Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 30
2 Hlaup - Kynningarblað Helgarblað 5.–8. júní 2015
Alhliða lausnir á stoðkerfisvandamálum
Sérsniðnar æfingaáætlanir,
hlaupadagbók og námskeið
Göngu- og hlaupagreining
og skóbúnaður við hæfi
Hlaup.is – Vefsíðan með allar upplýsingar fyrir hlaupara
F
lexor er stoðkerfis- og skó-
verslun á jarðhæð Orku-
hússins við Suðurlands-
braut 34 og sérhæfir sig
meðal annars í göngugrein-
ingu, stuðningshlífum og ráð-
leggingum við val á skóbún-
aði. Hjá fyrirtækinu vinna
sjúkraþjálfarar og íþrótta-
fræðingar með áralanga
reynslu af göngugreiningu
og meðhöndlun stoðkerfis-
vandamála. Einnig hafa þau
víðtæka þekkingu á öllu sem
viðkemur fótum, innleggj-
um, skóm, stuðninghlífum
og spelkum.
„Oft er hægt að finna ein-
faldar lausnir við álagsein-
kennum og öðrum stoð-
kerfisvandamálum. Það er
mikilvægt að leita lausna
sem fyrst ef einkenni gera
vart við sig. Við ættum að geta
haldið áfram að hreyfa okk-
ur ef við hlustum á líkamann
og leitum lausna við hæfi,“
segir Ásmundur Arnarsson,
sjúkraþjálfari hjá Flexor. „Hjá
okkur er frábært starfsfólk
sem getur aðstoðað við að finna
lausnir sem henta hverjum og ein-
um. Einkenni stoðkerfisvandamála
eru jú einstaklingsbundin og þurfa
einstaklingsbundnar lausnir.“
Með göngugreiningu er hægt að
finna lausnir við ýmsum kvillum í
stoðkerfinu. Lausnirnar getað verið
ýmiss konar, algengast er að fólk fái
sérhönnuð innlegg og aðstoð við val
á skóm. Innleggin eru meðal annars
valin eftir því í hvaða skó þau eiga
að passa. Þau eru sérhönnuð
fyrir Flexor af viðurkennd-
um aðilum sem framleitt
hafa innlegg fyrir alþjóð-
legan markað í fjölda
ára.
„Það getur, marg-
falt, borgað sig að
koma til okkar í
göngugreiningu ef
fólk er með stoð-
kerfisvandamál, eða
jafnvel til að koma í
veg fyrir þau,“ segir
Ásmundur.
Ný tækni við göngu-
og hlaupagreiningu
Flexor er eina fyrirtækið á
landinu sem notast við nýja
tækni í göngu- og hlaupa-
greiningu. Göngu- og
hlaupabrettið okkar býr yfir
innbyggðum þrýstinemum
sem tengjast fullkomnu tölvu-
kerfi en það skilar nákvæmum
upplýsingum um göngulag.
Hlaupaskórnir valdir eftir
þörfum
„Þegar kemur að vali á hlaupa-
skóm er margt sem þarf að taka til-
lit til: hvernig hleypur eða gengur
einstaklingurinn, hvernig er stað-
an á hnjám og ökklum og hvernig er
niðurstig og fótlag,“ segir Ásmund-
ur. „Sérfræðingar okkar veita aðstoð
við val á skóm. Þá er göngulag og
hlaup skoðað á hlaupabretti og skór
valdir eftir þörfum hvers og eins.“
Ef skór eru keyptir hjá Flexor er
þjónustan frí, en kostar annars ekki
nema 990 kr. „Við erum með Nike-
og Asics-skó í mörgum gerðum svo
það er ekki erfitt að finna hlaupaskó
sem henta viðskiptavininum.“
Flexor er í Orkuhúsinu, Suður-
landsbraut 34, 108 Reykjavík, sím-
inn er 517-3900, heimasíða flexor.
is og einnig er Flexor á Facebook. n
Ýmsir kvillar sem
hægt er að fá aðstoð
vegna:
n Þreytuverkir og pirringur í fótum
n Verkir í hnjám
n Sársauki eða eymsli í hælum (hæl-
spori, plantar fascitis o.fl.)
n Beinhimnubólga
n Óþægindi eða verkir í baki og/eða
mjöðmum
n Verkir í tábergi og/eða iljum
n Hásinavandamál
n Óþægindi í ökklum
n Þreytu- og álagsverkir hjá börnum og
unglingum
Hægt að skoða í þrívídd Þrýstiplata
er innbyggð í göngubrettið sem sýnir
hvernig álagið kemur á fæturna.
