Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 43
Helgarblað 5.–8. júní 2015 Sport 35
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
VERÐMERKIBYSSUR
og verðmerkimiðar
Æfir, borðar
og sefur
„Ég hef verið í keppni í öllu
frá því að ég var krakki“Þær komu, sáu og sigruðu
Þuríður Erla keppir í þriðja sinn á heimsleikunum
É
g var alveg ótrúlega ánægð
með þetta,“ segir Þuríður Erla
Helgadóttir, sem um helgina
varð í 5. sæti á Evrópumeist-
aramótinu í crossfit. Með
því vann hún sér inn þátttökurétt á
heimsleikunum í crossfit í Los Ang-
eles í næsta mánuði. Þegar DV náði
tali af Þuríði var hún að byrja að
slaka á eftir átökin, en handan við
hornið er undirbúningurinn fyrir
heimsleikana.
Keppt og æft frá 2010
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þuríður
fer á heimsleikana. Hún byrjaði að
stunda crossfit árið 2010 og hún
keppti fyrst sem hluti af liði árið 2011
og svo síðar í einstaklingskeppn-
inni á heimsleikunum. „Við vor-
um þrjár íslenskar sem kepptum á
heimsleikunum 2012 sem einstak-
lingar, en þá var þetta ekki orðið jafn
stórt og þetta er núna,“ segir hún
– sérstaklega á Íslandi. „Við feng-
um keppnisrétt eftir Evrópuleikana
2012, en þar hafði Annie Mist tek-
ið fyrsta sætið, Katrín Tanja varð í
öðru og ég í því þriðja,“ segir hún.
„Núna er þetta mjög stórt og kepp-
endurnir mun fleiri og samkeppnin
harðari. Ég hef unnið fyrir þessum
leikum í langan tíma og ég hef aldrei
æft svona mikið eða lagt svona hart
að mér áður eins og fyrir þetta mót
og ég stefndi á það að vinna mér inn
þátttökurétt á heimsleikunum í júlí.
Þetta var því mikill sigur fyrir mig,“
segir hún en hún varð í fimmta sæti
á Evrópumeistaramótinu.
Ísland-Ísland!
Það má með sanni segja að það sé
hálfgert crossfit-æði á Íslandi. Aug-
ljóst var að iðkendur fylgdust vel með
mótinu og segir Þuríður að allir ís-
lensku keppendurnir hafi fundið vel
fyrir því. „Það var virkilega skemmti-
legt að finna hversu margir voru að
fylgjast með, bæði á sjálfu mótinu
og hérna heima,“ segir hún og bend-
ir á að skipuleggjendur leggi sig fram
um að gera mótið áhorfendavænt.
„Það á að vera jafn gaman að fylgjast
með og keppa. Það verður svo ennþá
skemmtilegra að keppa því stemn-
ingin er svo góð. Við heyrðum vel í
stúkunni að áhorfendur hrópuðu ÍS-
LAND-ÍSLAND!“
Sterkar stelpur
„Ég vildi að ég hefði svarið.
Ástæðurnar eru örugglega margar
en besta skýringin er eflaust sú að
það þykir flott hérna heima að vera
sterk. Hér byrjum við að stunda
íþróttir snemma og keppnisskapið
er gríðarlegt,“ segir hún um kraftinn
í íslensku crossfit-konunum.
„Ég geri nú eiginlega ekki mikið
annað en æfa, borða og sofa. Ég á stór-
an vinahóp og fjölskyldu sem styðja
mig með ráðum og dáð. Kærastinn
minn er líka í crossfit og hjálpar mér
og styður við bakið á mér,“ segir hún.
Þuríður æfir mikið, sérstaklega síð-
ustu vikurnar. Bakgrunnur hennar
er í fimleikum, frjálsum og fótbolta
og segir hún það skipta miklu máli
upp á liðleika og þekkingu á líkam-
anum. „Ég var vel sett vegna þessa
bakgrunns, liðleikinn og líkams-
þekkingin skiptir miklu máli. Ég æfi
um tvisvar á dag, fimm daga á viku.
