Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 2
2 Fréttir Helgarblað 5.–8. júní 2015
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Tveir ofurölvi
Tveir ofurölvi menn voru hand-
teknir í miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt fimmtudags og voru þeir
báðir vistaðir í fangageymslu
lögreglunnar. Rétt fyrir klukk-
an hálf tvö umrædda nótt var
tilkynnt um ofurölvi mann á
Hlemmi. Lögreglumenn sem
fóru á vettvang reyndu að koma
viðkomandi til síns heima en
hann neitaði að gefa upp nafn
og dvalarstað. Maðurinn var því
vistaður í fangageymslu þangað
til af honum rann.
Það var svo á fimmta tímanum
um nóttina sem annar ofurölvi
maður var handtekinn í miðbæn-
um. Lögreglu barst tilkynning um
mann sem var að hóta starfsfólki
í verslun í miðbænum. Þegar
lögreglumenn mættu á vett-
vang kom í ljós að maðurinn var
ofurölvi og vissi hvorki í þenn-
an heim né annan. Það var mat
lögreglunnar að maðurinn væri í
engu ástandi til að ferðast og var
hann því vistaður í fangageymslu
þar til af honum rann.
B
ílstjóri forseta Íslands hefur
verið ávíttur fyrir að leggja ólög-
lega í Mávahlíð í gærkvöldi. Að-
eins er rúmlega ár liðið frá því
að sömu bifreið var lagt ólöglega og af
því náðist mynd en í lok maí 2014 var
bíl forseta Íslands lagt ólöglega við Há-
skóla Íslands. Það var RÚV sem birti
fréttina laust fyrir hádegi á fimmtu-
dag en þar kemur fram að bifreiðin
stóð auk þess út á götu og lokaði á eða
þrengdi að annarri umferð.
Fram kemur að Ólafur Ragnar
Grímsson hafi ekki verið í bifreiðinni
heldur hafi starfsmaður verið í sendi-
ferð á vegum embættisins. „Hann
hefur hins vegar gert alvarleg mistök
og hefur þegar verið ávíttur fyrir þau,“
hefur RÚV eftir Örnólfi Thorssyni for-
setaritara.
Í september 2013 greindi DV frá
því þegar bílnum var lagt ólöglega við
Melaskóla en þá lagði bílstjóri forset-
ans fyrir aftan tvo bíla sem voru inn-
ikróaðir á meðan forsetinn afhenti
nemanda verðlaun í alþjóðlegri for-
ritunarkeppni Microsoft fyrir börn.
Í mars 2009 var forsetabílnum
lagt í stæði merkt fötluðum í Banka-
stræti, í um það bil sex mínútur sam-
kvæmt sjónarvottum. Á meðan
sinntu forseta hjónin einkaerindum í
nærliggjandi verslunum. n
Bílstjórinn ávíttur
Forsetabíllinn í ólöglegu stæði
Mynd frá 2009 Forsetabíllinn í stæði
fyrir fatlaða.
Davíð,
ekki Geir
Í viðtali við Ellen Calmon,
formann Öryrkjabandalags
Íslands, í síðasta tölublaði DV
urðu henni á þau mistök að
segja að Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins
og fjármálaráðherra, virtist
ekki túlka 69. grein almanna-
tryggingalaga með sama
hætti og forveri hans, Geir H.
Haarde. Ellen vildi sagt hafa
að Bjarni væri að túlka grein-
ina með öðrum hætti en Dav-
íð Oddsson, ekki Geir. Leið-
réttist það hér með.
Safnar fyrir vin
sinn með heilaæxli
n Halda grillveislu til styrktar Garðari n Samstaðan dýrmæt
J
óhann Hallgrímsson sem
búsettur er í Grindavík ásamt
Hjördísi Guðmundsdóttur,
konu sinni, hefur verið með
hugmynd í kollinum sem
hann lætur nú verða að veruleika
og hyggst gera að árvissum við-
burði.
