Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Side 4
Helgarblað 5.–8. júní 20154 Fréttir M ér finnst þetta bara vera fjárkúgun, við upplifum þetta þannig,“ segir Linda Dröfn Jónsdóttir, annar eigenda flutningafyrir- tækisins Sendó ehf., sem er allt ann- að en sátt með viðskiptahætti Já. Linda er ósátt með að Sendó þurfi að reiða fram tugi þúsunda króna til að kaupa út flennistóra auglýs- ingu frá samkeppnisaðila fyrir ofan skráningu fyrirtækisins á já.is. Þá hefur DV tölvupóst frá sölumanni Já undir höndum þar sem upplýst er að ef fyrirtæki kaupa auglýsingapakka sem kostar á þriðja hundrað þúsund krónur fá þau að velja sér tíu fyrir- tæki, sem ekki kaupa þjónustu af Já, til að festa sínar auglýsingar við. Sölustjóri Já segir að markmið fyrir tækisins sé að þjónusta aug- lýsendur sem allra best og bjóða við- skiptavinum auglýsingapláss sem eru laus. Eigendur Sendó hyggjast kvarta undan viðskiptaháttum Já til Neyt- endastofu, en það yrði ekki í fyrsta skipti sem fyrirtæki gera það vegna sambærilegra mála. Fá samkeppnisaðila í andlitið Forsaga málsins er að sögn Lindu að sölumaður Já.is fór að hafa samband við Sendó með það fyrir augum að selja fyrirtækinu auglýsingapakka. Fyrir þá sem ekki vita þá kostar það fyrirtæki að fá lógó sín upp í leitar- niðurstöðum Já.is, fá svokallaða vörumerkjasíðu, vera ofarlega þegar leitað er að ákveðnum leitarorðum og fá auglýsingar á síðunni. Þegar leitað er eftir Sendó á Já.is kemur upp nafn fyrirtækisins og heimilisfang. En til að sjá símanúmerið þarf að smella á nafnið til að fá það upp og fara inn á það sem yrði vörumerkjasíða fyr- irtækisins, með auglýsingu, sögu, myndum og fleiru. Linda segir að henni hafi verið boðinn auglýsinga- pakki sem kostar 296 þúsund krón- ur á ári fyrir utan virðisaukaskatt. Á hana runnu þó tvær grímur þegar hún fór að skoða málið nánar. „Ég tók eftir því sjálf að fyrir ofan okkar skráningu er alltaf tiltekin aug- lýsing frá sama samkeppnisaðilan- um, Flutningur.is. Svo ég spyr sölu- manninn út í það. Þá segir hann að af því að við erum ekki að kaupa auglýsingapláss hjá Já, þá sé auglýs- ingaplássið fyrir ofan okkar skrán- ingu í raun og veru laust. Og þá getur samkeppnisaðili keypt það og fengið að festa sig þar fyrir ofan.“ Linda kveðst hafa orðið reið þegar hún uppgötvaði þetta. Þurfa að kaupa út keppinautinn „Það væri allt í lagi ef þetta væri aug- lýsingaborði sem rúllar með mis- munandi auglýsingum. Þá væri manni sama. En þeir setja auglýs- ingu fyrir ofan okkur sem er villandi að því leytinu til að þeir eru í sama bransa og við. Hvað veit fólk þegar það fer þarna inn að þessi síða sé ekki bara heimasíðan okkar? Og til þess að ég geti losnað við að þessi aðili sé fastur fyrir ofan mig verð ég að kaupa af þeim þjónustu. Það ódýrasta sem ég get keypt er á 80 þúsund krónur á ári. Þá sagði sölumaðurinn, orðrétt í tölvupósti: „Já, og þá fer ég bara í það að taka auglýsinguna frá þeim út og við gerum ykkar ásýnd fallegri“.“ Linda segir að hún hefði vel getað hugsað sér að kaupa auglýsinga- pakka af Já.is en ekki fyrst svona væri í pottinn búið. „Þetta læt ég ekki bjóða mér. Ég læt ekki hafa mig að fífli. Ég velti fyrir mér hvort þeir séu að setja þessa tilteknu auglýsingu samkeppnisaðila þarna fyrir ofan mig til að ýta við mér og kaupa hann út – en þetta hefur þveröfug áhrif á mig. Ég er ekki tilbúin að þurfa að borga tugi þúsunda til að losna við þennan samkeppnisaðila fyrir ofan okkur.“ Geta valið sér fyrirtæki til að festa sig við Til að bæta gráu ofan á svart þá hefur DV undir höndum tölvupóst sem veitir innsýn inn í viðskiptahætti Já. Þar svarar sölumaður Já fyrirspurn Lindu um áðurnefndan auglýsinga- pakka. Þar spyr hún hreint út hvort hún geti valið sér fyrirtæki til að festa auglýsingu Sendó fyrir ofan ef hún keypti auglýsingapakkann – líkt og keppinautur Sendó hefur gert. Og þá hjá hversu mörgum. Því svarar sölumaðurinn játandi. „Ef þú kæmir í pakka 2 þá getur þú stillt þinni auglýsingu upp við 10 fyrir tæki.