Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 5.–8. júní 2015 Komdu til oKKar ...Eða leigðu lyftu og gErðu við bílinn sjálf/ur auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562 Við gerum Við bílinn faglegar Viðgerðir Nærri uppselt UNICEF og Rauði krossinn hafa staðið fyrir neyðarsöfnun til styrktar þolendum jarðskjálftans mikla í Nepal. Liður í því eru styrktartónleikar sem lyfjafyrir­ tækið Alvogen stendur fyrir og rennur andvirði seldra miða óskert til samtakanna. Nú þegar hafa 1.000 miðar selst og að­ eins 100 miðar óseldir. Andvirði miðasölu verður skipt jafnt á milli samtakanna og er víst að rúmlega fimm milljónir munu safnast. Fjármunirnir renna óskertir til hjálparstarfs á vegum UNICEF og Rauða krossins í Nepal. Nokkrir af vinsælustu tón­ listarmönnum Íslands hafa ákveðið að leggja verkefninu lið og munu koma fram á tón­ leikunum sem haldnir verða í Silfurbergi í Hörpu þann 6. júní næstkomandi. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og fram koma Bubbi og Dimma, Retro Stef­ son, Amabadama og Ylja ásamt Sigríði Thorlacius. Gripnir glóðvolgir Laust eftir klukkan þrjú aðfara­ nótt fimmtudags svaraði lög­ reglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um innbrot í austur­ borginni. Það var starfsmaður Öryggismiðstöðvarinnar sem tilkynnti um innbrot og þjófnað í húsnæði. Hann sagði að tveir menn væru inni í húsinu og óskaði eftir lögreglu á staðinn. Lögregla kom á staðinn og hand­ tók mennina. Í bifreið þeirra var nokkuð af ætluðu þýfi. Mennirnir voru vistaðir í klefa. Rjúpum hefur fjölgað Aðeins var aukning á Norðaustur- og Suðurlandi R júpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Ís­ lands vorið 2015 er lokið. Sam­ andregið fyrir öll talninga­ svæði var meðalfjölgun rjúpna 8 prósent á milli áranna 2014 og 2015. Stofnbreytingar voru mismun­ andi eftir landshlutum og aðeins á Norðausturlandi og Suðurlandi var aukning. Í öðrum landshlutum fækkaði rjúpum eða stofninn stóð í stað. Reglubundnar sveiflur í stofn­ stærð sem taka 10 til 12 ár hafa ein­ kennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjöl­ far friðunar 2003 og 2004 og sam­ dráttar í veiði frá 2005 og er nú mun styttra milli hámarka en áður, að því er kemur fram í tilkynningu frá Nátt­ úrufræðistofnun. Í sögulegu samhengi er rjúpnafjöldinn 2015 undir meðallagi alls staðar nema á Norðausturlandi og Austurlandi. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varp­ árangri rjúpna, afföllum 2014 til 2015 og veiði 2014. n freyr@dv.is Rjúpa Í sögulegu samhengi er rjúpna- fjöldinn undir meðallagi alls staðar nema á Norðausturlandi og Austurlandi. Mynd dV Stundin leitar að nýjum hluthöfum n Stjórnin samþykkti hlutafjáraukningu n Vilja fá inn nýja en litla hluthafa S tjórn Útgáfufélagsins Stund­ arinnar ehf. hefur sam­ þykkt að auka hlutafé félags­ ins með því að bjóða til sölu eignarhluti í fjölmiðlinum. Greint er frá ákvörðun stjórnarinnar á vef Fjölmiðlanefndar og að tilkynning um hlutafjáraukninguna hafi borist nefndinni þann 29. maí síðastliðinn. „Þetta er vinna sem er í gangi og það lá fyrir þegar við stofnuðum mið­ ilinn að við ætluðum að bjóða fólki að kaupa lítinn hlut í blaðinu og fá inn marga litla hluthafa. Það er stefnan,“ segir Ingibjörg Dögg Kjartansdótt­ ir, ritstjóri og einn eigenda Stundar­ innar, í samtali við DV. 2,5 milljóna hámark Samkvæmt heimildum DV hafa eigendur fjölmiðilsins meðal annars rætt við fjársterka einstaklinga úr ís­ lensku viðskiptalífi. Einkahlutafé­ lagið var stofnað í lok síðasta árs en Stundin hóf göngu sína um miðjan febrúar. Fjölmiðillinn er í eigu Ingi­ bjargar, Jóns Trausta Reynissonar, framkvæmdastjóra Stundarinnar og ritstjóra, Heiðu B. Heiðarsdóttur, Jóns Inga Stefánssonar og einkahlutafé­ lagsins Góður punktur. Það er aftur í eigu Reynis Traustasonar, fyrrverandi ritstjóra DV, og Halldóru Jónsdóttur sjúkraliða. Allir fimm hluthafar fé­ lagsins eiga fimmtungshlut í því sam­ kvæmt skráningu Fjölmiðlanefndar um eignarhald fjölmiðilsins. „Það er þak á því hversu mikið nýir hluthafar geta keypt fyrir og við höf­ um haldið þeirri stefnu sem við lögð­ um upp með að fá með okkur sem flesta og sem breiðast eignarhald. Eftir sem áður mun sá hópur sem stofnaði Stundina eiga meirihluta í henni,“ segir Ingibjörg og svarar að­ spurð að nýir hluthafar geti ekki keypt sig inn í félagið fyrir hærri upphæð en tvær og hálfa milljón króna. Reynir Traustason segir í samtali við DV að langt sé liðið síðan stjórnin hafi heimilað hlutafjáraukninguna. Aðspurður um hversu mikið eigi að auka hlutafé félagsins svarar Reynir að hann hafi þær upplýsingar ekki á reiðum höndum. „Þetta er eins og við lögðum upp með í upphafi en ég man ekki þess­ ar tölur,“ segir Reynir. Ekki náðist í Jón Trausta Reynisson, ritstjóra og fram­ kvæmdastjóra Stundarinnar. Slógu met með hópfjármögnun Stundin, sem í vikunni gaf út sitt fimmta tölublað og rekur einnig vef­ miðil, var stofnaður með tilstuðlan hópfjármögnunar í gegnum vefsíð­ una Karolina Fund. Söfnunin vakti mikla athygli enda slógu aðstand­ endur hennar nokkur met á hóp­ fjármögnunarsíðunni. Þar var hægt að gerast áskrifandi að miðlinum og kaupa auglýsingar til styrktar góðgerðarmála að eigin vali. Átak­ ið hófst 5. janúar síðastliðinn og einungis einum degi síðar höfðu stofnendurnir safnað 32 prósentum af markmiðum sínum eða rúmlega 1,2 milljónum króna. Var það besta byrjun í sögu Karolina Fund. Ein­ um degi síðar var markmiðinu um að safna fimm milljónum króna til rekstursins náð. Tæpum mánuði síðar var annað met slegið, 45 þús­ undir evra, eða tæpar 50 milljónir króna, höfðu safnast, eða 152 pró­ sent af upphaflegu markmiði. n „Það er þak á því hversu mikið nýir hluthafar geta keypt fyrir. Hluti eigenda- hópsins Jón Ingi Stefánsson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Jón Trausti Reyn- isson og Heiða B. Heiðarsdóttir eiga öll 20 prósenta hlut í Stundinni. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.