Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 42
Helgarblað 5.–8. júní 201534 Sport É g áttaði mig eiginlega ekki á þessu fyrr en ég stóð á flug- vellinum í Keflavík og sá mót- tökunefndina. Þau stóðu þarna, örugglega hundrað manns, og ég bara brotnaði saman og sá ömmu mína gera það líka – gráta gleðitárum. Þetta var svo ótrúlega góð tilfinning,“ segir Ragn- heiður Sara Sigmundsdóttir, 22 ára Evrópumeistari í crossfit og crossfit- þjálfari á Suðurnesjum. Þegar hún kom út úr tollinum mætti henni stór hópur sem fagnaði henni sem þjóðhetju. „Ég man svo vel þegar ég var að horfa á Annie Mist koma til landsins eftir að hún vann heimsmeistaratitilinn í fyrsta skipt- ið. Ég hugsaði með mér að ég vildi óska þess að ég væri komin á þann stað að það væri einhver sem kæmi og tæki svona á móti mér þegar ég væri búin að keppa. Svo rættist draumurinn minn!” Ragnheiður Sara tók þátt í Evrópumeistaramótinu í cross- fit um liðna helgi og uppskar ríku- lega. Evrópumeistaratitill var í höfn og vís leið á heimsleikana í crossfit í Los Angeles í júlí. Sjálf stefndi hún á fimmta sætið sem þýddi öruggt sæti á heimsleikana, það er heimsmeist- aramótið í crossfit. „Ég vildi kom- ast þangað hvað sem það kostaði,“ segir hún. Síðustu dagar hafa farið í það að lenda og ná áttum. Það aftraði henni þó ekki frá því að vera kom- in aftur á æfingar um miðja vikuna. Ævintýralegur árangur Árangur Ragnheiðar Söru er í raun ævintýralegur í ljósi þess að hún hafði aldrei fundið sig í íþrótt fyrr en hún stóð í crossfit-sal árið 2013. Hún hafði mátað nokkrar íþróttir en aldrei fundið sig. „Ég var eiginlega þybbin stelpa sem hataði íþrótt- ir. Stundum hugsa ég með mér að þetta sé eiginlega of gott til að vera satt,“ segir hún og hlær. En að baki árangrinum liggur gríðarleg vinna. „Ég var eiginlega bara svo hissa á þessu öllu saman. Ég veit samt að ég er að uppskera eftir mikla vinnu, skipulag og erfiði og það er ótrúlega gaman. Ég hef þurft að hafa mjög mikið fyrir þessu allan tímann. Mig vantaði allan grunn, bæði í íþrótt- um og í því að kunna að keppa,“ segir hún en margir sem ná árangri í crossfit hafa áður stundað íþróttir sem krefjast mikils liðleika eins og fimleika eða frjálsar íþróttir. „Það er eitthvað sem ég þurfti að læra bara sjálf. Það hjálpaði mér samt líka, ég þurfti að byggja upp hugarfarið. Ég hafði aldrei verið neitt sérstaklega góð í neinu, bara svona venjuleg. Svo allt í einu fann ég það sem ég elskaði og þá varð ekki aftur snúið,“ segir hún. Frá því í janúar 2013 hefur hún stundað æfingar af krafti, en hafði raunar haft hug á að byrja fyrr en meiðsl öftruðu henni frá því. Þegar hún var loksins byrjuð stefndi hún strax á að verða afrekskona. „Ég sá til dæmis námskeið sem var auglýst í ólympískum lyftingum og hugs- aði með mér: Það er best að ég skrái mig á það, það er mikið af slíku í crossfit og ég ætla mér að verða góð í því,“ segir hún. Árið 2013 komst hún svo á sitt fyrsta Evrópumót. „Ég var algjör- lega reynslulaus og hafði aldrei far- ið á svona stórt mót. Ég datt fljótlega úr keppninni enda var þetta mjög yfirþyrmandi,“ segir hún en ákvað þá að kýla á þetta og mæta tvíefld til leiks næst. Hún byrjaði á því að finna sér þjálfara og leitaði til sama aðila og hafði aðstoðað Annie Mist Þórisdóttur, tvöfaldan heimsmeist- ara í crossfit og eina stærstu stjörnu crossfit heimsins. „Ég byrjaði hjá honum í maí 2013 og í vor byrjaði ég hjá lyftingaþjálfara,“ segir hún. Æfingarnar