Niðurstöður skoðaðar Niðurstöður göngugreiningar skoðaðar á stórum skjá.
Eigandi hlaup.is Torfi H. Leifsson.
Þ
ann 13. ágúst 1996 stofnaði
Torfi H. Leifsson heimasíð-
una hlaup.is. „Tilgangurinn
var fyrst og fremst sá að birta
úrslit í hlaupum, þeim var
að fjölga á þessum tíma og erfitt að
nálgast úrslit eftir að þeim lauk,“ seg-
ir Torfi sem er sjálfur hlaupari.
Á þeim tæpu 19 árum sem liðin
eru síðan hefur efni bæst við á
heimasíðuna: fróðleikur, hlaupa-
dagskrá allra almenningshlaupa á
Íslandi, upplýsingar um hlaup og
skráningar í fjölmörg þeirra. Not-
endum síðunnar fjölgar stöðugt og
eru um 5–8 þúsund notendur sem
heimsækja hana í hverri viku að sögn
Torfa. Á hlaup.is má einnig finna
fróðleik fyrir byrjendur, fróðleik um
þjálfun og æfingaáætlanir.
„Við fylgjumst einnig með
Íslendingum sem eru að hlaupa er-
lendis og söfnum þeim úrslitum
saman,“ seg- ir Torfi. Þegar um
almenningshlaup
er að ræða kemur
hlaupahaldari upp-
lýsingum áfram til
hlaup.is og einnig
úrslitum eftir að
hlaupinu er lokið.
„Við förum í fjöl-
mörg hlaup og tök-
um myndir sem við
birtum á vefnum,
myndbönd og viðtöl
við hlaupara,“ segir
Torfi. Töluvert er af
viðtölum við hinn
almenna hlaupara á
heimasíðunni.
Besti árangur
birtur reglulega
Á hverju ári er fylgst
með 5 kílómetra
og 10 kílómetra
hlaupi, hálfmara-
þoni og maraþoni
og birtur reglulega listi yfir besta ár-
angur í þessum fjórum vegalengdum,
kallast það Ársbesta á heimasíðunni.
Notendur síðunnar velja einnig í
lok hvers árs langhlaupara ársins og
hlaup ársins og eru viðurkenningar
veittar í janúar.
Hlaupanámskeið hlaup.is
Hjá hlaup.is er einnig boðið reglulega
upp á námskeið og það næsta er á
dagskrá 18., 22., og 25. júní nk. Nám-
skeiðin hafa verið haldin í sex ár og
eru fræðslupakki þar sem farið er yfir
allflest sem snýr að hlaupaþjálfun á
tveimur kvöldum og þriðja skiptið
er síðan verklegur tími. „Svo vísum
við fólki í skokkhópana,“ segir Torfi.
Námskeiðin eru einnig í boði fyrir
fyrirtæki í styttri og lengri fræðslu.
Æfingaáætlanir
Á hlaup.is er boðið upp á æfinga-
áætlanir sem Sigurður Pétur Sig-
mundsson, einn af fremstu lang-
hlaupurum landsins, sér um að
sérsníða fyrir hvern og einn. „Síðan
fylgir vikulegur hittingur með hóp á
hans vegum,“ segir Torfi.
Hlaupadagbók
Á heimasíðunni er einnig
hlaupadagbók í boði þar sem að
allir geta skráð inn æfingar sínar og
er hún öllum notendum að kostn-
aðarlausu. n
Hlaupanámskeið Hópur í verklegum tíma á námskeiði hlaup.is.
Hlaupanámskeið Hópur í verklegum tíma á námskeiði hlaup.is.
Göngu- og hlaupagreining
Flexor felur í sér:
n Tölvuþrýstimælingaplötu í göngu og
hlaupabretti sem nemur álagsdreifingu á
fætur.
n Fullkomið tölvukerfi sem sýnir tölulegar
upplýsingar um gönguferlið og stöðu fóta.
n Mælingu á álagi á fætur og stöðu á ilja-
boga og tábergi.
n Upptöku sem sýnir stöðu á fótum og
hnjám og vistar upplýsingar í gagnagrunni.
n Lengdarmælingu ganglima.
n Skoðun á stöðu mjaðmagrindar.
n Útprentun á nákvæmum upplýsingum um
göngulag og niðurstöður greiningar.