Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Side 17
Fréttir 17 S parifélagið hf. ætlar að leggja fram tilboð í alla stofnfjár- hluti Arion banka í AFLi sparisjóði, stærsta sparisjóði landsins. Félagið hefur sent bank- anum gögn um að það hafi að bera nægan fjárhagslegan styrk til að fá efnt kauptilboð sitt og uppfylli lág- marks eiginfjárkröfur Fjármála- eftirlitsins (FME) til sparisjóðsins. Þetta staðfestir Ingólfur H. Ing- ólfsson, fjármálaráðgjafi og einn eigenda Sparifélagsins, en hann segir Arion banka nú skoða gögn- in og að búist sé við svari á næstu dögum. Aðspurður hverjir verði á bak við væntanlegt tilboð svarar Ingólfur að fyrir utan hann og aðra 22 innlenda hluthafa Sparifélagsins komi einnig þrír erlendir fjárfestar að því. „Það eru erlendir fjárfestar og við getum því miður ekki upplýst strax hverjir eru í þessum hópi en ég get staðfest að ég leiði hann. Við ætlum okkur að stórefla spari- sjóðinn og setja inn meira eigið fé og reka það módel sem við höfum kynnt síðan 2010 og gengur und- ir nafninu Sparibankinn, sem yrði fjármálastofnun á landsvísu,“ segir Ingólfur. Vilja efla AFL Ingólfur segir Sparifélagið ætla að bæta eiginfjárstöðu AFLs sem varð til við sameiningu Spari- sjóðs Siglufjarðar og Sparisjóðs Skagafjarðar árið 2008. Eins og DV hefur greint frá uppfyllir sjóð- urinn ekki að fullu eiginfjárkröfu FME. Rannsókn á lánasafni AFLs, sem farið var í á síðasta ári, leiddi í ljós 454 milljóna króna virðisrýrn- un lánasafns sjóðsins. Arion banki eignaðist 95 prósent í AFLi við yf- irtöku á Sparisjóði Mýrasýslu árið 2009 og á í dag 99,3 prósent í hon- um. Bankinn ákvað um miðjan apríl síðastliðinn að setja sjóðinn í söluferli en Samkeppniseftirlitið hefur gert honum að selja hann fyr- ir 1. ágúst næstkomandi. „Við ætlum að stórefla sjóðinn og setja inn meira eigið fé. Okkur er alvara enda taka þessir erlendu fjárfestar ekki þátt í neinum leik- araskap,“ segir Ingólfur. Horft til samruna Ljóst er að hópur Ingólfs er ekki eini fjárfestahópurinn sem ætlar að gera tilboð í stofnfjárhlutina í AFLi. DV greindi í apríl frá því að Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi þing- maður Sjálfstæðisflokksins, hefði tekið að sér að aðstoða hóp fjárfesta sem vill kaupa sjóðinn með það fyrir augum að sameina hann við fleiri sparisjóði. Í byrjun maí sagði DV síðan frá því að Tryggvi hefði meðal annars rætt við Kaupfélag Skagfirðinga (KS) um mögulega aðkomu fyrirtækisins að tilboð- inu og að hann hafi einnig leitað til nokkurra fjársterkra einstaklinga og fyrirtækja á Norðurlandi vestra. Róbert Guðfinnsson, fjárfestir og athafnamaður frá Siglufirði, stað- festi þá í samtali við DV að hann hefði afþakkað boð Tryggva um að ganga til liðs við hópinn. Samkvæmt heimildum DV horf- ir hópur Tryggva einnig til þess að leggja Sparisjóði Norðurlands til nýtt stofnfé og komast þannig inn í eigendahóp fyrirtækisins. Ingólf- ur segir Sparifélagið einnig horfa til Sparisjóðs Norðurlands. Félagið vilji auka eigið fé sjóðsins og sam- eina hann og AFL sparisjóð. Spari- félagið hefur lengi viljað kaupa hlut Bankasýslu ríkisins í sparisjóðum. Í október 2013 greindi Viðskipta- blaðið frá því að félagið væri full- fjármagnað og að það hefði safn- að fjárfestingarloforðum upp á 7,4 milljónir evra, jafnvirði 1,1 millj- arðs króna. n Helgarblað 5.–8. júní 2015 FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , FÆST Í V E RS LUNUM UM LAND A L LT Forseti Alþingis lýsti áhyggjum Bolvíkinga hverjir fengju stöðu stjórnarfor- manns og sparisjóðsstjóra. Á end- anum varð það hins vegar svo að stjórnarformaðurinn og sparisjóðs- stjórinn komu frá Sparisjóði Norð- urlands, höfuðstöðvarnar eru stað- settar á Dalvík og kennitala og nafn Sparisjóðs Norðurlands voru notuð. Heimildir herma að ýmsir stofnfjár- eigendur Sparisjóðs Bolungarvíkur hafi gert ráð fyrir að fulltrúi þeirra fengi stjórnarformannssætið. Var þá meðal annars horft til Önnu Sigríð- ar Jörundsdóttur, fyrrverandi stjórn- armanns Sparisjóðs Bolungarvíkur og núverandi stjórnarmanns Spari- sjóðs Norðurlands. Eins og DV greindi nýverið frá hefur Fjármálaeftirlitið (FME) gef- ið stjórnendum Sparisjóðs Norð- urlands frest til seinni hluta júní- mánaðar til að tryggja að sjóðurinn uppfylli eiginfjárkröfu stofnunar- innar. Eiginfjárhlutfallið hefur ver- ið talsvert undir viðmiði FME síðan farið var í 207 milljóna króna niður- færslu á lánasafni sem tilheyrði áður Sparisjóði Bolungarvíkur. n Sparisjóðs Norðurlands sameiningu Sparisjóðs Bolungarvíkur og Sparisjóðs Norðurlands þann 27. júní í fyrra. Leggja fram tilboð í stærsta sparisjóðinn Sparifélagið ætlar að bjóða í AFL sparisjóð líkt og hópur Tryggva Þórs Herbertssonar „Okkur er alvara enda taka þess- ir erlendu fjárfestar ekki þátt í neinum leikaraskap Baráttan um AFL Ingólfur H. Ingólfsson hefur fengið erlenda fjárfesta til að koma að tilboði í AFL sparisjóð en fjárfestahópur sem Tryggvi Þór Herbertsson hefur leitt saman ætlar einnig að leggja fram tilboð í stofnfjárhluti Arion banka í sjóðnum. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Forseti Alþingis Einar K. Guðfinnsson átti stofnfé í Sparisjóði Bolungarvíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.