarlausa, lamaða, hjálpa fólki sem gat ekki eignast börn til að ná því takmarki og lækna meðal annars geðsjúka. Allt hljómar þetta í anda þess sem annar umdeildur prédikari og Íslandsvinur, Benny Hinn, kveðst geta framkallað uppi á sviði á fjölda- samkomum sínum. Ókeypis er inn á kraftaverkasamkomuna um helgina. Selur flöskur til að jóna vatn Litlar upplýsingar er að finna um Mattias Lekardal á netinu en hann kveðst hafa verið forstöðumaður í ýmsum kirkjum í Svíþjóð frá árinu 1991. Hann hefur frá árinu 2010 ferð- ast um allan heim og prédikað og komið oftar en tuttugu sinnum til Íslands og átt gott vináttusamband við Eirík Sigurbjörnsson, eiganda Omega og Gospel Channel, að eigin sögn. Samkvæmt upplýsingum sem DV fann í sænsku fyrirtækjaskránni er hann skráður fyrir félaginu Divine Favour A.B. sem stofnað var í fyrra, líklega utan um starf hans sem pré- dikari. Á samskiptasíðunni instidy.com titlar Lekardal sig sem frumkvöðul, prédikara og lífsþjálfa sem elskar að hvetja fólk áfram. Frumkvöðull- inn Lekardal gefur þar upp heima- síðu sína sem er alkalizer95.com. Um er að ræða vefsíðu fyrirtæk- is hans It‘s Water Global A.B. sem virðist sérhæfa sig í að selja tiltek- inn vatnsbrúsa sem sagður er gædd- ur þeim eiginlegum að geta jónað og betrumbætt hefðbundið vatn. Var- an heitir Alkalizer 95 Maxx og á að búa yfir margvíslegum heilsubæt- andi verkunum. Jónað vatn og meint ágæti þess var mikið í umræðunni hér á landi fyrr á þessu ári í tengsl- um við afhjúpandi umfjöllun Kast- ljóss um skottulækningar. Bæði fé- lög Lekardals eru skráð til heimilis að Dalaskogsvägen 8 í smábænum Sköllersta í Svíþjóð en þar er hann sjálfur með skráð lögheimili sam- kvæmt sænsku símaskránni. Krabbamein hvarf með bæn Kraftaverkahátíðin mun fara fram í húsnæði Austurbæjar við Snorra- braut í Reykjavík um helgina og ef marka má vitnisburð Lekardals í blaðinu Betra land, sem prentað er í 117 þúsund eintökum og dreift inn á hvert heimili í landinu, og auglýs- ingu viðburðarins ætti aldeilis að verða mikið um dýrðir þar þegar hinn svokallaði spámaður Guðs læt- ur til sín taka. Ein af athyglisverðari lýsingum hans um kraftaverkin sem hann hefur miðlað með fyrirbænum sínum er um konu sem illa haldin var af krabbameini í beinum. Hún hafi farið að koma á samkomur hjá hon- um þar sem þau hafi beðið saman. „Hún fór í erfiða meðferð þannig að hún kom ekki aftur í nokkurn tíma. Þegar við svo heyrðum frá henni höfðu læknarnir sagt henni að það væri engin von um bata og að hún myndi deyja á nokkrum vik- um vegna krabbameins í beinum. Ég sagði henni að hún myndi ekki deyja. „Komdu á samkomu og við biðjum saman.“ Hún kom og við báðum. Eftir fyrirbænina sagði ég henni að fara til læknisins og láta hann skoða sig. Hún gerði það og þá kom í ljós að krabba- meinið var horfið. Þetta var fyrir átján mánuðum síðan og henni líður vel í dag. Þetta er það sem Guð getur gert fyrir þig á Íslandi þar sem við von- umst til að sjá þig á Miracle Festival í Reykjavík 20.–22. nóvember. Komdu og taktu á móti kraftaverki þínu.“ Þá rifjar Lekardal upp tilfelli þar sem hann og Eiríkur Sigurbjörnsson gerðu konu gott sem hafði verið veik í meira en þrjátíu ár. „[Hún] sagði að þegar við Eiríkur Sigurbjörnsson báðum í sjónvarpinu hefði hún fundið Jesú koma til sín og taka burt öll veikindi hennar og sárs- auka. Eftir það varð hún verkjalaus og gat ferðast í fyrsta sinn í þrjátíu ár.