Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 33
Helgarblað 5.–8. júní 2015 Kynningarblað - Hlaup 5
F
lipBelt er nýjasta æðið í
hlaupabeltum og er nú þegar
orðið vinsælasta hlaupabeltið
hjá Hreysti. „Öryggi, einfald-
leiki og stílhrein hönnun er
það sem beltið hefur fram yfir önn-
ur hlaupabelti,“ segir Gunnar, starfs-
maður Hreysti, sem flytur þessa
skemmtilegu nýjung inn.
Beltið er hægt að fá í mörgum
litum svo allir ættu
að finna
belti fyr-
ir sinn
smekk.
Beltið er
afar ein-
falt og
sniðugt í
notkun. Það
er búið til úr
teygjuefni
sem held-
ur beltinu á
sínum stað.
Á beltinu er
einn stór vasi
allan hringinn með
4 aðgangsopum. Í þessum vasa er
nóg pláss fyrir síma, lykla,
kort og orkugel.
Beltið er
eitt af fáum
hlaupabelt-
um sem hef-
ur nóg pláss
fyrir iPhone
6+. Beltið
hreyfist
ekki úr
stað
þegar
hlaup-
ið er og
hægt er
að setja
hluti inn í
beltið og snúa því svo við
(„flippa“) Þannig snúa aðgangsop-
in að hlauparanum og innihald
beltisins því á öruggum stað.
Hreysti er í Skeifu 19, Reykja-
vík, síminn er 568-1717, netfang
hreysti@hreysti.is, heimasíða
hreysti.is. Afgreiðslutími er virka
daga kl. 10–18, og laugardaga kl.
11–15.
Næring mikilvæg fyrir sumarsportið
– SiS ný lína af fæðubótarefnum
Hreysti – FlipBelt nýjasta æðið í hlaupabeltum
SiS-fæðubótarefni
Science in Sport (SiS) er spennandi
ný lína af fæðubótarefnum sem var að
koma til landsins núna fyrir sumarið.
Línan er hönnuð með það í huga að
svala þörfum íþróttafólks fyrir, á með-
an og eftir átök og er línan gríðarlega
vinsæl meðal íþróttafólks sem tekur
langar æfingar þar sem næring fyrir,
á meðan, og eftir átök er mikilvæg.
SiS-vörurnar hafa það sameiginlegt
að vera léttar í maga auk þess að vera
orkuríkar. Vörurnar eru allar vel rann-
sakaðar og standast alla Evrópustaðla
hvað gæði varðar. Þær eru prófaðar
hjá óháðum aðila svo hægt er að vera
viss um að í vörunni sé aðeins það sem
stendur á pakkningunni.
Hreysti og SiS styðja við bakið á
íþróttafólki
Hreysti, innflytjandi SiS-vörulínunn-
ar, hefur verið ötult við að styðja við
bakið á íþróttafólki sem skarar fram
úr á Íslandi með SiS-vörunum. „Í
Hreysti-hópnum eru meðal annars
landsliðsmenn í handbolta, Íslands-
meistarar í hjólreiðum og afreks-
íþróttafólk í frjálsum íþróttum,“ segir
Gunnar Emil Eggertsson, starfsmaður
Hreysti stoltur.
„SiS hefur verið starfandi síð-
an 1992 og hefur alltaf stutt við bak-
ið á framúrskarandi íþróttafólki. Á
ólympíuleikunum í London voru til
dæmis 24 verðlaunahafar að nota SiS-
vörur,“ segir Gunnar. n
Hvernig á að nota vörurnar? Hér er
smá dæmi um maraþonhlaupara:
Nokkrum dögum fyrir:
Kolvetnahleðsla (GO Energy) – Nokkrum dögum fyrir keppni er mælt með því að hlaða
upp kolvetnum svo að orkubirgðir séu fullar á keppnisdegi.
Nítröt (Nitrate Gel) – Nítröt má meðal annars finna í rauðrófum en gott er að fá inn mikið
af nítrati vikuna fyrir keppni. Nítrat hjálpar líkamanum að nýta súrefni.
Rétt fyrir / á meðan:
Orkudrykkur (GO Electrolyte) – Mikilvægt er að halda líkamanum gangandi meðan á
hlaupinu stendur og gott að súpa á orkudrykk sem inniheldur kolvetnablöndu, steinefni og
sölt. Drykkurinn inniheldur lítinn sykur og er því góður í maga.
Orkugelin (GO Gel) virka mjög svipað og orkudrykkurinn en eru í mun handhægara formi.
SiS-orkugelin eru einu „Isotonic“-orkugelin í heiminum en það þýðir að þau innihalda meira
vatn og kolvetnablöndu sem er einstaklega góð í maga og það þarf ekki að drekka með
gelinu.
Orkustangir (GO Energy Bars) – Orkustangir geta verið góðar fyrir þá sem vilja eitthvað að
maula meðan á hlaupinu stendur en þær eru léttar í maga og frábært nesti í hlaupinu.
Eftir:
Endurhleðsla (REGO Rapid Recovery) – Eftir hlaupið er mikilvægt að fylla á orku,
steinefna og saltbirgðir líkamans auk þess að veita líkamanum þau prótein sem hann þarf
til þess að byggja upp vöðvana. Hér kemur SiS með blöndu sem inniheldur fimmtíu prósent
kolvetnablöndu og fimmtíu prósent prótein auk viðbættra steinefna, salta, vítamína og
amínósýra.
Steinefni og sölt (Hydro tablets) – Steinefni og sölt eru gríðarlega mikilvæg en þau
koma í veg fyrir ofþornun. Ef æft er mikið er gott að taka þessa blöndu inn annað slagið.
Þannig er hægt að koma í veg fyrir ofþornun og þá kvilla sem fylgja því ástandi. Steinefnin
og söltin fást stök í gospilluformi án viðbættra kolvetna.