Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Blaðsíða 7
Helgarblað 19.–22. júní 2015 Fréttir 7
Gleraugnaverslunin Eyesland
5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015
Létt og þægileg í veiðina
Veiðigleraugu með og án styrktarglugga
Kíktu við og mátaðu!
„Þetta er frumskógur“
n Enginn lagarammi utan um ástandsskoðun fasteigna og kaupendur geta endað verr settir
E
nginn lagarammi er til utan
um ástandsskoðun fast
eigna. Í Noregi er slík skoðun
skylda en á ábyrgð seljenda.
Aðili sem starfar á markað
inum segir að um „frumskóg“ sé að
ræða og hann hafi fengið leiðsögn í
að orða hlutina þannig að hann yrði
ekki skaðabótaskyldur ef skoðun
hans væri ábótavant. Fyrrverandi
formaður Félags fasteignasala segir
að kaupendur geti verið verr settir
ef leyndir gallar eru á eigninni og
skoðunarmaður varð ekki var við
þá.
Misítarleg ástandsskoðun
Ástandsskoðun fasteigna er val
möguleiki sem margir nýta sér,
ef tilefni virðist til og ef þekkingu
væntanlegra kaupenda á fasteign
um er að einhverju leyti ábótavant.
Nokkuð algengt er til dæmis að til
boð séu með fyrirvara um slíka
skoðun sem á sér svo stað ef tilboðið
fæst samþykkt.
Ástandsskoðun er misítarleg.
Algeng er svokölluð sjónskoðun
þar sem skoðunarmaður kemur og
tekur húsið út og reynir að greina
sýnilega galla. Í slíkri skoðun eru
skoðunarmenn yfirleitt með raka
mæla og skoða ástand votrýma með
þá að vopni. Einnig er til mun ítar
legri skoðun þar sem lagnir eignar
innar eru skoðaðar, þak tekið út og
möguleg sveppamyndun könnuð,
svo dæmi séu tekin.
Sjónskoðun sem fór illa
Nýlegt deilumál tengt slíkri sjón
skoðun, sem enn sér ekki fyrir end
ann á, vakti athygli blaðamanns á
því hvar ábyrgðin liggur ef skoðun
in er illa gerð og kaupandinn situr
uppi með galla sem að ættu að
vera vel sýnilegir. Í þeim skýrslum
sem blaðamaður hefur komist
yfir eru greinilega ákvæði þar sem
skoðunaraðilar fría sig allri ábyrgð
og, ef svo er, þá stendur eftir spurn
ingin: til hvers að láta ástandsskoða
eign sem að verið er að fjárfesta í?
Kenndu matsmanni að orða
hlutina til að forðast skaða-
bótaskyldu
„Þetta er frumskógur,“ segir mats
maður sem vill ekki láta nafns síns
getið, þegar hann er beðinn um að
lýsa markaðnum. „Það eru engin lög
eða reglur um þetta og hver er í sínu
horni að skara eld að sinni köku. Ég
held nú samt að þekking manna og
menntun sé í ágætu lagi en það sem
er erfitt í þessu er að lagaramminn
er enginn og engar tryggingar eru í
boði. Ég talaði við eitt tryggingafélag
og vildi fá ábyrgðartryggingu. Þegar
ég lýsti starfseminni þá sögðust þeir
ekki hafa neitt í boði en buðu mér að
koma í viðtal og kenna mér hvernig
ég ætti að orða hlutina svo að ég yrði
ekki skaðabótaskyldur. Þetta gera
menn, setja ákvæði í skýrslurnar um
að þeir beri ekki ábyrgð á neinu,“
segir matsmaðurinn.
„Það er einfaldlega mjög lík
legt að á einhverjum tímapunkti
muni þér sjást yfir eitthvað og sem
einstaklingur þá muntu ekki geta
staðið undir mögulegum skaðabót
um,“ segir matsmaðurinn.
Enginn lagarammi um
ástandsskoðun
„Ég hef heyrt af deilumálum sem
þessum, aðilar telja sig hafa átt að
fá betri upplýsingar en þeir fengu,“
segir Björn Þorri Viktorsson, hæsta
réttarlögmaður hjá Lögmönnum
Laugardal, fyrrverandi formaður
Félags fasteignasala og stjórnar
maður í Matsmannafélagi Íslands.
„Þessi umræða er því ekki ný af nál
inni en afar þörf. Í minni formanns
tíð hjá Félagi fasteignasala kom ég
að vinnu um setningu laga um fast
eignakaup. Þá var heilmiklu púðri
eytt í að reyna að lögfesta hér á
landi ákvæði um skoðunarskýrslur.
