Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 6
6 Fréttir Helgarblað 5.–8. júní 2015
PARTÝ
L
Æ
K
JA
R
G
A
T
A
HA
RP
A
HLJÓMSKÁLA
GARÐUR
TJÖRNIN
START
LITAHLAUPIÐ HEFST Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM
LITAHLAUPIÐ ENDAR Í EPÍSKU EFTIRPARTÝI
1 KM LITASTÖÐ
2 KM LITASTÖÐ
3 KM LITASTÖÐ
4 KM LITASTÖÐ
START
PARTÝ
TÓNLIST, LITIR, HLAUP OG GLEÐI
Miðborg Reykjavíkur mun iða af lífi
á laugardag þegar litahlaup Alvogen
fer fram í fyrsta sinn á Íslandi.
Við bjóðum alla borgarbúa velkomna
í Hljómskálagarðinn til að verða vitni
að einstökum viðburði.
ALVOGEN Á LEIÐ Í MIÐBÆINN
Lyfjafyrirtækið Alvogen er bakhjarl hlaupsins sem
tileinkað er réttindum og velferð barna. Fyrirtækið
vinnur nú að byggingu Hátækniseturs í Vatnsmýrinni
sem verður fullbúið í ársbyrjun 2016. Innan setursins
verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja og
yfir 200 ný störf munu skapast fyrir háskólamenntaða
Íslendinga.
LITRÍKASTA HLAUP SUMARSINS!
The Color run er 5 kílómetrar að lengd og hefst í Hljómskála-
garðinum kl. 11:00 og stendur fram eftir degi í mikilli litagleði
og undir dúndrandi tónlist.
UNICEF, Rauði krossinn og Íþróttasamband fatlaðra njóta góðs
af hlaupinu þar sem fimm milljónir króna renna til samtakanna.
C
hristel Einvarðsson, 87 ára
kona frá Akranesi, er á meðal
tuga augnsjúklinga sem hafa
ekki fengið lyfið Eylea, þrátt
fyrir að þurfa nauðsynlega á
því að halda. Af þeim sökum hefur
sjón hennar hrakað. Sá skaði verður
ekki bættur.
Ástæðan er sú að heimildir
Landspítalans til að gefa sjúklingum
lyfið hafa verið fullnýttar fyrir þetta ár.
Eins og DV greindi frá á þriðjudaginn
herma heimildir blaðsins að þrjátíu
sjúklingar fái lyfið og þegar sá kvóti
er fylltur þurfa hinir sem þurfa á því
að halda að fá annað, lakara lyf. Því
má segja að Christel sé í hópi þeirra
óheppnu sjúklinga sem eru númer 31
röðinni.
Blind á öðru auga
Hún er með sjúkdóm sem kallast vot
hrörnun í augnbotnum. Hann lýsir
sér þannig að bjúgur myndast í aug-
unum sem verður til þess að bleyta
myndast í þeim.
Christel er búin að vera í með-
ferð vegna sjúkdómsins undanfarin
sjö til átta ár. Hún er blind á öðru
auga en er enn með sæmilega sjón
á hinu. Vegna þess að hún fær ekki
dýrasta lyfið, Eylea, þarf hún að fá
eina sprautu á mánuði í þrjá mánuði
í senn af ódýrara lyfi til að halda sjúk-
dómnum í skefjum. Ef hún fengi
Eylea þyrfti hún ekki að fara eins oft
til að fá sprautu því lyfið myndi virka
betur á hana.
„Ég væri ósjálfbjarga ef ég fengi
ekki þessa meðferð en ég gæti séð
fyrir horn ef ég fengi dýra lyfið,“ segir
Christel sem býr einsömul.
Hefði viljað lyfið fyrir löngu
Hún er að vonum ósátt við að eiga
ekki kost á að fá Eylea. „Auðvitað vill
maður fá það lyf og að hafa fengið það
fyrir löngu, en svona er Ísland í dag.“
Christel segir að læknirinn hennar
í Reykjavík hafi hvatt hana til að skrifa
lyfjanefnd Lyfjastofnunar og kvarta
yfir ástandinu en hún hefur ekki gert
það enn. „Hún segir við mig að hún
ráði því ekki hvort ég fái þetta dýra
lyf.“
Læknirinn aldrei talað um það
Margrét Bára, 63 ára dóttir henn-
ar, er með sama sjúkdóm. Margrét
er sprautuð með lyfinu Avastin en
veit ekki hvort hún þarf líka á Ey-
lea að halda. „Læknirinn minn hef-
ur aldrei talað um þetta augnlyf. Það
þýðir ekkert að gefa manni einhverj-
ar vonir þegar bara 30 manns fá þetta.
En augnlæknirinn hennar mömmu
segir að þetta sé besta lyfið.“
Ár er liðið síðan Margrét Bára
greindist með sjúkdóminn. „Ég vakn-
aði og sá ekkert með hægra auganu.
Ég var með svartan blett, en núna sé
ég í gegnum blettinn.“
Mamma er engri lík
Hún segir móður sína vera einstaka
konu, sem getur bjargað sér sjálf þrátt
fyrir sjúkdóminn. „Hún er óskaplega
dugleg kona, hún mamma. Hún er
engri lík.“
Eins og DV greindi frá nemur
kostnaður ríkisins við einn sjúkling
sem þarf á þessum dýru augnlyfjum
að halda á bilinu ein til einnar og hálf-
rar milljónar króna á ári. „Ef þeir vilja
hafa mann inni á stofnun frekar en að
maður maður tóri heima hjá sér, þá
væri það ábyggilega ekkert ódýrara,“
segir Christel.
Tíu prósent þurfa Eylea
Einar Stefánsson, prófessor í
Hún er númer 31 í röðinni
Christel Einvarðsson, 87 ára kona frá Akranesi, er á meðal tuga sjúklinga sem fá ekki lyfið Eylea vegna sparnaðar í
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is „Ég væri ósjálf-bjarga ef ég fengi
ekki þessa meðferð en ég
gæti séð fyrir horn ef ég
fengi dýra lyfið.
Mæðgur Christel og
Margrét eru með sama
augnsjúkdóminn.