Grill og gaman fyrir gesti og
gangandi á heimili Jóhanns og
Hjördísar
Jóhann hefur í nokkur ár haldið
grill fyrir vini og vandamenn að
heimili sínu um sjómannahelgina
en í ár mun hann ásamt eiginkonu
sinni, Hjördísi, halda sjóaragrill og
söfnun fyrir valinn sjómann og fjöl-
skyldu hans og í ár er safnað fyrir
vin Jóhanns, Garðar Sigurðsson, 43
ára gamlan sjómann frá Grindavík,
og fjölskyldu hans. Garðar og kona
hans, Ásta Halldóra Böðvarsdóttir,
eiga þrjú börn.
Í samtali við DV segir Jóhann,
sem alltaf er kallaður Issi, nánar frá
grillveislunni, sem haldin verður
að Vesturhópi 26 laugardaginn 6.
júní næstkomandi. Heimili Issa og
Hjördísar er opið frá hádegi og all-
ir velkomnir að koma og skrifa nafn
sitt og kveðju í gestabók og skilja
eftir pening í söfnunarbauknum.
Kaffi verður í boði fyrir gesti allan
daginn, en veislan sjálf hefst hins
vegar klukkan 18.
Greindist með illkynja
heilaæxli 2011
„Ég fékk hugmyndina á sjómanna-
deginum fyrir ári síðan og valdi þá
strax að styðja Garðar,“ segir Issi.
„Mér fannst Garðar bara eiga þetta
skilið, hann veiktist 2011 og hefur
meira og minna barist við þetta síð-
an og aldrei stoppað.“
Garðar hefur glímt við illkynja
heilaæxli frá 2011. Hann hefur
síðan þá verið frá sjómennsku
vegna veikindanna en eins og Issi
segir hefur Garðar ekki setið auð-
um höndum heldur barist gegn
þessum illvíga sjúkdómi sem hrjá-
ir hann, meðal annars farið aftur út
á vinnumarkaðinn til að taka þátt í
lífinu.
Grillveislan er opin öllum, það
kostar ekkert að koma, fá gott að
borða, drekka og skemmta sér og
öðrum. Það verður tjald bak við hús
þar sem verða hin ýmsu skemmti-
atriði, svo sem fjöldasöngur, leik-
ir og töfrabrögð þar sem Issi mun
meðal annars stíga á svið.
Fjöldi fyrirtækja hefur styrkt
söfnunina
Fjöldi fyrirtækja styrkir veisluna og
má þar á meðal nefna TG Raf ehf.,
sem er í eigu Tómasar, bróður Hjör-
dísar, og Ó. Johnson & Kaaber sem
Issi starfar hjá. Hann hefur einnig
leitað til allra fiskvinnslufyrirtækj-
anna í Grindavík með ósk um styrk
og hafa þau öll tekið vel í beiðni
hans og lagt inn á söfnunarreikn-
inginn.
Allir styrkir sem berast renna
óskertir til Garðars og fjölskyldu
hans. Markmið Issa og Hjördísar
er að gera grillveisluna að árleg-
um viðburði á Sjóaranum síkáta
sem virkilega snertir sjómenn og
vilja þau því heiðra sjómenn og
fjölskyldu þeirra. „Við vitum aldrei
hvað morgundagurinn ber í skauti
sér. Samstaða í svona góðu sam-
félagi er okkur öllum dýrmæt og
því finnst mér okkur bera skylda
til þess að sýna virðingu gagnvart
sjómönnum og þessari hátíð sjó-
manna. Það eina sem við Hjördís
förum fram á er að allir sem mæti
sýni heimili okkar tillitssemi og
virðingu.
Söfnunarbaukur verður í grill-
veislunni en þeir sem ekki komast á
staðinn og vilja styrkja málefnið geta
lagt inn á styrktarreikning 542-14-
407676, kennitala: 201176-5739. n
„Samstaða í svona
góðu samfélagi er
okkur öllum dýrmæt.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Veikindi Vinirnir
Jóhann og Garðar.