Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 42
34 Lífsstíll Helgarblað 20.–23. nóvember 2015
Þ
að er svo gaman að skreyta
heimilið sitt fyrir hátíðirnar.
Skrautið bætir jólaandann á
dimmum og köldum vetrar-
mánuðum og myndar einnig
skýrari skil á milli árstíða. Fyrir utan
hefðbundnar jólaseríur, kransa og
kerti (sem eru auðvitað alltaf sígild
og skemmtileg) tók ég saman nokkra
útvalda hluti sem finna má í hin-
um og þessum hönnunar- og hús-
gagnaverslunum sem mér þykir afar
fallegir. Ég mæli með að fólk fari að
draga fram jólaskrautið, setja huggu-
lega jólatónlist á fóninn og hita sér
glögg. Nú styttist í aðventuna. n
Hönnun á heimilið
Grýlusvunta og viskastykki Lín des-
ign býður upp á alíslenskar jólasvuntur en á þeim má finna
uppskrift að girnilegum Grýlugraut. Svuntan er tilvalin
viðbót í smákökubaksturinn.
HeklaIslandi Servíéttur og kerti
frá þessum framleiðanda klikka ekki. Til eru
nokkrar jólategundir en „ Meiri snjó, meiri
snjó, meiri snjó“ er í uppáhaldi þessi jólin.
Omaggio-jólakúlurnar Þessi vara er úr haustlínu Kähler fyrir árið 2015. Maður er
varla að uppljóstra neinu hernaðarleyndarmáli þegar maður bendir á að kúlurnar verða sennilega
stærsta jólaskrautstrendið í ár. Kúlurnar fást bæði í gylltu og silfruðu og fást meðal annars í Líf og list.
Föndurdót frá börnunum Foreldrar eiga
eflaust eitthvað til frá síðustu árum og sennilega mun bætast við
í safnið í ár. Það er gaman fyrir alla á heimilinu að leyfa heima-
tilbúna skrautinu frá börnunum að njóta sín á áberandi stöðum.
Persónulegt skraut er jú alltaf fallegast.
Ralph Lauren-jólailmurinn
Við eigum það til að vera svakalega skandinavísk
um jólin. Hins vegar er kaninn snillingur þegar
kemur að ilmi. Í Húsgagna-
höllinni má finna alveg
einstakt jólailmkerti
frá fatahönnuðinum
Ralph Lauren. Kertið er
í rauðu glasi í fallegum,
jólalegum kassa. Kertið
er úr sojavaxi og brennur
í um 30 klukkustundir.
Holiday-ilmkertið ilmar
af sígrænum jurtum,
rifsberjum og einiberjum.
Le Klint-
jólahjörtu
Þessi fallegu
jólahjörtu minna
á gamla tíma.
Isa Dawn Whyte
Jensen hannar
hjörtun fyrir
danska hönnunar-
framleiðandann
Le Klint og koma
hjörtun svo
sannarlega með
jólaandann inn
á heimilið. Hver
man ekki eftir
að hafa föndrað
svipuð hjörtu
í barnæsku?
Hjörtun má nálg-
ast í Epal.
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Hvítir hnotubrjótar frá
House Doctor Danska vöru-
merkið House Doctor leitar í gamla tímann
og fangar anda og tilfinningu áranna frá
1960–70, en án eftirlíkinga; þess í stað er
skapaður nýr stíll úr gömlum tíma. Hvítu
hnotubrjótarnir eru ævintýralega fallegir og
fást til dæmis í Fakó verzlun á Laugavegi.
Jólaóróinn frá Nox
„Rjúpan” er annar óróinn sem
kemur frá Nox en í fyrra kom
„Hreindýr”. Hingað til hefur Georg
Jensen-óróinn verið afar vinsæll,
en Nox-óróinn er sérstaklega
skemmtilegur, alíslenskur og í
nýju uppáhaldi hjá mér. Hug-
myndin í hönnun óróans er
að færa sig frá þessum
heðbundnu óróum af
snjókörlum, jólatrjám
og snjókornum með
því að gera íslenskum
villtum (jóla)mat hátt
undir höfði. Óróinn er
gull- og silfurhúðaður
með svörtum og hvítum
silkiborða þar sem stend-
ur „Gleðileg jól“ á átta
tungumálum.
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Umhverfisvænir pokar
sem brotna niður í umhverf inu
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
• Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar
• Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni
• d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma
þe irra loknum svo að þe ir samlagist
nát túrunni á sama hát t og laufblað
Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af
umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki
sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt
fengið hjá okkur íblöndunarefni.
Pokar í
s töðluðum stærðum
eða
séráprentaðir