Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Side 13
Fréttir 13 þú verðir að axla hana: „Ég hefði átt að passa mig betur“-viðkvæðið,“ segir Silja Bára. „Fyrir vikið er ekkert rými fyrir mistök. Slysin gerast og fólk á ekki alltaf að vera að velta sér upp úr þeim. Fólk keyrir út af, sker sig í fingurinn eða gerir önnur mistök í lífinu en fær ekki sömu dæmandi skilaboð um að það verði bara að taka afleiðingun- um því það passaði sig ekki nógu vel,“ segir Steinunn. Þarf ekki að fækka fóstureyðingum Umræðan um fóstureyðingar ein- skorðast oft við það að það þurfi að fækka þeim. Þessu markmiði á að ná með auknu aðgengi að getnaðarvörn- um, en þá vantar alveg skilning á því að getnaðarvarnir klikka. Silja Bára og Steinunn segja að fóstureyðingar verði að vera aðgengilegt úrræði fyrir konur. „Auðvitað myndi meiri og betri notkun getnaðarvarna draga úr fóstureyðingum að einhverju leyti,“ segir Steinunn. „Ef fóstureyðing er það sem kona þarf til þess að hennar líf geti haldið áfram á hennar eigin forsendum er fáránlegt að tala um að það þurfi að fækka fóstureyðingum. Auðvitað getum við sagt að það ætti að fækka óæskilegum þungunum. En konur verða eftir sem áður þungaðar án þess að vilja það og þetta eru tví- bent skilaboð.“ Fóstureyðing á sér stað eftir getn- að og getur því aldrei verið getnað- arvörn. En fyrir margar konur virka ekki getnaðarvarnir og eru í bók- inni fjölmörg dæmi þess að konur óski eftir fóstureyðingu vegna þess að getnaðarvarnirnar, jafnvel bæði smokkur og hormónagetnaðarvörn, hafi brugðist. „Það er ótrúlega oft sem getnaðarvarnir bara klikka og á aðrar konur virka getnaðarvarnir ekki. Sumar konur þola ekki getnað- arvarnir. Þegar talað er um að fóstur- eyðing geti ekki verið getnaðarvörn er fyrir vikið verið að ýta undir skömm,“ segir Silja Bára. Hugrekki „Það þarf töluvert til þess að senda svona sögur frá sér, sérstaklega vegna þess að lítið er talað um þetta almennt nema í litlum hópum og öruggum rýmum, og við erum mjög þakklátar þeim sem það gerðu,“ segir Steinunn. „En við vitum að fyrir sumar var það bara of erfitt.“ „Ég man sérstaklega eftir ein- um tölvupósti þar sem kona sendi okkur bréf og sagðist hafa reynt að skrifa sögu sína en það hefði bara ver- ið henni of erfitt. Það var ekki vegna eftirsjár eftir fóstureyðingunni held- ur vegna þess að aðstæðurnar í kring- um hana hefðu verið henni svo þung- bærar. Önnur var í stöðugu sambandi við okkur í þrjár vikur meðan hún setti söguna sína niður,“ segir Silja Bára. Lesa má brot úr frásögn einnar konu hér til hliðar. Þegar blaðamaður hitti höfunda bókarinnar á Kjarvalsstöðum á dögunum er ljóst að þær ætla sér ekki að hvísla um fóstureyðingarnar heldur ræða um þær hátt og skýrt. Steinunn og Silja Bára höfðu hugs- að sér að gefa bókina út hjá almennu bókaforlagi en niðurstaðan var að gefa hana út hjá Háskólaútgáfunni. „Við höfum verið á báðum áttum með það hvar bókin ætti heima. Okkur var tekið mjög vel alls staðar þar sem við fórum að ræða við forleggjara, en niðurstaðan var alltaf að það yrði erfitt að markaðssetja bók sem fjallaði um fóstureyðingar. Það væri ekki endi- lega eitthvað sem fólk treysti sér til að ganga inn í bókabúð og kaupa. Við höldum að það sé misskilningur, það þarf að vera hægt að ræða þetta og það á að vera hægt,“ segir Silja Bára. „Við vonumst til að geta sýnt fram á að fólk er víst tilbúið til að lesa um fóst- ureyðingar og ræða þær, með því að safna upp í útgáfukostnað með for- sölu bókarinnar á Karolina Fund. n Helgarblað 19.