Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 46
38 Lífsstíll Helgarblað 5.–8. júní 2015 Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ön nu n Staðurinn - Ræktin Hringdu í síma 581 3730 Nánari upplýsingar á jsb.is Sumarkort 19.900 kr! Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu S igrún Guðlaugardóttir var klædd í ósamstæða sokka á heimili sínu síðastliðið mið- vikudagskvöld þegar frænka hennar kíkti við í kvöldkaffi. Hún tók eftir klæðaburði Sigrúnar og mundi þá eftir átaki í Svíþjóð sem tíu ára sænsk stelpa kom á laggirnar í byrj- un árs til þess að vekja athygli á því að við erum ekki öll eins. Átakið fólst í að ganga í ósamstæðum sokkum. Þetta fannst Sigrúnu í alla staði jákvætt. Hún bjó því til viðburð á Facebook og við- brögðin hafa verið vonum framar. Skorar á Íslendinga Að loknu kvöldkaffi ritar Sigrún á nýj- an Facebook-viðburð: „Ég var að heyra af stórkostlegri 10 ára sænskri stúlku. Hún er stolt af eldri systur sinni með Downs-heilkenni, biðlaði til fólks að ganga í mislitum sokkum í einn dag. Ekki fyrir peninga heldur til að vekja athygli á því að við erum ekki öll eins, en jöfn. Og fyrir tilstuðlan þessarar stúlku klæddust þúsundir Svía mislit- um sokkum í einn dag. Ég ætla að láta á þetta reyna á Íslandi! Ég skora á alla, leikskóla, skóla og vinnustaði til þess að klæðast mislitum sokkum þann 12. júní 2015. Þannig getum við sýnt á einfaldan hátt að við fögnum fjöl- breytileikanum í samfélaginu. Endi- lega deilið og takið þátt. #rokkuma- sokkum“ Örfáum klukkustundum síðar höfðu 1.200 manns skráð sig á við- burðinn og Sigrún viðurkennir að hún hafi alls ekki búist við slíkum viðbrögð- um. Of mikil leiðindi í samfélaginu „Ég bjóst ekki við þessu, heldur deildi ég þessu bara með vinum mínum á Facebook og beið svo átekta. En við- brögðin hafa farið langt fram úr mín- um björtustu vonum.“ Sigrún ljómar af gleði en henni hefur þótt samfélags- umræðan allt of neikvæð á undan- förnum misserum og langaði bara til þess að leggja sitt af mörkum með já- kvæðari hætti. „Mér finnst fólk oft og tíðum vera að drepast úr leiðindum og nei- kvæðni. Það er svo leiðinlegt til lengd- ar. Ég er stuðningsfulltrúi og styð fatl- aða einstaklinga í skóla. Ég er líka sjálf í skóla sem leggur mikla áherslu á að fagna fjölbreytileikanum þannig að mér finnst þetta átak ríma vel við það sem ég er að fást við alla daga, en á já- kvæðan hátt.“ Rokkum í sokkum-átakið fer fram föstudaginn 12. júní og þeir sem vilja leggja átakinu lið klæðast ósamstæð- um sokkum þennan eina dag og merkja sönnunargagn þess efnis með #rokk- umasokkum á samfélagsmiðlum. n Rokkum á sokkum Sigrún skorar á Íslendinga að ganga í ósamstæðum sokkum þann 12. júní næstkomandi Bjó til viðburð Sigrúnu finnst oft vera of mikil nei- kvæðni í samfélaginu og vill bæta úr því. „Það var alltaf draumur að prófa hundafimi“ Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Anna Margrét á sér óvenjulegt áhugamál Áhugamálin eru misjöfn og það er alveg ótrúlega fjölbreytt hvað fólk er að brasa utan vinnu- og fjölskyldutíma. Anna Mar- grét Áslaugardóttir á sér áhugamál sem er heldur óvenjulegt en sífellt stækkandi hópur hundaeigenda er þó farinn að sýna þessari iðkun áhuga. Anna Margrét og Boston Terri- er-tíkin hennar, Vanda, stunda hundafimi af miklu kappi í frítíma sínum. Út fyrir kassann kynnti sér þetta áhugamál. 1 Hvað er hundafimi? „Hundafimi er skemmtileg íþrótt sem gengur út á að láta hund hlaupa í gegnum þrauta- braut, eigandinn hleypur með honum og gefur hundinum skipanir um hvaða tæki eða þraut hann eigi að fara í næst. Þessi íþrótt styrkir samband hunds og eiganda og flestum hundum finnst þetta rosalega gaman.“ 2 Hvers vegna byrjaðir þú í hunda-fimi? „Ég hef alltaf haft áhuga á hundum og öllu sem viðkemur þeim. Það var alltaf draumur að prófa hundafimi og þegar ég loksins eignaðist hund og hún hafði náð aldri fór ég á hundafimimót og kynnti mér þetta. Eftir það varð ekki aftur snúið.“ 3 Er þetta sport fyrir hunda eða fólk? „Þetta er íþrótt þar sem hundur og eigandi eru að keppa saman í að fara í gegnum þrautabrautina á sem stystum tíma og með sem fæstar villur. Þetta reynir bæði á hundinn og eigandann sem eru teymi.“ 4 Geta allir hundar verið með í hundafimi eða skiptir til dæmis aldur og tegund hundsins máli? „Hundafimi er fyrir alla hunda óháð því hvort þeir eru hreinræktaðir eða ekki. Það eru oft alls konar stærðir og tegundir af hundum saman í tímum. Hundurinn þarf að vera orðinn eins árs og hafa lokið grunnnámskeiði eða hvolpanámskeiði í hundaskóla. Eldri hundar eru ekkert verri í hundafimi, hundurinn þarf bara að geta hlaupið og hoppað án vandkvæða.“ 5 Hvert geta aðrir hundaeigendur leitað ef þá langar til þess að byrja í hundafimi? „Ef áhugi er á að fara á grunnnámskeið í hundafimi er hægt að senda tölvupóst á hundafimi@hotmail.com eða kíkja á www.hundafimi.is. Það eru reglu- lega haldnar hundafimikeppnir og þær eru auglýstar á Facebook-síðunni Hundafimi hrfí. Það er enginn aðgangseyrir fyrir áhorfendur og frábær leið til að kynna sér sportið er að koma, horfa á og spjalla við keppendur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.