eru yfirleitt tvær til þrjár á dag og geta verið alls fjórir til sex klukkutímar. Lífið snýst um crossfit „Lífið er crossfit,“ segir hún, en Ragnheiður Sara er yfir- þjálfari líkamsræktarstöðvar á Suðurnesjum, Crossfit Suðurnes, og á milli sinna æfinga þjálfar hún aðra „crossfitara“, en íþróttin nýtur gríðarlegra vinsælda hér á landi. „Þetta er mjög fjölbreytt og fólk sem stundar þetta á möguleika á því að bæta sig og koma sjálfu sér á óvart. Það geta allir stundað þetta, það er bara spurning um að mæta. Ég man þegar ég var að byrja þá fylgdist ég með Annie Mist og sá hana ganga á höndum. Ég hélt að ég gæti það aldrei en svo lagði ég mig alla fram og vann að þessu statt og stöðugt. Allt í einu gat ég svo geng- ið á höndum en bjóst alls ekki við því,“ segir hún og segir að crossfit sé sport þar sem fólk geti sett sér raun- hæf markmið og áskoranir og upp- skera þá ríkulega þegar það tekst. „Markmiðasetningin er núm- er eitt tvö og þrjú. Ég fer á æfingar með mín langtíma- og skammtíma- markmið og hugsa með mér: Ég verð að ná þessu.“ Víkingablóðið „Ég held að það sé víkingablóðið,“ segir Ragnheiður Sara spurð um það hvers vegna íslenskar konur eru svona góðar í crossfit. „Við erum líka að hvetja hver aðra og læra hver af annarri. Við Katrín Tanja erum til dæmis að æfa saman og við ýtum undir árangur hjá hinni,“ segir hún. „Þegar ég fer í keppni er ég svo bara að hugsa um sjálfa mig og mín markmið – ekki hvað þær eru að gera,“ segir hún. Nú hefur tímaritið Box Life Magazine bent á að hún sé sú sem fólk ætti sérstaklega að fylgjast með á komandi heimsleikum. „Hún er kannski nýliði en hættuleg íþrótta- mönnunum í kringum hana,“ segir í grein blaðsins um nýafstaðið Evrópumeistaramót. Næstu skref hjá Evrópumeistaranum er nú undirbúningur fyrir heimsleikana og á næstu vikum taka við æfinga- búðir og aðlögunartímabil í Los Angeles. „Núna er bara að huga að næsta markmiði,“ segir hún. n Fann það sem ég elskaði Evrópumeistarinn Ragnheiður Sara hafði aldrei stundað íþróttir fyrr en hún fann köllun sína í crossfit Þær komu, sáu og sigruðu Íslensku stúlkurnar í crossfit á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Kaupmannahöfn um liðna helgi komu, sáu og sigruðu. Íslendingar áttu fimm keppendur á topp tíu-listanum. Þær Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir, einnig þekktar sem fyrsta, annað og fimmta sæti, ræddu við DV um blóðið, svitann og tárin sem streymdu á meðan þær tókust á við markmiðin sín undanfarið ár. Að baki eru óteljandi klukkutímar á æfingum, sjálfstraust og einstök einbeiting og stuðningslið sem stendur þétt við bakið á þeim. Þær eru sammála um að árangur íslenskra kvenna tengist víkingablóðinu, að minnsta kosti að einhverju leyti. Þær stefna allar þrjár á heimsleikana í crossfit í Los Angeles í næsta mánuði þar sem allt getur gerst – en þangað til eru það æfingarnar. Er að lenda Síðustu dagar hafa farið í það að lenda og ná áttum eftir mótið, en næstu skref eru undirbúningur fyrir heimsleikana sem hefjast mjög fljótlega. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir 22 ára Evrópumeistari í crossfit Félag: Crossfit Suðurnes „Ég veit samt að ég er að upp- skera eftir mikla vinnu, skipulag og erfiði og það er ótrúlega gaman. „Ég hafði aldrei ver- ið neitt sérstak- lega góð í neinu, bara svona venjuleg. Svo allt í einu þá fann ég það sem ég elskaði og þá varð ekki aftur snúið. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.