Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 24
Helgarblað 5.–8. júní 2015
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
24 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þögnin rofin
Það er ekki hægt
að lifa á þessu
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ, segir lífeyrisþega hafa setið eftir. – DV
Tengdasonur
Gunnlaugs Sævars í
stjórn Árvakurs
Breytingar urðu á eignarhaldi
og stjórn Árvakurs, útgáfufélags
Morgunblaðsins, á aðalfundi fé
lagsins sem fór fram undir lok
maímánaðar. Óskar Magnússon,
fyrrverandi útgefandi blaðsins,
seldi huti sína í félaginu og Katrín
Pétursdóttir, eigendi og forstjóri
Lýsis, og Friðbjörn Orri Ketilsson
komu ný inn í stjórn Árvakurs.
Friðbjörn Orri, sem er líklega
helst þekktur fyrir að hafa ver
ið um tíma ritstjóri vefmiðilsins
AMX, tekur sæti í stjórn félags
ins ásamt ýmsu þekktu fólki úr
viðskiptalífinu. Auk Katrínar og
Friðbjörns Orra er stjórn Árvak
urs skipuð þeim Sigurbirni Magn-
ússyni, sem er meðal annars lög
maður Ísfélags Vestmannaeyja,
Ásdísi Höllu Bragadóttur, eiganda
heimahjúkrunarfyrirtækisins
Sinnum og fyrrverandi bæjar
stjóra Garðarbæjar, og Bjarna
Þórði Bjarnasyni, aðstoðarfram
kvæmdastjóra verðbréfafyrirtæk
isins Arctica Finance. Friðbjörn
Orri er tengdasonur Gunnlaugs
Sævars Gunnlaugssonar, stjórnar
formanns Ísfélagsins, sem er
stærsti einstaki hluthafi útgáfufé
lags Morgunblaðsins.
Lömuð nefnd
Athygli vekur að endurupptöku
nefnd er hálflömuð vegna beiðni
Ólafs Ólafssonar um að Al Thani
málið verði tekið
til meðferðar og
dómsuppsögu að
nýju.
Formaður
nefndarinnar
Björn Bergsson,
Þórdís Ingadóttir
nefndarmaður og varamaður
hennar, Sigurður Tómas Magn
ússon hafa öll ákveðið að víkja
vegna náinna tengsla við emb
ætti sérstaks saksóknara. Er
áleitin spurning hvort fulltrú
ar í slíkri nefnd eigi ekki að vera
óháðari ákæruvaldinu en svo.
Þá hefur Þórólfur Jónsson,
lögmaður Ólafs, krafist þess að
Kristbjörg Stephensen borgarlög
maður víki sæti, en hún er vara
maður í endurupptökunefnd.
Viðskiptablaðið greindi frá því í
apríl að Kristbjörg væri mikil vin
kona Bjargar Thorarensen laga
prófessors, eiginkonu forseta
Hæstaréttar.
Eitruð pilla
Gunnar Bragi Sveinsson sendi for
manni Bjartrar framtíðar eitraða
pillu á Facebook í fyrradag. Sagði
hann framlag Guðmundar Stein-
grímssonar til íslenskra stjórn
mála ekkert og að hans helsta
afrek væri að leggja til breytingu
á klukkunni. „Auðvitað er for
maður BF leiður á því að mæta í
vinnuna þar sem hann gæti nýtt
tímann í að flatmaga og horfa á
Skarðsheiðina, líkt og hann gerði
þegar aðrir björguðu þjóðinni frá
Icesave,“ sagði þungorður Gunn
ar Bragi. Staða Bjartrar framtíðar
er ekki góð samkvæmt skoðana
könnunum sem hlýtur að vera
mikið áhyggjuefni fyrir formann
inn.
F
jölmennur hópur kvenna
hefur risið upp í Facebook
hópnum Beauty Tips og lýst
reynslu sinni af því að hafa
orðið fyrir kynferðisofbeldi. Fram
tak þessara kvenna er lofsvert, þær
eru hugrakkar og kjarkmiklar og
skila skömminni þangað sem hún
á heima, hjá gerendunum. Fram
taki kvennanna hefur verið líkt við
byltingu og er það síður en svo fjar
stæðukennd samlíking.
Þeir tímar voru þegar ákveðin
tilhneiging var að varpa hluta af
ábyrgðinni á nauðgun til fórnar
lambanna. Konum var sagt að væru
þær fáklæddar eða úti á lífinu langt
fram á nótt væru þær að bjóða
hættunni heim og gætu sjálfum sér
um kennt ef illa færi. Viðhorf eins
og þessi eru blessunarlega ekki
lengur áberandi og mæta almennri
fordæmingu láti þau á sér kræla.