“ DV reyndi að ná tali af Eiríki vegna málsins í gegnum skrifstofu- númer Omega, án árangurs. n Spámaður Guðs Lekardal er hafinn upp til skýjanna á forsíðu Betra lands. Kraftaverkum lofað Það verður fróðlegt að sjá hvort lamaðir muni ganga á kraftaverkakvöldi Omega og Gospel Channel um helgina. n Segist fá Guð til að lækna sjúka n Boðað að blindir fái sýn á kraftaverkakvöldi Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Góðir vinir Mattias Lekardal og Eiríkur Sigurbjörnsson á Omega eru góðir vinir. Lekardal segir að kona sem þeir báðu fyrir hafi læknast af verkjum og veikindum og getað ferðast í fyrsta skipti í 30 ár. Mynd SKJáSKot af youtube Merkilegur brúsi Lekardal rekur fyrirtæki í Svíþjóð sem selur Alkalizer 95 sem sagt er gætt þeim merkilega hæfileika að betrumbæta venjulegt vatn í einhvers konar „heilsuvatn“. Mynd SKJáSKot af alKalizer95.coM „Tek ekki mark á þessu“ Hefur enga trú á því að Lekardal geti aðstoðað við að lækna lögblindu „Nei, ég hef aldrei heyrt það,“ segir Bergvin Oddsson, formanns- frambjóðandi í Blindrafélaginu og einn af þekktari lögblind- um einstaklingum landsins, aðspurður hvort hann þekki einhver dæmi þess að félagsmenn í Blindrafélaginu eða aðrir hafi fengið sjónina á ný með því að biðja eða með aðstoð prédikara. Bergvin hafði ekki heyrt af krafta- verkahátíðinni sem fram fer í Austurbæ þegar blaðamaður leitaði viðbragða hans við auglýsingunni fyrir viðburðinn þar sem meðal annars er boðað að blindir muni fá sýn. „Ég persónulega myndi aldrei mæta þarna sjálfur, ég tek ekki mark á þessu,“ segir Bergvin sem telur aðspurður að það væri ekki einu sinni þess virði að mæta upp á gamanið. „Komdu og taktu á móti kraftaverki þínu Dagur í hart Innanríkisráðherra hefur hafnað kröfu Dags B. Eggertssonar borgar stjóra sem óskaði eftir því fyrir hönd borgarinnar að loka svokallaðri „neyðarbraut“ á Reykjavíkurflugvelli. Í bréfi frá innanríkisráðuneytinu, sem lagt var fram á fundi borgarráðs á fimmtudag, segir: „Vegna tilvísun- ar Reykjavíkurborgar til mögu- legrar málshöfðunar á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á kröfum sínum um að brautinni verði lokað og skipulagsreglum fyrir Reykjavíkurflugvöll breytt, er tekið fram að telja verði eðlilegt að Reykjavíkurborg leggi fyrir dóm- stóla að fá úr þeim álitamálum leyst þannig að skorið verði úr um hvort sú skylda hvíli á ríkinu að loka flugbrautinni eða skipulags- reglum breytt.“ Í bréfinu er mögu- legri bótaskyldu ríkisins vegna fyrirhugaðra byggingaráforma á Hlíðarendasvæði mótmælt. Dag- ur B. Eggertsson hefur látið hafa eftir sér að borgin muni höfða mál gegn ríkinu vegna ákvörðunar Ólafar Nordal innanríkisráðherra. Tafir á Miklubraut Næstu daga mun standa yfir vinna við uppsetningu á vegriði á Miklubraut, frá gatna- mótum Reykjanesbrautar að Grensásvegi. Umferðartaf- ir gætu orðið á milli klukkan 9 og 17 næstu daga þar sem hámarkshraði verður lækk- aður niður í 50 km/klst. Sami hraði gildir við undirgöng und- ir Vesturlandsveg í Mosfells- bæ, sem unnið er við. Þá er lokað fyrir umferð um Stekk á Reykjanesbraut en vegfarend- um er bent á að nota mislæg gatnamót í Innri-Njarðvík eða hringtorg við Grænaás þar til framkvæmdum lýkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.