Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 52
Helgarblað 5.–8. júní 201544 Menning
Ellen hafi einnig hrifist af félags-
lega kerfinu á Íslandi. Úr varð að
Einar Falur sóttist eftir að fá leyfi
fyrir hana til þess að taka mynd-
ir af nemendum Öskjuhlíðarskóla
og Safamýraskóla árið 2005. Að
lokum fékkst leyfið og Mary Ellen
tók myndir daglangt af nemend-
um en henni til aðstoðar var Golli,
ljósmyndari Morgunblaðsins. Í
kjölfar þess að greinin með mynd-
um hennar birtist í Morgunblaðinu
sneri Mary Ellen aftur til Íslands
í þrígang að mynda í skólunum
tveimur en stofnað var til þess
verks af Þjóðminjasafninu. Einnig
gerði Martin þá heimildamynd um
Alexander, fatlaðan son Steinunn-
ar Sigurðardóttur fatahönnuðar.
Þær kynntust fyrir algjöra tilviljun
sama dag og Mary Ellen hafði tek-
ið myndir af syni hennar. Úr varð
samstarf þeirra á milli.
Breytti miklu fyrir fatlaða
„Það var fyrir algjöra tilviljun
að Mary Ellen kom í búðina
mína síðdegis eftir að hafa tekið
myndir af syni mínum fyrr um
daginn fyrir mörgum árum,“ segir
Steinunn. „Eins og gengur og ger-
ist þá spjallaði ég við viðskipta-
vininn og þá kom í ljós að hún
hefði tekið myndir af Alexander
þann sama dag,“ segir Steinunn
um þessa einkennilegu tilviljun.
„Mary var alveg ótrúleg kona. Hún
tók myndir af fólki í þjóðfélaginu
sem fáir vildu beina augum sín-
um að,“ segir Steinunn en mynd-
irnar af Alexander voru upphaf-
ið að verkefninu Undrabörn sem
var síðar gefin út í bókarformi með
tilheyrandi sýningu á myndunum
í Þjóðminjasafni Íslands. Eigin-
maður Mary gerði einnig heim-
ildamynd um Alexander. Steinunn
segir að verkefnið hafi verið mikil-
vægt skref til þess að opna augu al-
mennings fyrir umhverfi fatlaðra.
„Þessi hópur var gott sem ósýni-
legur fyrir tíu árum, og viðhorfið
hefur ansi mikið breyst síðan,“ seg-
ir hún. Steinunn segir að mynd-
ir hafi birst af börnunum á for-
síðum allra blaða landsins sama
dag. Það skipti miklu máli fyrir að-
standendur á þessum tíma. „Það
var eitthvað sem hafði aldrei gerst
áður,“ segir Steinunn. „Hún opnaði
nýja vídd inn í ókunnugan heim,“
segir Steinunn sem áréttar að áhrif
myndanna hafi verið gríðarlega
mikilvæg fyrir fatlaða á Íslandi.
Steinunn segir að Mary Ellen hafi
haft næmt augu fyrir manneskjum
og náð að horfa framhjá líkamlegu
atgervi og dregið fram sál mann-
eskjunnar.
En þarna var samstarf þeirra
Steinunnar og Mary Ellen aðeins
að byrja. Síðar átti Mary eftir að
taka tískuljósmyndir af hönnun
Steinunnar auk þess sem þær urðu
góðir vinir.
„Hún skólaði mig á mörgum
sviðum,“ segir Steinunn og nefnir
í því samhengi smáatriði varðandi
myndatökur og ekki síst umfang
slíkra verkefna. „Hún birtist í þess-
um ljósmyndatökum allt allt önnur
en í kringum myndatökuna á fötl-
uðu börnunum,“ útskýrir Steinunn
og bætir við að Mary hafi verið fag-
mennskan uppmáluð. Myndirnar
voru það glæsilegar að þær enduðu
á yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum
nokkru síðar.
Steinunn segir Mary Ellen hafa
verði mjög yfirvegaða konu og að
hún hafi búið yfir ótrúlegu innsæi.
„Mér fannst það alltaf svo áhuga-
vert hvað hún hafði skarpa sýn á
manneskjuna. Það var eins og hún
hefði greiðan aðgang að innra rými
manneskjunnar,“ segir Steinunn.
„Hún gat séð fegurðina í öllu.“
Kona sem fór alla leið
Einar Falur, Mary Ellen og Martin
skipulögðu og kenndu saman á
fjórum alþjóðlegum ljósmynda-
námskeiðum sem haldin voru hér á
landi. Hann segir að Mary Ellen hafi
haft sterka þörf fyrir að miðla sinni
þekkingu áfram. Og það er ljóst að
margir listamenn eiga henni mikið
að þakka. Þannig segir Einar Falur
að hún hafi beitt sér sérstaklega
fyrir því að kynna RAX á erlendri
grundu en hún áleit hann einn af
fremstu ljósmyndurum veraldar.
Einar Falur segir að þau hafi einnig
lagt sig fram við að koma sem flest-
um íslenskum ljósmyndanemum
að sem aðstoðarmönnum á nám-
skeiðum þeirra, svo þeir gætu lært
af Mary Ellen.
Einar Falur segir að Mary Ellen
hafi verið hugrakkur og ástríðu-
fullur listamaður og einstakling-
ur. „Hún var ekki mikið fyrir mála-
miðlanir og hikaði ekki við að
berjast fyrir því að hennar efni,
og hennar sögur, þær sem hún
taldi mikilvægar, fengju að njóta
sín. Þá sérstaklega varðandi kima,
sem heimurinn vildi ekki vita af.
Hún barðist fyrir því að sýna þessa
heima,“ segir Einar Falur. „En hún
var fyrst og fremst traustur og góður
vinur vina sinna. Hún var kona sem
fór alla leið,“ segir hann að lokum.
DV birtir hér nokkrar myndir
teknar af Mary Ellen með góðfús-
legu leyfi stjórnanda maryellen-
mark.com og Einars Fals. n
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.
Gaukshreiðrið Mary Ellen tók ljósmyndir á kvikmyndasettum. Meðal annars mynd Milos Forman, One flew over the cuckoo's nest. Þarna má sjá leikarana úr myndinni sitja fyrir hjá
Mary Ellen. Mynd All riGhts MAry EllEn MArK
„Mér fannst það
alltaf svo áhuga-
vert hvað hún hafði
skarpa sýn á manneskj-
una. Það var eins og hún
hefði greiðan aðgang að
innra rými manneskjunnar.
reykjandi smástelpa Mary Ellen tók þessa mynd í Norður-Karólínu árið 1990. Á myndinni eru frænkurnar Amanda og Amy. Amanda er sú
sem er að reykja, en Mary Ellen segir að hún hafi að auki verið stórskostlega kjaftfor. Hún hafi heillast verulega af þessari ungu óhefluðu snót.