Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Helgarblað 5.–8. júní 2015 Ekinn aðeins 19 þús km. - Uppgefin eyðsla er 8,4 L í blönduðum akstri. - Bíll sem tekur 7 fullorðna Sæti fellanleg niður í gólf ( Stow and Go ) Hliðarhurðir á báðum hliðum - Álfelgur Tölvustýrð miðstöð - ofl. Lækkað verð: 5.990 þús. Chrysler Voyager Diesel 3/ 2011 ← ÚRVAL FÆÐUBÓTAREFNA Glæsibæ & Holtagörðum Netverslun: www.sportlif.is Sterkustu brennslu- töflur í Evrópu Kærir meinta nauðgun í dag n eitt dramatískasta sakamál síðari ára n tvær meintar fjárkúganir og nauðgunarkæra a tburðarásin sem fór af stað í hádeginu á föstudaginn fyrir viku og það sem síð­ an hefur komið á daginn myndar einhverja drama­ tískustu atburðarás sem ratað hefur í fjölmiðla á síðustu árum. Í dag, föstudag, hyggst Hlín Einarsdóttir leggja fram kæru til lögreglu vegna meintrar nauðgunar. Samkvæmt yfirlýsingu Malínar Brand, systur Hlínar, er um fyrrverandi samstarfs­ mann Hlínar að ræða. DV hefur ítrekað leitað viðbragða hjá mann­ inum en hann hefur ekkert viljað tjá sig um málið. Sérsveitin handtók þær Föstudaginn 30. maí voru fjölmiðla­ systurnar Malín Brand og Hlín Einarsdóttir handteknar sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði af sérsveit Ríkislögreglustjóra. Handtakan átti sér stað í kjölfar þess að hótunarbréf, merkt eiginkonu forsætisráðherra, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, barst á heimili þeirra hjóna. Bréfið var sent með pósti og fékk fjölskyldan það í hendurnar síðdegis á fimmtudag. Bréfið var ómerkt. Í kjölfarið hafði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson samband við lögreglu. Ekki er búið að upplýsa um inni­ hald bréfsins en samkvæmt heimild­ um DV var hótunarbréfið að hluta handskrifað og að hluta til samsett úr stafaúrklippum. „Blandaðist inn í vitleysu“ Systurnar voru í haldi lögreglu í sól­ arhring og við yfirheyrslur játuðu þær báðar aðild sína að málinu. Í kjölfar frétta af málinu sendi Malín Brand frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagði mannorð sitt ónýtt því hún „blandaðist inn í vitleysu“. Þá sagði hún enn fremur að hún hafi ekki trúað því að nokkur tæki bréf systur sinnar alvarlega og segir það hafa komið flatt upp á sig: „… vegna þess að ég bjóst ekki við að það sem hún væri að gera, að einhver myndi virkilega taka mark á því.“ Malín segist hafa beðið í bíln­ um „… á meðan hún ætlar að athuga hvort sitt ætlunarverk hafi tekist en þegar ég sé í hvað stefnir þá ætla ég bara að keyra í burtu, því þetta var ekki það sem ég hafði hugsað mér.“ Maður kærir aðra meinta fjárkúgun Í kjölfar frétta af fjárkúguninni mætti maður á lögreglustöðina við Hverfis­ götu í Reykjavík í hádeginu á miðviku­ dag og lagði fram kæru vegna fjárkúg­ unar á hendur systrunum. Sú kæra var ekki tengd þeirri fjárkúgun sem systurnar höfðu játað að hafa tekið þátt í og beindist gegn forsætisráð­ herra, Sigmundi Davíð Gunnlaugs­ syni, og fjölskyldu. Þessi kæra snerist um það að systurnar hafi kúgað út úr manni fé eftir að hafa ásakað hann um að hafa nauðgað Hlín laugar­ dagskvöldið 4. apríl síðastliðinn. Með kærunni lagði maðurinn fram hljóð­ upptöku af símtali sem hann átti við Malín. Var á flokksþingi þegar hún tók við fénu Malín Brand sá um að hafa samskipti við manninn sem áttu sér fyrst stað mánudaginn 6. apríl, tveimur dög­ um eftir að meint nauðgun átti að hafa átt sér stað. Samkvæmt heim­ ildum DV voru manninum gefnir af­ arkostir, greiða 700 þúsund krónur í síðasta lagi í hádeginu daginn eftir og vera þannig laus allra mála. Ef hann legði ekki fram umrædda upphæð myndi Hlín leggja fram kæru gegn manninum. Samkvæmt heimildum DV höfðu vinir mannsins eindregið lagt það til að umrædd upphæð yrði ekki greidd en þar sem málið lá mjög þungt á honum ákvað hann að greiða upphæðina. Malín Brand tók við pen­ ingunum þann 11. apríl en þá var hún við störf á flokksþingi Framsóknar­ flokksins. Malín starfar sem blaða­ maður Morgunblaðsins en verður í leyfi til 1. ágúst. Samkvæmt öruggum heimildum DV var kvittunin skrifuð á bréfsefni Morgunblaðsins. „Velti fyrir sér að kæra“ Í kjölfar frétta af seinni fjárkúguninni sendi Malín aftur yfirlýsingu á fjöl­ miðla þar sem hún útskýrði þátt sinn. Yfirlýsingin barst fjölmiðlum í gær en þar sagði Malín að Hlín hafi hringt í hana að kvöldi laugardagsins 4. apríl og að hún hafi verið í miklu uppnámi og sagt að henni hafi verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum. „Hún velti þá fyrir sér að kæra manninn. Hann reyndi að ná sam­ bandi við hana daginn eftir en hún vildi ekki tala við hann. Í kjölfarið áttum við samskipti þar sem ég lýsti reiði minni en hann lagði áherslu, samkvæmt mínum skilningi, á að fá hana til að kæra ekki.“ Þá sagði hún einnig að Hlín hafi beðið hana að keyra sig á bráðamót­ töku fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem hún fékk aðhlynningu og skoðun. Greiðslan sögð miskabætur „Ástand hennar að mati starfsfólks þar benti til að hún hefði orðið fyr­ ir nauðgun. Maðurinn lagði áherslu á að mannorðs síns vegna myndi nauðg unarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki, valda sér miklum hnekki. Systir mín féllst á þessi sjónarmið og úr varð sátt með greiðslu miskabóta.“ Það var síðan rétt fyrir sex í gær­ kvöldi sem lögfræðingur Hlínar Einarsdóttur, Kolbrún Garðarsdóttir, staðfesti í samtali við DV að skjól­ stæðingur sinn myndi leggja fram kæru vegna nauðgunar hjá lögreglu í dag, föstudaginn 5. júní. n Atli Már Gylfason atli@dv.is „Ástand hennar að mati starfsfólks þar benti til að hún hefði orðið fyrir nauðgun Malín Brand Kærir Hlín Einarsdóttir hefur verið kærð fyrir tvær fjárkúganir. Mynd SiGtryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.