Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Side 4
4 Fréttir Helgarblað 17.–20. júlí 2015
Vilja ekki sömu slysa-
tölur og fyrir hrun
n Vinnueftirlitið brýnir fyrir verkkaupum og verktökum að huga að vinnuverndarmálum
A
llt bendir til að fram undan
sé uppsveifla í byggingar-
starfsemi og mannvirkja-
gerð hér á landi eftir mikla
lægð frá árinu 2008. Allar
þær framkvæmdir sem eru að hefj-
ast eða fyrirhugað er að hefja á kom-
andi mánuðum og árum geta leitt
til mikillar fjölgunar starfsmanna í
þessum geira. Vinnueftirlitið vill því
brýna fyrir verkkaupum og verktök-
um og öðrum hagsmunaaðilum að
huga vel að vinnuverndarmálum,
ekki síst öryggismálum.“
Þetta kemur fram í dreifibréfi
sem Vinnueftirlitið sendi á dögun-
um til verktaka og verkkaupa í
byggingar- og mannvirkjagerð og
annarra sem málið varðar.
Þórunn Sveinsdóttir, deildar-
stjóri þróunar- og eftirlitsdeildar
Vinnueftirlitsins, segir að með bréf-
inu vilji stofnunin leggja áherslu á
að verkkaupar og verktakar vinni
heildstæða undirbúningsvinnu,
sem tryggi örugga og slysalausa
framkvæmd, áður en verkið hefst.
„Við viljum ekki að það sé farið
að eltast við vandræðin þegar allt
er komið af stað heldur að tryggja
að það verði ekki vandræði. Við vilj-
um byrgja brunninn áður en barnið
er dottið ofan í hann,“ segir Þórunn.
Varúðarmerki
Mikil uppsveifla var í byggingargeir-
anum hérlendis fyrir hrun með til-
heyrandi hraða og spennu. „Það
gekk mikið á og það sást í slysatöl-
um. Okkar markmið með þessu bréfi
er að ýta undir að slíkt endurtaki sig
ekki því það viljum við alls ekki sjá,“
segir hún. „Við sjáum nú þegar vís-
bendingar um hækkun í slysatölum,
þannig að það eru ákveðin varúðar-
merki komin af stað. Það er til mik-
ils að vinna að menn virkilega setj-
ist niður og skipuleggi það sem á
að fara fram. Eins mega menn ekki
ætla sér of stuttan tíma í verkið. Það
mætti bæta verulega í þessu ferli.“
Vantaði upp á eftirlit fyrir hrun
Aðspurð viðurkennir Þórunn að það
hafi vantað upp á eftirlit hjá stofn-
uninni fyrir hrun en tekur fram að
Vinnueftirlitið eigi ekki að halda í
höndina á mönnum, heldur eigi fyr-
irtæki að hafa stjórn á sínum málum
sjálf. „Þegar verður svona sprenging
er erfitt um vik fyrir eftirlitið að vera
alls staðar þar sem verið er að byggja
og framkvæma. Það er ekki heldur
markmiðið að Vinnueftirlitið standi
alla daga yfir mönnum en miðað við
hraðann og fjölda verka sem voru í
gangi var það víðs fjarri að við gæt-
um verið á öllum vinnustöðum.“
Niðurskurður hjá
Vinnueftirlitinu
Hún segir að stofnunin hafi engu að
síður á þeim tíma verið á mun fleiri
vinnustöðum en í dag því skorið
hafi verið hressileg niður eftir hrun.
Nýtt fólk hefur ekki verið ráðið í stað
þeirra sem hafa hætt fyrir aldurs
sakir, þar á meðal þriðjungur eft-
irlitsmanna. Núna starfa tíu til ellefu
á landinu öllu í beinu eftirliti.
Ekki hefur náðst að bæta við
mannaflann eins og til þarf, að mati
Þórunnar. „Það er áhyggjuefni því
við þyrftum að fá meiri fjármuni til
að geta styrkt eftirlit okkar. Núna
erum við að beina mannaflanum í
þetta verkefni, bygginga- og mann-
virkjageirann, en það bitnar á öðr-
um greinum.“
Erlendir starfsmenn
slasast oftar
Þórunn segir fræðslu starfsmanna
skipta gríðarlegu máli til að hægt sé
að draga úr slysahættu. Allir þurfi að
ganga í sama takt. Þar skiptir máli að
á stöðum þar sem mörg tungumál
eru töluð að menn skilji hver annan.
„Við höfum séð að erlendir starfs-
menn slasast oftar en Íslendingarn-
ir. Auðvitað er þetta áhættuþáttur ef
menn skilja ekki það sem fram fer.
En ef nægilega góð fræðsla og þjálf-
un er veitt getur það skipt sköpum,
ásamt fyrri reynslu og þekkingu.“
Núll-slysastefna
Landsvirkjunar
Hún nefnir að fyrirtækið Lands-
virkjun hafi staðið sig vel með svo-
kallaðri núll-slysastefnu sinni. „Það
hefur leitt til gríðarlegra breytinga í
verkum síðari ára eins og Búðarháls-
virkjun. Þeir réðu verktaka sem var
með öryggismálin á hreinu og þetta
skilaði sér í því að það var mjög lítið
um slys í þeirri framkvæmd.“ Einnig
segir hún mikilvægt að gera áhættu-
mat fyrir allt verkið, bæði áður en
það hefst og fyrir hvern einasta dag.
Vinnupallar hættulegastir
Spurð út í hættulegustu aðstæð-
urnar sem verkamenn lenda í nefn-
ir Þórunn fallslys þar sem verið er
að vinna á vinnupöllum. „Það er
mjög hættuleg vinna og það skipt-
ir afar miklu máli að vinnupall-
ar og fallvarnir allar í kringum þá
séu í lagi. Þetta þarf að vera gert
af kunnáttufólki, aðilum sem hafa
hlotið þjálfun og þekkingu til að
setja pallana upp og taka þá niður.
Þetta er það algengasta sem veld-
ur slysum og þau geta verið mjög
alvarleg,“ segir hún. n
HÓTEL OG
GISTIHEIMILI
Við leigjum út rúmföt og handklæði
fyrir hótel og gistiheimili.
Sækjum, þvoum, straujum og sendum.
Fáðu verðtilboð!
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
www.iamhappy.is
#iamhappyis IamHappy.is
Alvöru útsala • 30-50% afsláttur
af ÖLLUM fatnaði • I AM HAPPY
Barnavöruverslun • Brekkuhúsum 1
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
„Þegar verður
svona sprenging er
erfitt um vik fyrir eftirlitið
að vera alls staðar þar
sem verið er að byggja og
framkvæma.
Vinnuslys
við byggingu og viðgerð
mannvirkja 2003–2013
n 2013: 67 slys
n 2012: 70 slys
n 2011: 98 slys
n 2010: 121 slys
n 2009: 150 slys
n 2008: 359 slys
n 2007: 603 slys
n 2006: 564 slys
n 2005: 527 slys
n 2004: 676 slys
n 2003: 162 slys
Verkamaður að
störfum Vinnu-
eftirlitið vill ekki
eins mikla slysa-
tíðni og fyrir hrun.
MyNd Sigtryggur Ari
Þórunn
Sveinsdóttir
Fræðsla starfs-
manna skiptir
gríðarlega miklu
máli að mati
Þórunnar.