„Orð skipta máli og þegar við
stöndum saman þá verður allt auð
veldara,“ sagði ein kvennanna á
Beauty Tips. Samstaða kvennanna
í hópnum er aðdáunarverð. Þær
hafa orðið að líða og þurft að vinna
úr erfiðri og sársaukafullri reynslu
sem þær deila nú með öðrum, og
sumar eru að segja frá ofbeldinu í
fyrsta sinn. Allar eru þessar konur
að senda sterk skilaboð til samfé
lagsins um að nauðganir, og annað
ofbeldi, séu skelfilegur glæpur sem
eigi ekki að umbera og ekki megi
þegja um. Samfélagið verður að
hlusta.
Margir hafa á liðnum árum
orðið til að deila á íslenska réttar
kerfið fyrir að taka illa á þessum
málum. Sönnunarbyrði er oft mjög
erfið, málum er vísað frá og ekki er
sakfellt nema í litlum hluta þeirra,
sem þýðir að fjölmargir ofbeldis
menn eru ekki dregnir til ábyrgðar.
Þessi vitneskja, sem er almenn, ger
ir að verkum að margar konur sem
hefur verið nauðgað hika við að
leggja fram kæru.
Í fréttatíma RÚV var nýlega
afar athyglisvert viðtal við Eyrúnu
Eyþórsdóttur, mannfræðing
og lögreglufulltrúa í kynferðis
afbrotadeild lögreglunnar á höfuð
borgarsvæðinu. Hún sagðist hafa
verið með mál þar sem menn brutu
gegn konum án þess að gera sér
grein fyrir því. Menn hefðu síðan
brotnað niður í skýrslutöku þegar
þeir heyrðu lýsingar kvennanna
á atburðinum. „Oft virðast þeir
ganga út frá því að ef það kemur
ekki skýrt nei – ekki var sparkað eða
lamið – hafi samþykki legið í loft
inu,“ segir Eyrún. Hún segir að til
finning hennar sé að þetta tengist
þeirri hugmyndafræði að karlmenn
hafi einhvers konar umráðarétt yfir
konulíkamanum.
Í DV í dag segja nokkrar konur
átakanlegar sögur af kynferðis
ofbeldi sem þær voru beittar og
hafði afgerandi áhrif á líf þeirra.
Þetta eru sláandi frásagnir. „Það er
ekki bara misnotkunin sem eyði
leggur líf heldur þöggunin sem
fylgir í kjölfarið,“ segir ein þeirra
sem neitar að þegja lengur um upp
lifun sína.
Umræðan á Beauty Tips er
merkileg, þörf og gagnleg og getur
ekki annað en verið til góðs. Skila
boðin eru skýr: Hver einasta kona
ræður yfir eigin líkama. n
Allt í einu er mann-
orðið bara farið
Malín Brand segist hafa flækst inn í fjárkúgunarmál systur sinnar. – Vísir.is
Algengasta afsökunin
sem ég heyri
Kristrún Sveinbjörnsdóttir einkaþjálfari segir að börn séu ekki fyrirstaða á æfingum. – DV
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Umræðan á
Beauty Tips er
merkileg, þörf og gagnleg
og getur ekki annað en
verið til góðs.
Sprek á verðbólgubálið
N
ýtt fasteignamat er eldi
viður á verðbólgubálið.
Matið á verslunar og skrif
stofuhúsnæði í miðbænum
hækkar í sumum tilfellum
um 25% annað árið í röð. Hvern
ig eiga fyrirtækin að mæta svona
tveggja stafa hækkunum ofan á nýja
kjarasamninga? Einhvers staðar að
verða peningarnir að koma. Það er
alveg ljóst að verðbólgan á eftir að
taka snöggan kipp og ekki er ólík
legt að stýrivextir Seðlabankans eigi
eftir að fara upp í tveggja stafa tölu
áður en yfir lýkur. Þar með hækka
öll lán og þannig er fólk á lands
byggðinni látið borga hækkan
ir í miðbæ Reykjavíkur – tær snilld
hefði einhver sagt!
Þeir sem græða mest á verð
bólgunni og hækkandi fasteigna
mati eru bankarnir. Þetta mun
rétta rekstur þeirra við, sérstaklega
reglulegan rekstur sem hefur verið
ansi slakur undanfarið. Það er því
ekki undarlegt að bankamenn vilji
fá hækkaðar bónusheimildir, verð
bólgan fyllir jú allar bónuskistur
þeirra sama hvort þeir eru vakandi
eða sofandi, og því er mikilvægt að
fá heimildir til að tæma þær.
Íslenska vitleysan heldur áfram. n
„Þeir sem græða
mest á verðbólg-
unni og hækkandi fast-
eignamati eru bankarnir.
Andri Geir Arinbjarnarson
verkfræðingur
Af Eyjunni