Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 16
16 Fréttir E inar K. Guðfinnsson, þing- maður Norðvesturkjör- dæmis og forseti Alþingis, hringdi í Guðmund Árna- son, ráðuneytisstjóra fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins, síðasta sumar til að gera grein fyrir óánægju viðskiptavina Sparisjóðs Bolungarvíkur vegna samruna fyr- irtækisins við Sparisjóð Norður- lands. Einar fullyrðir að hann hafi einungis komið áhyggjum af viss- um þáttum sameiningarinnar áleið- is og að samskiptin hafi ekki falið í sér nein tilmæli af hans hálfu. For- stjóri Bankasýslu ríkisins hefur full- yrt að Guðmundur hafi í tvígang, í júní og júlí 2014, haft samband við hann til að hafa áhrif á val á stjórn- arformanni sameinaðs sparisjóðs og að fá stjórnarfundi fyrirtækis- ins frestað. Ráðuneytið hafnaði ásökununum í síðustu viku en hef- ur staðfest að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi óskað eftir því við ráðuneytisstjór- ann að upplýsingum um óánægju heimamanna yrði komið á framfæri við Bankasýsluna. „Sjálfur hringdi ég eitt sím- tal í fjármálaráðuneytið og átti sömuleiðis annað samtal við for- stjóra Bankasýslunnar og greindi frá þessum áhyggjum en það var ekki um nein óeðlileg afskipti að ræða. Ég taldi hins vegar, vegna þess að ég hafði áhyggjur af þessu máli, mikil- vægt að þessar upplýsingar kæmust skilmerkilega á framfæri,“ segir Ein- ar. Átti stofnfé í sjóðinum Einar er Bolvíkingur og staðfest- ir í samtali við DV að hann hafi verið stofnfjárhafi í Sparisjóði Bolungarvíkur og eigi stofnfé í Sparisjóði Norðurlands eftir sam- eininguna sem gekk í gegn í júlí í fyrra. „Ég er stofnfjáreigandi eins og svo margir í bænum en hef ekki sótt aðalfundi núna um langt árabil. Mér var kunnugt um þessa óánægju og ég benti þeim sem voru að ræða þessi mál við mig á að koma óá- nægju sinni á framfæri. Ég geri mér grein fyrir mikilvægi þessarar stofn- unar fyrir samfélagið og hafði mikl- ar áhyggjur af því að mál væru að skipast í óefni en sem betur fer varð það ekki,“ segir Einar. Aðspurður hvað hann og aðrir viðskiptavinir sparisjóðsins óttuð- ust svarar Einar að áhyggjur þeirra hafi snúist um það hvort samein- ingin ætti eftir að leiða til þess að sjóðurinn yrði ekki áfram „spari- sjóður byggðarlagsins“. Margir hafi rætt það við hann að ef svo færi ættu ýmsir viðskiptavinir fyrirtækis- ins eftir að taka fjármuni sína út úr sparisjóðinum. „Það var fólk í bænum sem talaði við mig og hafði miklar áhyggjur af framtíð sparisjóðsins. Eins og áður segir kom ég þessum ábendingum með kurteisislegum hætti á fram- færi og taldi það skyldu mína að gera það.“ Stjórnarfundinum var frestað Líkt og áður segir hefur Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkis- ins, fullyrt að að Guðmundur Árna- son hafi haft samband við hann síð- asta sumar til að hafa áhrif á val á stjórnarformanni hins sameinaða sparisjóðs og að stjórnarfundi hans yrði frestað. Ásakanirnar komu fyrst fram í umsögn Bankasýslu ríkisins við frumvarp Bjarna Benediktsson- ar, fjármála- og efnahagsráðherra, um meðferð og sölu eignarhluta rík- isins í fjármálafyrirtækjum. Ráðu- neytið hefur hafnað þeim en for- stjórinn ítrekað að hann standi við þær