Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 10
10 Fréttir Helgarblað 17.–20. júlí 2015
„Seyðisfjörður stendur
illa varðandi samgöngur“
n Yfir þrjú þúsund manns hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu n Úrbætur nauðsynlegar
H
átt í 3.500 manns hafa ritað
nafn sitt undir stuðnings
yfirlýsingu þess efnis að
farið verði í framkvæmdir
á undirbúningi fyrir jarð
göng milli Seyðisfjarðar og Egils
staða sem fyrst. Þess má geta að
íbúar Seyðisfjarðar eru 653 talsins.
Í yfirlýsingunni segir að fjöl
margar ályktanir og áköll hafi kom
ið frá Seyðfirðingum um varan
legar samgöngubætur og að ekki
verði unað við þær hættulegu og
óásættan legu aðstæður sem eru í
samgöngumálum Seyðisfjarðar.
Eini akvegurinn frá Seyðisfirði
Vegurinn um Fjarðarheiði er eini
akvegurinn til og frá Seyðisfirði en
hann liggur í 620 metra hæð yfir
sjávarmáli. Stóran hluta árs get
ur færð verið erfið og það hefur
verið bæði Seyðfirðingum og ferða
mönnum til trafala. Heiðin lokast
oft á veturna, stundum svo dög
um skiptir, og menn verða því inn
ikróaðir í firðinum. Veldur það til
heyrandi óþægindum.
Í yfirlýsingunni segir jafnframt
að Seyðfirðingar hafi barist fyrir
Fjarðarheiðargöngum í meira en
30 ár og því sé orðið tímabært að
hlustað sé á neyðaróp þeirra.
Forsvarsmenn bæjarráðs Fjarða
byggðar eru ósammála hugmyndum
Seyðfirðinga um að Fjarðarheiðar
göng séu heppilegasti kosturinn í
stöðunni og sagði formaður bæj
arráðs, Jens Garðar Sveinsson, í frétt
um RÚV fyrir skömmu að betra væri
að byrja á göngum frá Seyðisfirði til
Norðfjarðar í gegnum Mjóafjörð með
tengingu upp í Fjarðardal. For maður
bæjarráðs Seyðisfjarðar, Margrét
Guðjónsdóttir, er því ósammála.
Sterkt að tengja
miðsvæði Austurlands
„Það eru allir á Austurlandi sam
mála um að það sé nauðsynlegt að
ráðist verði í úrbætur samgangna
til Seyðisfjarðar. Maður sér það æ
betur eftir því sem tíminn líður og
fólk sækir meira á milli byggðar
laga,“ segir Jón Björn Hákonarson,
forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar vilji ein
faldlega að skoðaðir séu fleiri kostir
til að tengja saman byggðir Austur
lands. „Ef svarið er göng undir
Fjarðarheiði þá er það bara þannig.
Á endanum eru það samgöngu
yfirvöld og Alþingi sem taka
ákvörðun um málið. Það er hins
vegar okkar mat að það sé mjög
sterkt að tengja allt miðsvæði Aust
urlands í eitt atvinnu og þjónustu
svæði. Sé litið til framtíðar myndi
myndast gríðarlega sterk eining
á Austurlandi með göngum milli
Fjarðabyggðar og Seyðisfjarðar,“
segir Jón Björn.
Seyðisfjörður yrði þannig að
hálfgerðri endastöð en göng myndu
liggja frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar
og þaðan til Neskaupstaðar. Göng
að Egilsstöðum myndu liggja frá
Mjóafirði og upp í Fagradal, þaðan
sem keyrt yrði um fjallveg til Egils
staða.
Hann bætir því við að lokum
að ekki sé um neinar deilur milli
manna á ræða: „Allar umræður eiga
að þola að ýmsar hliðar séu ræddar
og svo sé tekin ákvörðun um þær.
Til þess eru yfirvöld á Íslandi.“
Slá ryki í augu fólks
Margrét Guðjónsdóttir segir Seyð
firðinga hafa barist fyrir bættum og
öruggari samgöngum frá Seyðisfirði
í þrjá áratugi.
