Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Side 25
Helgarblað 5.–8. júní 2015 Umræða 25
Myndin Sveitalíf Rollurnar í Hvassahrauni þekkja sjálfsagt ekkert annað en sveitalífið, sem getur verið notalegt að sumri. mynd Sigtryggur ari
H
æstvirtur forsætisráðherra
heldur því fram. Hann neit
ar að horfast í augu við
landsmenn og lokar augun
um fyrir þeim staðreyndum
sem blasa við. Hann er í forsvari fyrir
veruleikafirringu. Byrjum á frum
varpi um makrílkvótann. Þar er verið
að sjá til þess að sömu aðilar og eiga
allan annan veiðikvóta sölsi makríl
kvótann undir sig. Þar er verið að sjá
til þess að eiginkonur flokksfélaga fái
sinn stóra bita af kökunni. Færeyingar
leigðu makrílkvótann út og þjóðar
búið fékk milljarða í tekjur ár hvert af
þeim sökum. Hvað er að þeirri leið?
Það yrði bara val þeirra sem vilja
stunda veiðar hvort þeir bjóði í kvót
ann. Stjórnvöld ætla að sjá til þess
að örfáir einstaklingar leiki sér með
þessi verðmæti sín á milli og borgi sér
tugmilljarða í arð á sama tíma og deilt
er út íspinnum til þeirra sem skapa
auðinn fyrir þá.
Og hæstvirtur forsætisráðherra
segir að ég sé veruleikafirrtur!
að hugsa sér!
Nú fyrir stuttu þurfti ég að njóta þjón
ustu starfsfólksins á LSH. Mér fannst
sárt að horfa upp á að það yndislega
fólk, sem leggur sig fram í sínu starfi,
fái ekki kjör í takt við það gríðarlega
álag sem starfinu fylgir. Læknirinn
sem skar mig var búinn að standa í
þrjá sólarhringa. Að hugsa sér! Þegar
fólk í heilbrigðisþjónustunni rís upp
og krefst mannsæmandi kjara í formi
launa og aðstöðu er spyrnt við fótum
og talað um frekju og veruleikafirr
ingu. Þetta er fólkið sem sér til þess
að við höldum lífi þegar slys og veik
indi steðja að okkur. Ekki gleyma
því. Ég held að það sé hægt að setja
meiri fjármuni í heilbrigðiskerf
ið með tilfærslu fjármuna. Við sjá
um gríðarlegar hagnaðartölur í
fjármálakerfinu. Svo eru uppi hug
myndir hjá hæstvirtum fjármála
ráðherra að slaka á reglum varðandi
arðgreiðslur í fjármálakerfinu? Bank
arnir eru jú meira og minna í eigu ís
lenska ríkisins. Eyrnamerkjum því
hagnaðinn til uppbyggingar í heil
brigðiskerfinu.
Og hæstvirtur forsætisráðherra
segir að ég sé veruleikafirrtur!
Sterkasti lifir af
Húsnæðismál ungs fólks hafa verið
í ólestri nánast síðan ég steig mín
fyrstu skref í þá átt að eignast hús
næði fyrir hartnær þrjátíu árum.
Leigumarkaður hér á landi hefur ver
ið í anda Darwins þar sem hinn sterk
asti lifir af – með herkjum þó. Fólk á
leigumarkaði borgar allt að 70% af
ráðstöfunartekjum fyrir litlar kytrur.
Með börn á framfæri! Hvernig á fólk
að geta lifað mannsæmandi lífi og
boðið börnunum sínum upp á öruggt
umhverfi þegar unnið er myrkranna á
milli til að hafa í sig og á? Ég er ekki
hissa á þeim félagslegu vandamál
um sem grassera í íslensku þjóðfé
lagi þegar foreldrum er ekki gert kleift
að sinna börnunum sínum svo vel sé.
Nú hugsa sumir: „Þarna er um lítið
hlutfall að ræða og eitthvert lið sem
nennir ekki að mennta sig.“ Við skul
um ekki gleyma að þetta er fólkið sem
fer að vinna í fiskvinnslunni, við þrif
á hótelum og önnur störf sem fæstir
nenna að vinna og margir líta niður
á. En það á að sýna þessum störfum
virðingu. Hvað skyldi verða um fisk
inn ef hann er ekki unninn? Hvernig
ætli ferðamönnum líði á grútskítug
um gististað? Og hvernig skyldi okkur
líka að borða af pappadiskum af því
að enginn nennir að vinna við upp
vask á veitingastöðum? Því miður er
frumvarp hæstvirts félagsmálaráð
herra um úrbætur í húsnæðismálum
ekki til úrbóta í þessum málum. Þeim
efnameiri er hyglað enn eina ferðina.
