Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Síða 47
Lífsstíll 39
F
átt er skemmtilegra en að halda
íslenskri hönnun og hugviti til
haga. Um daginn sá ég aug-
lýstan á bland.is ótrúlega flott-
an sófa sem gerður hafði verið
upp. Ég féll strax fyrir honum og ekki
spillir fyrir að skemmtileg saga er á
bak við hann, saga sem er merkileg í
íslenskri hönnunarsögu.
Fjölnota
Þannig er að Spira-sófann hannaði
Þorkell G. Guðmundsson árið 1965
fyrir Á. Guðmundsson. „Þessi sófi á
fáa sína líka, enda barst hróður hans
víða og hann var framleiddur í miklu
magni. Armarnir eru lagðir niður með
einu handtaki svo úr verður rúm í fullri
stærð og undir miðjunni er stór rúm-
fatageymsla. Á daginn mynda púðarn-
ir bak svo rúmið breytist í sófa en þá
má einnig nota sem höfuðpúða,“
að því er segir í grein á vefsíðunni
Hönnun og hlutir fyrir nokkrum árum.
Þar kemur einnig fram að Þorkell
hannaði einnig röndótt áklæði í
nokkrum litum, sem framleitt var sér-
staklega fyrir sófann hjá ullarverk-
smiðunni Gefjun á Akureyri.
Kominn heim til mín
Í fjölmiðlum frá fyrri tíð er að finna
margvíslegan fróðleik um Spira-
sófann. Þar er meðal annars vitnað til
þess að árið 1969 var haldin í Laugar-
dalshöllinni stærsta húsgagnasýning
sem haldin hafði verið hérlendis.
Alþýðublaðið fjallaði um sýn-
inguna og sagði meðal annars: „Á sýn-
ingunni getur að líta margt glæsilegra
gripa, og töluvert ber þar á nýtízku-
legum húsgögnum, sem í flestum til-
fellum eru teiknuð af ísl. arkitektum.
Mesta athygli fagmanna, sem á sýn-
inguna hafa komið vakti þó sófi, sem
á mjög einfaldan og fljótlegan hátt má
breyta í rúm. Er lausnin svo einföld,
að það vekur almennan hlátur með-
al húsgagnaarkitekta yfir því, að þeim
skyldi ekki hafa dottið þetta í hug sjálf-
um. Þorkell G. Guðmundsson hefur
teiknað þennan sófa, en smíðastofa
Sverris Hallgrímssonar smíðar.“
Og nú er þessi sófi kominn heim
til mín eftir kjarakaup á bland.is. Og
ég svona lukkuleg með kaupin, enda
sérstakur áhugamaður um að halda
á lofti íslenskri hönnunarsögu og
menningu. n
Helgarblað 5.–8. júní 2015
Project1_Layou
t 1 24/11/2011
12:58 Page 1
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
n Margnota húsgagn n Sófi, legubekkur, rúm og geymsla
Sófinn minn Sófinn eins og hann er nú,
kominn á heimili mitt með fallegu bláu
áklæði.
Upprunalegt Sófinn eins og hann birtist fyrst opinberlega.
Spira-sófinn sem sló í gegn 1969
Notalegt Ljósmynd af hönnuðinum á Hús-
gagnavikunni í Laugardalshöll 1969. (Birt
með leyfi Ljósmyndasafns Reykjavíkur).
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Úthlutun Hönnunarsjóðs
Fjölbreytt verkefni fengu styrk
Á
dögunum var úthlutað
rúmlega 20 milljónum úr
Hönnunarsjóði, en hátt í
140 umsóknir höfðu borist
og var óskað eftir allt að 300
milljónum króna. Þetta er fyrsta
stóra úthlutun sjóðsins á árinu, þar
sem einungis var hægt að sækja
um ferðastyrki í fyrstu úthlutun.
Hægt var að sækja um í fjórum
flokkum; þróunar- og rannsóknar-
styrki, verkefnastyrki, markaðs- og
kynningarstyrki og ferðastyrki.
Alls 15 fjölbreytt hönnunarverk-
efni fengu styrki og spanna þau allt
frá verkefnum sem tvinna saman
3D prentun og persónuleika-
próf yfir í hefðbundna púða með
óvæntu tvisti. Hönnun er ung grein
á Íslandi og því er sjóður eins og
Hönnunarsjóður gríðarlega mikil-
væg stoð fyrir bæði unga hönnuði
og þá sem lengra eru komnir og
eru til dæmis í útrás. Þar að auki
hlutu 11 hönnunarverkefni ferða-
styrk.
Þar á meðal er útrás barnafata-
merkisins AsWeGrow til Japan,
verk efnið Skordýr í matinn og sýn-
ingin Falinn skógur á Ströndum,
þar sem stór hópur hönnuða sýnir
verk unnin úr rekaviði. n