Í frumvarpinu árið 2002 voru mjög
metnaðarfull ákvæði um skoðunar
skýrslur inni í þeim lögum. Vandinn
var hins vegar sá að þau voru eigin
lega of metnaðarfull. Meðal annars
var lagt til að matsmenn skyldu
skoða grundun húsa og lagnir. Það
eru verulega íþyngjandi ákvæði og
varð þess valdandi að þetta var skot
ið niður. Það var hins vegar mið
ur að ekki voru tekin upp einhver
mildari ákvæði.“
Lögbundin skylda í Noregi að
seljandi ástandsskoði eign
Björn Þorri nefnir Noreg sem
dæmi en þar er það ekki kaup
andinn sem lætur gera úttekt á
eigninni heldur er það seljandinn
og slíkt mat er lögbundin skylda frá
og með 1. janúar 2015. „Svokallað
ur „Takstmann“ gerir slíkt mat og
kemur með tillögur um verðmat.
Þar er framkvæmd nokkuð ítarleg
skoðun, en slík skoðun getur aldrei
orðið tæmandi. Fasteign er flók
ið fyrirbæri og það er alltaf spurn
ing um hversu langt eigi að ganga í
að skoða fasteignir. Það sem skiptir
máli er hvers lags úttekt matsmenn
eru kvaddir til að framkvæma. Var
þetta yfirborðsskoðun eða átti hún
að vera svo ítarleg að mögulegir
gallar á húsinu ættu undir flestum
tilvikum að koma fram? Sé miðað
við tímakaup sérfræðinga þá tel
ég til dæmis afar ólíklegt að mats
skýrsla sem kostar 40–50 þúsund
geti verið ítarleg.“
Minni líkur á að seljandi verði
skaðabótaskyldur
Aðspurður hvort ástandsskoðun
borgi sig þá yfir höfuð segir Björn
Þorri: „Auðvitað á fólk sem ekki
hefur þekkingu á fasteignum að
fá til þess bæra menn til að skoða
eignina í aðdraganda kaupanna.
Það er hins vegar mikilvægt að þeir
aðilar sem veljast til þess standi
undir væntingum og upplýsi kaup
endur um það sem máli kann að
skipta. Áratuga dómaframkvæmd
Hæstaréttar Íslands segir okkur að
ef kaupandi fékk sérfróðan mann
til að skoða eign og sá aðili varð
ekki var við hinn meinta galla, þá
eru almennt séð minni líkur á að
seljandinn verði látinn svara af
sláttar eða skaðabótakröfu kaup
andans á síðari stigum.“ n
Fyrirvari í
ástandsskýrslu
matsmanns
Tilgangur þessarar skýrslu er að minnka
áhættu á málaferlum og að aðilar sem
koma að fasteignaviðskiptum verði ekki
fyrir tjóni.
Í skýrslunni er í grundvallaratriðum
lýsing á ástandi eignarinnar, teknir eru
fyrir helstu byggingarhlutar. Beitt er
kerfisbundinni framsetning á málum
sem varða alla eignina (gátlisti). Skýr-
slan er ekki trygging fyrir því að það geti
ekki dulist gallar, aðallega vegna þess
að byggingarhlutir eru ekki teknir sundur
og engar efnisrannsóknir eru gerðar.
Matsmaður er eingöngu að lýsa því sem
hann sér.
Björn Þorri Viktorsson, hæsta-
réttarlögmaður og fyrrverandi
formaður Félags fasteignasala Björn
Þorri segir miður að ekki hafi verið tekin upp
einhver mildari ákvæði um ástandsskoðun
fasteigna þegar umræða var um að festa
slíkt í lög í aðdraganda laga um fasteigna-
kaup árið 2002.
Ástandsskoðun fasteigna Ástandsskoðun fasteigna er valmöguleiki sem margir nýta sér, ef tilefni virðist til og ef þekkingu væntan-
legra kaupenda á fasteignum er að einhverju leyti ábótavant. Nokkuð algengt er til dæmis að tilboð séu með fyrirvara um slíka skoðun sem
á sér svo stað ef tilboðið fæst samþykkt.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Okkur er mjög
brugðið yfir þessu“
Girðingar hafa verið færðar lengra frá gossvæðinu
O
kkur er mjög brugðið yfir
þessu enda er hverinn ekki
vanur að haga sér svona. Það
hefur komið fyrir áður að vatn
hafi slest á stígana en aldrei af þess
um krafti. Það sem virðist hafa gerst
þarna er að hverinn gaus miklu lægra
en hann er vanur,“ segir Guðfinnur
Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi Um
hverfisstofnunar, um atvik er heitt
vatn slettist á ferðamenn við Geysi
fyrir skömmu með þeim afleiðingum
að tvö börn brenndust á fótum.
Dv.is greindi fyrst frá málinu og
birti myndband sem faðir barnanna,
Pétur Reynisson, tók. Myndbandið er
sláandi og þar sést hvar börnin stóðu
fyrir utan merkt öryggissvæði við
hverinn.
Öryggismál við Geysi eru nú í
endurskoðun, að sögn Guðfinns:
„Það hefur þegar verið brugðist
við með því að færa girðingarn
ar lengra frá en að öðru leyti erum
við bara að yfirfara öryggismálin og
sjá hvað við getum gert frekar til að
tryggja öryggi gesta – því það sem
hefur gerst einu sinni getur gerst
aftur.“ n agustb@dv.is