Hver æfing er svona tveir til þrír tím-
ar. Þetta er eiginlega fullt starf,“ seg-
ir hún. Þuríður stundar einnig nám í
sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og
hefur því í nógu að snúast. „Þetta hef-
ur verið frekar þungur vetur fyrir vik-
ið,“ segir hún og bætir við: „En þetta
hefst á skipulaginu.“ n
Þuríður Erla
Helgadóttir
24 ára
5. sæti á Evrópumeistara-
mótinu í crossfit
Félag: CrossFit Sport
Flott að vera sterk
Ástæðurnar eru örugglega
margar en besta skýringin
er eflaust sú að það þykir
flott hérna heima að vera
sterk, segir Þuríður um
árangur íslenskra kvenna.
„Þetta er eiginlega
fullt starf
Katrín Tanja missti af heimsleikunum í fyrra og lét það ekki endurtaka sig
É
g er mjög ánægð með þessa
helgi. Ég byrjaði í crossfit
2011 og ákvað það eiginlega
strax að þetta væri eitthvað
sem ég hefði áhuga á,“ segir
Katrín Tanja Davíðsdóttir, crossfit-
kona frá Crossfit Reykjavík sem varð
í 2. sæti á Evrópumeistaramótinu
um síðustu helgi. Katrín hefur ver-
ið að æfa í nokkur ár, en fór fljótlega
að keppa á stórmótum í greininni,
meðal annars á heimsleikunum.
Gott að missa af keppninni
Í fyrra stóð hún í þeim sporum að
komast ekki á heimsleikana og
mætti því tvíefld á Evrópumeistara-
mótið, ákveðin í að tryggja sér
keppnisréttinn. „Ég trúi því að það
hafi verið gott fyrir mig. Í ár lagði ég
allt í sölurnar og lagði hart að mér.
Ég ætlaði að komast á heimsleik-
ana,“ segir hún og segist hafa áttað
sig á því að hún yrði að keyra allt í
botn. „Þetta var ekki sjálfsagt, þetta
er sterk keppni og það er alltaf ein-
hver sem er tilbúinn til þess
að taka sæti þitt á leikun-
um. Það dreif mig áfram
að hafa ekki komist í
fyrra,“ segir hún.
Setti sér markmið
Hún setti sér því
markmið, eitt í
einu, sem gengu
út á það að kom-
ast á heimsleik-
ana. „Það kom
mér kannski
ekki á óvart að ég
kæmist áfram, því
ég hafði auðvitað
unnið mikið fyrir
því, en samt var það
óvænt hvað þetta
gekk allt vel,“ segir
hún. „Það var ekkert
sem ég ekki gat eða
taldi mig vera í vandræð-
um með. En ég vissi líka
að hinar stelpurnar stóðu
í sömu sporum. Þess vegna var ég
stressuð, en ég var vel undirbúin.
Ég reyndi að hafa fókusinn á mig
og sleppa því að hugsa um það
hvað þær væru að gera.“ Fyrir vik-
ið er þessi árangur, annað sætið
á Evrópumeistaramótinu, sá sem
hún er hvað stoltust af.
Nú taka ný markmið við og æf-
ingar fyrir heimsleikana. Æfingarn-
ar eru stífar, tvisvar á dag fimm daga
í viku og stundum bætir hún
þriðju æfingunni við.
Að auki þjálf-
ar hún aðra
í crossfit
hjá Cross-
fit Reykja-
vík.
Árangur íslenskra kvenna hefur
vakið athygli víða. „Ég var spurð
hvort fólk ætti að bæta „dóttir“ við
nafnið sitt til að verða gott í crossfit,“
segir hún og hlær. „Ég held við höf-
um góðar fyrirmyndir, bæði í Annie
Mist og í öðrum íþróttum. Við erum
sterk þjóð, en fyrst og fremst höf-
um við keppnisskap. Ég hef verið í
keppni í öllu frá því að ég var krakki,
hvort sem það var að næsta ljósa-
staur eða í íþróttum. Allt sem við
gerum er keppni og það vilja allir
vera bestir. Ef viljinn er fyrir hendi
þá er hægt að ná árangri og þegar
maður nær honum fylgir því svo
mikil gleði.“ n
Lagði allt í sölurnar. Ég ætlaði
að komast á heimsleikana, segir
Katrín Tanja. Mynd SiGTryGGur Ari
Katrín Tanja
Davíðsdóttir
22 ára
2. sæti á Evrópumeistara-
mótinu í crossfit
Félag: Crossfit Reykjavík
„Það
kom
mér kannski
ekki á óvart
að ég kæm-
ist áfram, því
ég hafði auðvitað
unnið mikið fyrir því,
en samt var það óvænt
hvað þetta gekk allt vel.