að öllu leyti og að hann telji meint tilmæli ráðuneytisstjórans ekki vera í samræmi við lög þar sem það sé hlutverk kjörinna stjórna að skipta með sér verkum og kjósa sér formann, en ekki eigenda nema samþykki kveði svo á um. Íslenska ríkið á í dag 79,2 prósent í Sparisjóði Norðurlands en átti 90,9 prósent af stofnfé Sparisjóðs Bolungarvíkur. Hólmgeir Karlsson, stjórnar- formaður Sparisjóðs Norðurlands, segir í samtali við DV að Jón Gunnar hafi gert honum grein fyrir meintum tilmælum ráðuneytisstjórans stuttu eftir að samruninn gekk í gegn. Ekki náðist í Guðmund við vinnslu frétt- arinnar. „Ég get staðfest að þetta varð til þess að við þurftum að fresta fyrsta stjórnarfundi sameinaðs sparisjóðs um nokkra daga,“ segir Hólmgeir en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Urðu undir Áður en sameiningin gekk í gegn í lok júní í fyrra höfðu stjórnir spari- sjóðanna tveggja rætt hvernig skipta ætti ábyrgðarstöðum á milli sjóð- anna. Samkvæmt heimildum DV var þá meðal annars samið um stað- setningu höfuðstöðvanna, kenni- tölu og nafn sparisjóðsins, en einnig Helgarblað 5.–8. júní 2015 GleðileGt sumar 12” til 24” barnareiðhjól, verð frá kr. 25.900,- Frábært úrval reiðhjóla og aukahluta • Mikið úrval af reiðhjólahjálmum Focus Whistler 4.0 29“ ál stell-Tektro Auriga Vökvabremsur- Shimano Deore Afturskiptir- 27 gíra. Kr.119.000 Focus raVeN rooKie DoNNa 1.0 26“ ál stell-Promax V-Bremsur-Shimano 21 gíra Focus raVeN rooKie 1.026“ ál stell-Promax V-Bremsur- Shimano 21 gíra Kr.69.900Kr.69.900 Dalshraun 13 220 Hafnarfjörður Sími:565 2292 Forseti Alþingis lýsti áhyggjum Bolvíkinga Hafði samband við ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins vegna skipanar stjórnarformanns Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Útibúið í Bolungarvík Kosið var um Ráðuneytisstjórinn Guðmundur Árnason. Forstjóri Bankasýslunnar Jón Gunnar Jónsson. Boða til þög- ulla mótmæla BHM og Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga hafa boðað til þög- ulla mótmæla við Stjórnarráð- ið í dag, föstudag, kl. 9.15 og þar til ríkisstjórnarfundi lýkur. Fé- lagsmenn eru hvattir til að fjöl- menna en yfir 2.000 manns hafa boðað komu sína á Facebook. Engin lausn virðist í sjónmáli í deilu BHM og Félags hjúkrunar- fræðinga við ríkið en ríkið hef- ur þar lagt áherslu á að fylgt sé þeirri línu sem lögð var í nýlegum samningum Samtaka atvinnulífs- ins við VR og Flóabandalagið en á það fallast BHM og hjúkrunar- fræðingar ekki. Einungis konur í bæjarstjórn Einungis konur munu sitja fyrsta fund bæjarstjórnar Fjarðabyggð- ar eftir sumarleyfi, að því er Aust- urfrétt greinir frá. Fjarðalistinn lagði fram tillögu um kvennafund- inn í tilefni þess að 100 ár verða liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt þann 19. júní. Kvennafundurinn átti upphaflega að verða síðasti bæjarstjórnar- fundur fyrir sumarfrí sem er í dag, föstudag. Af því gat þó ekki orðið og var honum því frestað. Konur voru í fyrsta skipti í meirihluta á síðasta bæjarstjórnarfundi, eða sjö konur gegn tveimur körlum. Að loknu sumarleyfi verða fimm kon- ur fastafulltrúar í bæjarstjórninni en fjórir karlar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.