„Við höfum stutt allt sem snýr að
því að bæta samgöngur, hvort sem
það er á Austurlandi eða annars
staðar.“ Nú sé komið að því að grafa
göng frá Seyðisfirði.
„Fjarðabyggð hefur komið fram
með þær hugmyndir að göng frá
Mjóafjarðarheiði sé einhver fram
tíðarkostur fyrir samgönguvanda
okkar Seyðfirðinga. Sá kostur hefur
verið afskrifaður af hálfu Vega
gerðarinnar og er ekki til umræðu
enda leysir hann ekki þann vanda
sem Seyðfirðinga standa frammi
fyrir; að þurfa að keyra veg í svona
mikilli hæð og á svo snjóþungum
svæðum.“
Margrét segir að verið sé að
slá ryki í augu fólks þegar talað sé
um að Fjarðabyggðatengingin ein
og sér leysi samgönguvandamál
Seyðisfjarðar því þá eigi vegfar
endur eftir að ferðast um vályndan
Fagradal á leið sinni á Hérað: „Með
því að grafa Fjarðarheiðargöng
munum við í framtíðinni geta losað
allt MiðAusturland undan fjallveg
um Fagradals og Fjarðarheiðar og
opna möguleika á áframhaldandi
gangagerð milli byggðalaganna.“
Hún telur Seyðfirðinga hafa
sýnt fram á að Fjarðarheiðar
göng séu nauðsynleg til framtíðar.
Ómögulegt sé fyrir sveitarfélag að
búa við samgöngur sem ekki séu
alltaf greiðar. Í framhaldi af gerð
Fjarðarheiðarganga yrði síðan
hægt að skoða tengingu frá Seyðis
firði til Mjóafjarðar og Neskaup
staðar.
„Það leysir ekki okkar mál að
vísa okkur eingöngu inn í Fjarða
byggð.“
Kostnaður 20–25 milljarðar
Samkvæmt upplýsingum frá Vega
gerðinni yrði kostnaður við gerð
Fjarðarheiðarganga 20 til 25 millj
arðar króna en áætluð vegalengd
þeirra yrði 13,5 kílómetrar. Göng
úr Mjóafirði að Egilsstöðum yrðu
rúmlega 9 kílómetrar en sú fram
kvæmd yrði 6–7 milljörðum ódýr
ari.
Þóroddur Bjarnason, fyrrverandi
stjórnarformaður Byggðastofnun
ar, segir að enginn vafi sé á því að
Seyðisfjörður standi illa varðandi
samgöngur: „En ekki er vafi á því að
hægt sé að leysa þeirra mál. Hins
vegar skipti máli fyrir MiðAustur
land að horft sé á heildarmyndina.
Sú lausn sem farið verður út í fyrir
Seyðisfjörð verður að vera hluti af
einhverju heildarplani sem allir eru
sammála um að sé framtíðin yfir
ákveðið tímabil. Síðan verði farið í
eina framkvæmd af annarri.“ n
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
Margrét Guðjónsdóttir Seyðfirðingar
hafa barist fyrir göngum í 30 ár.
Jón Björn Hákonarson Tengja saman
miðsvæði Austurlands.
Kort af Mið-Austfjörðum
Hér má sjá þá kosti sem um ræðir.
Egilsstaðir
Fjarðarheiðar
göng
Mjóafjarðargön
g
Fagridalur
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Mjóifjörður
Mið-Austfirðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði (í húsi Innrammarans) • Sími 568 0400 • www.fabrik.is
tölvuviðgerðir
Fullt verð 12.250,-
FABRIK
TÖLVUÞJÓNUSTA
· Ástandsskoðun
· rykhreinsun
· vírushreinsun
· Óæskilegur hugbúnaður
fjarlægður
Sumartilboð
4.990,-
Hröð og góð þjónusta!
Full yfirferð
(Windows-tölvur)