Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 7
Fréttir 7Helgarblað 5.–8. júní 2015 PARTÝ L Æ K JA R G A T A HA RP A HLJÓMSKÁLA GARÐUR TJÖRNIN START LITAHLAUPIÐ HEFST Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM LITAHLAUPIÐ ENDAR Í EPÍSKU EFTIRPARTÝI 1 KM LITASTÖÐ 2 KM LITASTÖÐ 3 KM LITASTÖÐ 4 KM LITASTÖÐ START PARTÝ TÓNLIST, LITIR, HLAUP OG GLEÐI Miðborg Reykjavíkur mun iða af lífi á laugardag þegar litahlaup Alvogen fer fram í fyrsta sinn á Íslandi. Við bjóðum alla borgarbúa velkomna í Hljómskálagarðinn til að verða vitni að einstökum viðburði. ALVOGEN Á LEIÐ Í MIÐBÆINN Lyfjafyrirtækið Alvogen er bakhjarl hlaupsins sem tileinkað er réttindum og velferð barna. Fyrirtækið vinnur nú að byggingu Hátækniseturs í Vatnsmýrinni sem verður fullbúið í ársbyrjun 2016. Innan setursins verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja og yfir 200 ný störf munu skapast fyrir háskólamenntaða Íslendinga. LITRÍKASTA HLAUP SUMARSINS! The Color run er 5 kílómetrar að lengd og hefst í Hljómskála- garðinum kl. 11:00 og stendur fram eftir degi í mikilli litagleði og undir dúndrandi tónlist. UNICEF, Rauði krossinn og Íþróttasamband fatlaðra njóta góðs af hlaupinu þar sem fimm milljónir króna renna til samtakanna. Hún er númer 31 í röðinni heilbrigðiskerfinu augnlækningum, segir að lyf­ ið Avastin sem Margrét Bára tek­ ur, sé prýðisgott við votri hrörnun í augnbotnum. „Við erum fyllilega sátt við að nota það sem okkar að­ allyf og það virkar vel fyrir flesta. En við áætlum að það virki ekki nógu vel fyrir um 10 prósent af þeim sem eru með sjúkdóminn. Þar virkar Ey­ lea betur. Okkar tillaga hefur verið að halda áfram að nota Avastin sem grunnlyf, meðal annars vegna þess að það er mjög ódýrt, en geta gripið til dýrara lyfsins hjá þeim hópi sem annars vegar svarar ekki Avastin og svo eru vissir hópar þar sem við vitum að Eylea virkar betur.“ 700 fengu 4.000 sprautur Sprauturnar sem mæðgurnar fá eru mjög algengar á Landspítalanum. Á síðasta ári voru um 700 einstakling­ um gefnar um 4.000 sprautur til að sporna við sjónhimnusjúkdómum. Að sögn Einars er lyfjainndæling í auga algengasta aðgerðin á Landspítalanum en þessi meðferð var ekki í boði fyrir tíu árum. „Þetta hefur verið hrein guðsgjöf fyrir þennan sjúklingahóp og mjög mörgum þeirra hefur verið forðað frá blindu. En um leið þýðir þetta aukinn lyfjakostnað og aukna heil­ brigðisþjónustu,“ segir Einar. 40 milljarða munur Einar segir ástæðuna fyrir skorti á dýrustu augnlyfjunum vera þá að Ísland sé komið niður fyrir níu pró­ sent af þjóðartekjum til heilbrigðis­ mála á meðan Skandinavía sé í kringum ellefu prósent. „Munurinn er kannski í kringum 40 milljarðar á ári. Þetta er afleiðing þess að við erum að verja minna fé til heil­ brigðismála en þjóðirnar í kringum okkur. Þetta er ein af þessum raun­ verulegu afleiðingum. Það þýðir ekkert að horfa á fólkið sem er að framkvæma þessa vondu stefnu. Það er ákvörðun Alþingis að svelta heilbrigðiskerfið sem hefur þessar afleiðingar,“ segir hann. n 2. júní 2015 Vikublað 2.–4. júní 2015 6 Fréttir Heill heimur af pylsum! Hrísateig 47 Pylsur á pönnuna en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti. Gæðapylsur og skinkur án allra auka- og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir uppskriftum frá öllum heimshornum. Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla! PIPA R\TBW A • SÍA UPPFYLLIR SKILYRÐI NÁLARAUGANS Paleo GABS SCD Margir hafa sagt upp T ala geislafræðinga sem hafa sagt upp störfum fer nú hækk­ andi en stjórnarmenn í Fé­ lagi geislafræðinga (FG), sem DV náði tali af, töldu að þeir væru að minnsta kosti 20 í heildina. Fyrir helgi greindi Fréttablaðið frá því að átta geislafræðingar hefðu sagt upp störfum, meðal annars vegna aukins vinnuálags sem hefur orðið í kjölfar verkfalls geislafræðinga. DV náði tali af stjórnarmönnum FG sem sögðust hafa heyrt af upp­ sögnunum og töldu að um 20 geisla­ fræðingar væru nú búnir að segja upp störfum. Einhverjir hefðu sagt upp störfum fyrir síðasta fimmtudag og fleiri bæst í hópinn undanfarna daga. Ekki hefur náðst á Katrínu Sig­ urðardóttur, formann Félags geisla­ fræðinga, né talsmann Landspítalans við vinnslu fréttarinnar til að fá frek­ ari upplýsingar um málið en ljóst er að uppsagnirnar munu hafa gríðarleg áhrif á starfsemi spítalans. n johannskuli@dv.is 20 geislafræðingur flýja Landspítalann í kjaradeilum Landspítalinn Fjöldi geislafræðinga hefur sagt upp störfum. Sjón tuga einstaklinga í hættu vegna lyfjaskorts n Fjöldi sjúklinga fær ekki Eylea vegna skorts á fjármagni n Kvóti á sjúklinga T ugir íslenskra augnsjúklinga geta beðið tjóns á sjón vegna þess að þeir fá ekki lyfin sem þeir þurfa á að halda. Skortur er á fjórum nýjum augnlyfjum hjá Landspítalanum en brýnasta þörfin er á lyfjunum Ozur­ dex og Eylea. Fjöldatakmarkanir eru við lýði hjá Lyfjaafgreiðslunefnd hvað ákveðin lyfseðilsskyld lyf varð­ ar og heimildir Landspítalans til að gefa sjúklingum þessi augnlyf hafa þegar verið fullnýttar fyrir þetta ár. Athugasemdir við kvóta Lyfjanefnd Landspítalans hefur far­ ið fram á að Lyfjaafgreiðslunefnd endurskoði þann fjölda sjúklinga sem fær Eylea en því hefur verið hafn­ að á þeirri forsendu að ekki sé nægt fjármagn fyrir hendi. Lyfjanefnd hefur einnig gert athugasemdir við að verið sé að setja kvóta á fleiri lyf. Heimildir DV herma að 30 sjúklingar hafi átt kost á lyfjunum á þessu ári og er sá kvóti nú fullnýttur. Kostnaður ríkisins við einn sjúk­ ling sem þarf á þessum augnlyfjum að halda er á bilinu ein til ein og hálf milljón króna á ári. Óafturkræft sjóntap Aðspurður segir Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, að fái fólkið ekki bestu lyfin strax geti það tapað sjón. „Það tjón verður strax og getur verið óafturkræft. Það er marktækur munur á því hversu vel lyfin virka og það kemur fram í sjón einstaklinganna,“ segir Einar. Lyfin eru fyrst og fremst notuð til að forða fólki frá frekari sjón­ skerðingu og blindu en einnig til að bæta úr þeirri sjónskerðingu sem þegar er orðin. Þetta er fólk sem glímir við hrörnun í augnbotnum en einnig er meðal annars um að ræða sjúklinga með sjónhimnubjúg vegna sykursýki. Hrörnun heilbrigðiskerfisins „Okkur hefur verið sniðinn mjög þröngur stakkur. Við getum ekki boðið sumum sjúklingum okkar upp á bestu mögulegu meðferðina,“ segir Einar, sem er mjög ósáttur við þenn­ an kvóta á sjúklinga. „Ég horfi á þetta sem almenna hrörnun heilbrigðis­ kerfisins. Því er að hrörna hratt og á mörgum sviðum. Þetta er bara eitt dæmi um það.“ Ástæðan sem velferðarráðu­ neytið hefur gefið fyrir þessum kvóta er sú að fjárheimildir úr fjárlögum duga ekki til að allir sjúklingar sem á þurfi að halda geti fengið dýrustu meðferðina. Þess vegna þurfi að for­ gangsraða og gæta aðhalds. Áætlaður fjöldi sjúklinga Vegna þessara breytinga hefur Lyfja­ nefnd gefið út áætlanir fyrir þann fjölda sjúklinga sem þarf lyfin og í framhaldinu er áætlað fjármagn fyrir lyfjunum. Mestur ágreiningur hefur verið uppi um augnlyfin, enda er sá hóp­ ur sem þarf á þeim að halda mun stærri en Lyfjanefnd áætlaði að þyrfti á þeim að halda í upphafi. Samkvæmt heimildum DV hefur Lyfjanefnd fundað stíft vegna máls­ ins og hefur hún leitað sér lögfræði­ legrar aðstoðar til að kanna