Af hverju getur ekki heilbrigt hús
næðiskerfi þrifist hér á landi, hvort
sem er í formi þess að eiga eða leigja?
Spyr sá sem ekki veit.
Og hæstvirtur forsætisráðherra
segir að ég sé veruleikafirrtur!
Fólki misbýður
Undanfarin átök á vinnumarkaði
eiga sér dýpri rætur en tal um kaup og
kjör. Fólki er farið að ofbjóða tugmillj
arða arðgreiðslur til fárra útvalinna
og að fá svo í andlitið að ef þeirra kjör
skáni fari allt til helvítis vegna verð
bólgu. Er þetta kannski tilbúið hag
fræðilegt vopn til að hafa stjórn á al
múganum? Það virðist vera hægt
að dæla út í hagkerfið arðgreiðslum
upp á 24 milljarða án þess að nokkuð
verðbólguskot komi. Ekki fengu þeir
sem sköpuðu arðinn sinn skerf. Erum
við kannski komin að kjarna máls
ins? Misskiptingunni. Samkvæmt töl
um frá Hagstofunni eiga 10% þjóðar
innar um það bil 70% af auðæfum
landsins. Ef þjóðarkökunni væri skipt
á sanngjarnari hátt er ég sannfærður
um að hér mundi byggjast upp heil
brigðara og réttlátara þjóðfélag. Við
miðunarþjóðir virðast geta búið sínu
fólki meira öryggi í menntamálum og
heilbrigðismálum.
Og hæstvirtur forsætisráðherra
segir að ég sé veruleikafirrtur! n
Er ég veruleikafirrtur?
„Ef þjóðarkökunni
væri skipt á sann-
gjarnari hátt er ég sann-
færður um að hér mundi
byggjast upp heilbrigðara
og réttlátara þjóðfélag.
Öryrkjar eru ruslið hérna
á Íslandi
andri Hrannar Einarsson lýsti kjörum sínum í myndbandi á Facebook – DV
Það sló ekkert á
neysluna
Þórarinn tyrfingsson læknir segir fréttir af dauðsföllum ekki draga úr neyslu efna. – DV
Ég er baráttukona
Hlín Einarsdóttir var í viðtali við Stundina skömmu áður en fjárkúgunarmálið kom upp. – Stundin
Mest lesið
á DV.is
1 Fjölskyldu Sigmundar verulega brugðið Hótan-
irnar voru grófar Samkvæmt öruggum
heimildum DV var forsætisráðherra og
fjölskyldu hans verulega brugðið þegar
handskrifað bréf, sem innihélt fjárkúg-
un, barst á heimili hennar.
Lesið: 45.095
2 Systurnar ásökuðu mann um nauðgun og
kröfðust greiðslu Maður sem
lagði fram kæru til lögreglu gegn
fjölmiðlasystrunum Malín Brand og Hlín
Einarsdóttur var, samkvæmt heimildum
DV, ásakaður um nauðgun.
Lesið: 39.199
3 Sakar Hildi Lilliendahl um að safna sögum um
sig Þórarinn Þórarinsson, blaða-
maður Séð og heyrt, birti á dögunum
opna færslu á Facebook-síðu sinni
þar sem hann segir að hafin sé „smear
campaign“ gegn honum og að Hildur
Lilliendahl, sem hann kallar „Führer“, sé
að safna sögum um hann. „Nei, það er
nákvæmlega ekkert til í því. Ég veit ekki
hvað hann er að hugsa,“ segir Hildur.
Lesið: 27.414
4 Segja konuna sem var skorin hafa átt upptök
að slagsmálum Ásgeir Kolbeins-
son, einn af eigendum skemmtistaðar-
ins Austur, sendi frá sér tilkynningu
vegna árásar sem átti sér stað inni á
staðnum, en ung kona taldi sig hafa
orðið fyrir líkamsárás. Myndbandsupp-
tökur og framburður dyravarða á staðn-
um stangast þó á við þetta samkvæmt
tilkynningunni.
Lesið: 25.951
5 17 ára stúlka lést eftir að hafa innbyrt e-töflu á
Akranesi um helgina Ung stúlka
á framhaldsskólaaldri frá Akranesi lést
2. júní eftir að hafa innbyrt fíkniefni um
helgina. Talið er að hún hafi tekið e-töflu.
Lesið: 24.904
ingi Hafliði guðjónsson
matreiðslumaður og viðskiptafræðingur
Aðsent
Sprek á verðbólgubálið