–22. júní 2015 Til sýnis á staðnum Háþekju FT430. Tilbúinn með ökurita. Loftkæling. Hraðastillir. Hiti í framrúðu. ofl. Verð miðað við hópferðaleifi 5.490.000,- án vsk. 6.807.600 með vsk. Nýr 2014 Ford Transit 17 manna ← Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir Rykmoppur og sápuþykkni frá Pioneer Eclipse sem eru hágæða amerískar hreinsi- vörur. Teppahreinsivörur frá HOST Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942 Frábærar þýskar ryksugur frá SEBO Decitex er merki með allar hugsanlegar moppur og klúta í þrifin. UNGER gluggaþvottavörur, allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með: Marpól er með mikið úrval af litlum frábærum gólfþvottavélum Tilboð fyrir hótel og gistiheimili í apríl/maí! Konur verða að mega gera mistök ætti ekki að vera að fækka fóstureyðingum n Snýst um yfirráðarétt yfir líkömum kvenna Er það ekki svolítið „kvenskt“? Í bókinni Rof kemur fram saga konu sem var 28 ára móðir með ársgamalt barn þegar hún varð aftur barnshafandi. Konan hafði verið að glíma við erfitt fæðingar- þunglyndi og ákváðu hún og sambýlis- maður hennar að fara í fóstureyðingu. Það var ekki beinlínis erfitt að taka ákvörðun- ina, en það var erfitt að réttlæta hana þegar fram í sótti, segir konan. Konan bjó úti á landi og var vísað á kvennadeildina í Reykjavík til að fara í aðgerðina. Konunni hafði verið sagt að hún mætti hafa manninn sinn hjá sér, en fékk það svo ekki þegar á spítalann var komið. Hún lýsir að- stæðum svona, eftir að á kvennadeildina var komið og svo heim: „Þetta var í fyrsta skipti sem ég fann einhverja andúð á því sem ég var að gera, fékk þetta einhvern veginn framan í mig og fékk ekki að hafa þetta eins og mér hafði verið sagt. Ég varð alveg ísköld allan tímann, fann engar tilfinningar fyrr en ég var komin heim til mín með barnið mitt í fangið og þá byrjaði ég að gráta. Ég grenjaði í nokkra sólarhringa og upplifði bæði létti, að þetta væri búið, en líka skömm að hafa ekki getað klárað þessa meðgöngu. Og það endurvaknaði þegar ég varð ófrísk aftur. Það var skrýtið að standa frammi fyrir því, að það væru virkilega bara þrír mánuðir sem skildu að þessar gjörólíku aðstæður og tilfinningar, og rosa- lega erfitt að réttlæta það að ég ætlaði að ganga í gegnum aðra meðgöngu fyrir þennan frumuklasa, sem er núna farinn að sparka í rifbeinin á mér og vekja aftur þennan ofboðslega kvíða og meðgöngu- þunglyndi. Sennilega er ég að refsa mér fyrir að hafa hugsað um mig. Er það ekki svolítið „kvenskt“? Maður er náttúrlega alinn upp í þessu samfélagi þar sem þú ert ekki almennileg kona nema þú skammist þín alveg niður í rassgat fyrir hluti eins og þetta … En ég bý svo vel að eiga mann sem minnir mig á að hætta að refsa mér, að ég geti ekki verið fórnarlamb því við höfum tekið þessa ákvörðun. Og hún verður bara að vera rétt á þeim tímapunkti sem maður tekur hana. Og á þessari meðgöngu las ég eitthvað um að glöð mamma væri góð mamma. Þá hugsaði ég bara „guð minn góður, hvað ég hefði ekki verið góð mamma“. En núna þarf ég líka að vinna í því að sætta mig við að þetta barn sé að koma, og það er fyrst núna á 30. viku sem ég er farin að hlakka til.“ Einstakar sögur Sögurnar eru allar einstakar, segja þær Silja Bára og Steinunn, en tæplega 80 konur sendu þeim frásögn sína af fóstureyðingum. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.