hvort löglegt sé að þessi kvóti á sjúklinga sé við lýði. Ert þú í hópi þeirra sem ekki fá þetta lyf eða önnur lyf vegna kostn- aðar? Við hvetjum þá sem standa í þeim sporum að hafa samband við blaðið. n „Það tjón verð- ur strax og get- ur verið óafturkræft. Það er marktækur munur á því hversu vel lyfin virka og það kemur fram í sjón einstaklinganna. Eylea Tugir fólks geta tapað sjón fái það ekki lyfið Eylea. Freyr Bjarnason freyr@dv.is Framkvæmt í Neskaupstað Brettaverksmiðja er tekin að rísa í Neskaupstað. Tandraberg ehf. stendur að baki framkvæmdun­ um en framleiðsla á að geta hafist í ágúst. Unnt verður að framleiða um 600 bretti á dag. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum smíð­ að um 60 þúsund bretti árlega en Síldarvinnslan, Eskja og Loðnu­ vinnslan eru á meðal stærstu kaupenda. Þetta kemur fram í til­ kynningu frá Síldarvinnslunni. Að auki er verið að byggja nýtt lager­ og viðgerðahús á svæðinu auk þess sem undirbúningsfram­ kvæmdir við stækkun fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar eru hafnar. Loks áformar Fjarðanet hf. að reisa nýja netagerð á hafnarsvæð­ inu. Blásól Jóns Ásgeirs gjaldþrota Eign ar halds fé lag Jóns Ásgeirs Jó­ hann es son ar, Þú Blá sól ehf., var úr sk urðað gjaldþrota þann 20. maí síðastliðinn. Fé lagið rataði í fjölmiðla eftir að greint var frá því að Pálmi Har alds son, sem kennd­ ur er við Fons, hefði lánað því einn millj arð króna. Lánið var greitt inn á persónulegan tékkareikning Jóns Ásgeirs. Mbl.is fjall­ aði um málið í gær og vísaði í skiptaloka­ tilkynningu í Lögbirtingablaðinu. Þar sagði að Pálmi og Jón Ásgeir hefðu komið sér saman um að lánið yrði notað til greiðslu Blásólar á hluta af Formúlu­1 kappakstursliðinu Williams. Keyrir 700 kílómetra fyrir lakara lyf Sæmundur fékk að prófa einn skammt af Eylea og fann strax mun Þ etta er alveg skelfilegt,“ segir Sæmundur Einars­ son, sem er mjög ósáttur að hafa ekki fengið augn­ lyfið Eylea undanfarin ár. Tugir Íslendinga fá ekki lyfið vegna þess að kvótinn hjá Land­ spítalanum, sem hljóðaði upp á 30 sjúklinga, er búinn. Sæmund­ ur er því einn þeirra óheppnu sem eru númer 31 í röðinni. Hann er með vota hrörnun í augnbotni og hefur síðustu sjö til átta ár þurft að keyra tæpa 700 kílómetra, frá Langanesi til Reykjavíkur, í hverjum mánuði til að komast í sprautur með ódýrara lyfi, Avastin. Hann er reyndar nýbyrjaður að fá sprautur á Akureyri, sem sparar honum ferðalagið til muna, en hann þarf þó af og til að keyra til Reykjavíkur. „Ég er búinn að bíða eftir þessu lyfi síðan farið var að fram­ leiða það og flytja inn. Ég er með tvo augnlækna og þeir hafa sagt: „Það vantar peninga, það vant­ ar peninga“.“ Á sama tíma hefur sjón hans farið versnandi. Þegar Sæmundur, sem er 64 ára, fór síðast í sprautu, fyrir ellefu dögum, fékk hann loks að prófa Eylea. „Læknarnir mínir fóru í þetta á fullu. Ég átti ekki að fá lyfið en þeir gátu logið út einn skammt. En svo er framhaldið algjörlega óráðið,“ segir hann og bætir við að hann hafi strax fundið mikinn mun á sér. Sæmundur hefur óskað eftir því að fá að borga lyfið sjálfur en það hefur ekki verið til umræðu. „Læknarnir mínir segja mér að þetta sé bara þriðja flokks heil­ brigðiskerfi,“ segir hann. „Þeir vilja að ég fái þetta lyf, því ég er með þeim yngri sem eru með þennan sjúkdóm en því miður þá vantar peninga.“ n freyr@dv.is Sæmundur Einarsson Þarf að keyra frá Langanesi til Reykjavíkur til að fá augnlyf. „Læknarnir vilja að ég fái þetta lyf, því ég er með þeim yngri sem eru með þennan sjúkdóm en því miður þá vantar peninga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.