“ Með öðrum orðum fyrirtæki sem ekki kaupa þjónustu eða auglýsinga- pakka af Já. Linda segir að hún hafi verið orðlaus þegar hún fékk svarið. „Ef ég kaupi þennan pakka þá fæ ég að velja mér tíu fyrirtæki, eða fórnar lömb eins og ég lít á málið, sem ég get hengt mig á og auglýst fyrir ofan. Þetta er með ólíkindum,“ segir Linda og bætir við að þessar upplýs- ingar hafi ekki legið uppi á borðum. Ekki fyrr en hún spurði sérstaklega út í hvort þetta stæði til boða. Linda kveðst hafa fengið þau svör frá Já.is að þar á bæ hefðu þess- ir viðskiptahættir verið bornir undir Neytendastofu sem ekki hafi gert athugasemd við þá. „Ég er sjálf búin að hafa samband við Neytendastofu og þeir skoða hvert og eitt mál. Ég á bara eftir að fara með þetta formlega þangað en ég á tíma hjá lögfræðingi í vikunni sem ætlar að semja með mér formlega kvörtun.“ Markmiðið að þjónusta auglýsendur sem best DV leitaði viðbragða Já við umkvört- unum forsvarsmanna Sendó. Dagný Laxdal, sölustjóri Já, segir að mark- mið fyrirtækisins sé að þjónusta aug- lýsendur sem allra best og býður sínum viðskiptavinum auglýsinga- pláss sem eru laus. „Fyrirtækin velja sér leitarorð sem þeim hentar og þau geta jafnframt birt auglýsingu þar sem tækifæri er til og passar við þær leitir sem henta þeirra atvinnustarf- semi.“ Aðspurð hvort að Já finnist eðli- legt að fyrirtæki geti með því að kaupa ákveðna pakka valið sér önn- ur fyrirtæki í samkeppnisrekstri til að festa auglýsingar sínar við segir Dagný að þegar auglýsingar og aug- lýsingapakkar eru seldir sé það hlut- verk starfsmanna að kynna það sem þeim fylgir, alla þá möguleika og þau tækifæri sem bjóðast og eru innifalin. Aðspurð hvort fyrirtækið telji að í þessu felist ekki ákveðin þvingun til viðskipta bendir Dagný á að öllum sé valfrjálst hvort þeir kaupi auglýs- ingar á Já.is eða ekki. Reynslan sýni að viðskiptavinir séu ánægðir með að fá kynningu á þeim fjölmörgu leiðum sem Já.is býður auglýsend- um. „Auglýsendur sjá tækifæri til að koma vörum og þjónustu á framfæri á skilvirkan hátt þar sem er verið að leita að þeirra þjónustu – og notend- ur njóta ókeypis þjónustu sem færir þeim viðeigandi leitarniðurstöður á sekúndubroti.“ Fleiri leitað til Neytendastofu Í desember síðastliðnum greindi Morgunblaðið frá því að fyrirtækið VB Landbúnaður hefði lagt fram kvörtun til Neytendastofu vegna Já. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins taldi að fyrirtæki væru þvinguð til að auglýsa á síðunni. Þar var haft eftir Sigríði Margrét Oddsdóttur, forstjóra Já, að vefurinn væri ókeypis fyrir not- endur vegna auglýsingatekna. Benti hún á að fyrirtæki hafa forkaupsrétt á auglýsingaplássinu fyrir ofan eigin skráningu, en ef þau nýti sér það ekki séu plássin einfaldlega seld. Hafn- aði hún því alfarið að í því fælist ein- hvers konar þvingun. DV fékk þær upplýsingar hjá Neytendastofu að nokkur fyrirtæki hefðu leitað til stofnunarinnar vegna Já á skömmum tíma, án þess að úr því hefði orðið formleg kvörtun í öllum tilfellum. Niðurstaðan í máli VB Landbúnaðar varð sú að Neyt- endastofa taldi ekki ástæðu til að að- hafast frekar. En öll mál eru skoðuð sérstaklega. Ljóst er að mál Sendó er sambærilegt en þó ekki nákvæmlega eins og mál VB Landbúnaðar, sér- staklega með tilliti til þessa tilboðs um að viðskiptavinir geti handvalið sér fyrirtæki til að auglýsa yfir. n 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is FYRIRTÆKJA ÞJÓNUSTA Við sækjum og sendum endurgjaldslaust. Sparaðu starfsfólki tíma og fjármuni. Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki. Finnst þau kúguð til að kaupa út keppinauta n Boðið að velja sér fyrirtæki til að auglýsa við í pakka frá Já n Ætla að kvarta til Neytendastofu Keppinautur birtist Á efri myndinni má sjá hvernig leitarniður- stöður birtast þegar leitað er að Sendó á Já.is. Neðri myndin sýnir hvernig skráning þeirra birtist eftir að smellt hefur verið til að fá nánari upplýsingar. Þá blasir við stór auglýsing frá samkeppnisaðila fyrir ofan.Ósáttir eigendur Linda Dröfn og eiginmaður hennar, Örn Steinar Arnarson, eiga flutningafyrirtækið Sendó. Þau ætla að senda kvörtun til Neytendastofu vegna Já. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.