Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 49
Skrýtið Sakamál 41Helgarblað 5.–8. júní 2015
Buxur vesti
Brók og skór
Einstakur markaður í hjarta borgarinnar
kolaportid.isOpið laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17
Móðurhefnd
n Slátrari myrti dóttur Marianne n Móðirin útdeildi sjálf réttlæti
M
arianne Bachmeier
fæddist 3. júní 1950 í
þýska bænum Sarstedt
í Neðra-Saxlandi og ólst
þar upp. Foreldrar hennar
höfðu flúið þangað frá Austur-Prúss-
landi í lok síðari heimsstyrjaldarinn-
ar, en faðir hennar hafði verið með-
limur Waffen-SS; alræmdrar sveitar
þýska nasistaflokksins.
Foreldrar Marianne skildu og
móðir hennar giftist á ný.
Marianne nauðgað
Marianne eignaðist dóttur að-
eins sextán ára. Átján ára varð hún
barnshafandi á ný, átti þá kærasta,
en skömmu fyrir fæðingu annarrar
dóttur sinnar var henni nauðgað.
Marianne gaf báðar dætur sín-
ar til ættleiðingar fljótlega eftir
fæðingu þeirra. Árið 1973 eignaðist
hún sitt þriðja barn, dóttur sem skírð
var Anna. Hún ól Önnu upp sjálf en
fór í ófrjósemisaðgerð eftir fæðingu
hennar.
Anna myrt
Þann 5. maí 1980 fór Anna ekki
í skólann, að sögn vegna ósættis
mæðgnanna. Þess í stað ákvað Anna
að heimsækja vin sinn og varð það
afdrifarík ákvörðun.
Á leið sinni þangað var Önnu
rænt af 35 ára slátrara, Klaus Gra-
bovski. Klaus mun hafa haldið Önnu
fanginni á heimili sínu í nokkr-
ar klukkustundir og að lokum kyrkt
hana með sokkabuxum. Síðan pakk-
aði Klaus líkinu í kassa sem hann
svo kom fyrir í grunnri gröf við síkis-
bakka.
Enginn nýgræðingur
Klaus Grabovski var þegar þar var
komið sögu dæmdur kynferðisbrota-
maður, hafði fengið dóm fyrir að
misnota kynferðislega tvær stúlkur.
Árið 1976, meðan á afplánun
stóð, var Klaus vanaður og undir-
gekkst hormónameðferð tveimur
árum síðar. Í kjölfar handtökunn-
ar vegna dauða Önnu sagði Klaus
að hann hefði ekki ætlað að mis-
nota hana kynferðislega. Sagði hann
að Anna hefði hótað að segja móð-
ur sinni að hann hefði snert hana á
óviðeigandi hátt nema hann greiddi
henni fé.
Tók lögin í eigin hendur
Þann 6. mars 1981, á þriðja degi rétt-
arhaldanna yfir Klaus, dró til tíðinda.
Marianne Bachmeier hafði Beretta
M1934-skammbyssu í farteski sínu
er hún kom í dómhúsið í Lübeck og
skaut morðingja dóttur sinnar í bak-
ið. Sjö af átta skotum hittu í mark og
hné Klaus lífvana niður.
Eðli málsins samkvæmt vakti
hefndarvígið mikla athygli og voru
þeir í meirihluta sem sýndu því
skilning. En réttvísisgyðjan er blind
og 2. nóvember 1982 var Marianne
kærð fyrir morð.
Dæmd fyrir manndráp
Síðar féll ákæruvaldið frá morð-
ákæru og eftir 28 daga samninga-
viðræður fékkst niðurstaða í málið.
Dómur yfir Marianne var kveðinn
upp 2. mars 1983 og hún sakfelld
fyrir manndráp auk þess sem hún
fékk dóm fyrir ólöglega byssueign.
Marianna var dæmd til sex ára fang-
elsisvistar en sleppt eftir þriggja ára
afplánun.
Grafin við hlið dóttur sinnar
Marianne giftist 1985 og flutti
árið 1988 til Nígeríu með eigin-
manni sínum. Þau skildu árið 1990
og Marianne flutti til Sikileyjar. Á
Sikiley greindist Marianne með
krabbamein og flutti til Þýskalands.
Þangað komin veitti hún fjölda við-
tala og reifaði þá ákvörðun sína að
bana Klaus.
Hún sagðist hafa ákveðið, eft-
ir mikla umhugsun, að fyrirkoma
banamanni dóttur sinnar, hvort
tveggja til að fullnægja réttlætinu og
koma í veg fyrir að Klaus bæri lygar
upp á dóttur hennar.
Marianne andaðist 17. septem-
ber 1996, 46 ára að aldri, á sjúkra-
húsi í Lübeck og var grafin við hlið
dóttur sinnar þar í borg. n
Dóttir Anne lenti sjö ára í klónum á dæmdum kynferðisbrotamanni.
Móðir Marianne
Bachmeier kvað upp
dóm yfir morðingja
dóttur sinnar.
„Sjö af
átta skotum
hittu í mark
og hné Klaus
lífvana niður