Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Blaðsíða 32
32 Lífsstíll Helgarblað 19.–22. júní 2015
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n
Staðurinn - Ræktin
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
Sumarkort 19.900 kr!
Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Litar sig út úr kvíðanum
n Alda Björk notar litabækur fyrir fullorðna n Listrænir hæfileikar ekki nauðsynlegir
Í
rúm 13 ár hefur Alda Björk Guð
mundsdóttir glímt við kvíða sem
hún hefur reynt ýmislegt við. Ný
lega fann hún svo „tæki“ sem
henni finnst nýtast sérstaklega
vel til þess að draga úr kvíðaein
kennunum. Tækið er mögulega ekki
það fyrsta sem fólki dettur í hug við
kvíða enda er hér um að ræða lita
bók fyrir fullorðna.
„Kvíðinn er oftast félagslegur
en getur tengst mörgu öðru líka, til
dæmis myrkri, flugum, sumrinu,
draugum, nýjum hlutum, lækn
um og miklum breytingum. Í gegn
um tíðina hef ég upplifað mikinn
kvíða og pirring en finn að kvíðinn
minnkar þegar ég dunda mér við
litabókina í klukkutíma eða lengur.“
Rakst á litabók í Noregi
Alda Björk segir að hún hafi óvart
komist upp á lagið með litabækurn
ar. Hún rakst á svona litabók í Noregi
um síðastliðna páska og ákvað að slá
til. Síðan hefur ekki verið aftur snúið
og litabækurnar orðnar margar.
„Ég var í heimsókn hjá systur
minni í Noregi og hún sýndi mér
litabók fyrir fullorðna. Mér fannst
þetta ótrúlega spennandi og ákvað
að prófa en þá vissi ég ekki að svona
litabækur hafi verið notaðar sérstak
lega fyrir fólk með kvíða. Ég fann þó
fljótlega eftir að ég byrjaði að lita að
þetta hentaði mér vel og að mér líð
ur ótrúlega vel þegar ég lita.“
Gaman að sjá útkomuna
Alda Björk hefur miðlað af reynslu
sinni og skrifaði pistil á heima
síðuna www.kvidi.is þar sem hún
mælti með slíkum bókum fyrir fólk
með kvíða. Hún segir að listrænir
hæfileikar séu alls ekki nauðsynleg
ir og að sjálf hafi hún ekki litað mik
ið sem barn.
„Ég var ekki nógu dugleg að lita
sem barn, gerði það alveg af og til en
ég er frekar skapandi í eðli mínu og
klár að skapa alls kyns hluti í photo
shop. Svo nýti ég sköpunarþörf
ina með börnunum í vinnunni. Það
sem er líka svo gott við litabækurn
ar er að þær krefjast þess ekki að þú
hafir nokkra kunnáttu. Þú ert ekki
að teikna upp línurnar, þú bara lit
ar í öll formin og ræður litunum. Það
skemmtilegasta er svo að sjá hvernig
útkoman verður.“
Best að nota tússliti
Síðan Alda Björk fékk fyrstu litabók
ina í Noregi hefur hún verið dugleg
að kaupa sér nýjar bækur í gegnum
Amazon. Þá sá hún að bækurnar eru
notaðar meðal annars við að kenna
núvitundartækni gegn kvíða og
þunglyndi. Henni fannst það ríma
sérstaklega vel við reynslu sína. Að
lokum mælir Alda með nokkrum af
sínum uppáhaldsbókum og gefur
góð ráð varðandi liti og litaval.
„Ég mæli langmest með bókinni
Kreativitet Mindfulness, er mjög
hrifin af henni. Svo fannst mér líka
bókin Art Therapy (An Anti stress
colouring book), með mynd af ref
framan á, skemmtileg en í henni er
þó búið að lita brot á hverja mynd til
að gefa hugmynd. Sú bók er ótrúlega
litrík og falleg. Best er að hafa túss
liti sem eru frekar mjóir með góð
um oddi, ekki þykka, upp á að ná í
minnstu línurnar. Og svo er gott að
hafa góða tréliti með. Gerðin skiptir
ekki öllu máli.“ n
Gott að dunda sér Alda Björk finnur að
það dregur úr kvíðaeinkennum þegar hún
dundar sér við að lita.
Litríkt Best er að nota tússliti með mjóum oddi
til að lita ekki út fyrir. En góðir trélitir ganga líka.
Fallegt Alda Björk
segir alltaf gaman
að sjá útkomuna á
myndunum.
Leynigarðurinn á Íslandi
Uppseld víða um heim en er nú fáánleg hér á landi
U
m þessar mundir kemur út
litabókin Leynigarðurinn
sem einmitt er ætluð fyrir
fullorðna. Bókin er sú fyrsta
sinnar tegundar sem hrinti bylgj
unni af stað og hefur slegið í gegn úti
um allan heim.
Á heimasíðu forlagsins, Bjarts,
sem gefur út bókina, segir:
„Förum í ferðalag um leyni
garð þar sem dregnar eru fíngerð
ar og undurfagrar myndir sem bíða
þess að verða gæddar lífi með lit
um. Í hverri mynd fela sig alls kyns
skordýr og skepnur. Einnig á eftir að
ljúka við suma hluta garðsins. Fyrir
listamenn og garðyrkjufólk á öllum
aldri.“
Bókin hefur dásamlega róandi
áhrif á mann og margar bækur sem
hafa komið út í kjölfar hennar hafa
tekið fram hvað þetta sé gott gegn
kvíða og vinni með manni í núvit
undinni. Bókin er nýkomin í versl
anir á Íslandi en hún er uppseld víða
um heim. n
Loksins á Íslandi Litabókin hefur slegið í
gegn um allan heim.