Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Blaðsíða 28
Helgarblað 17.–20. júlí 201528 Lífsstíll
Kæra Ragga
É
g tel mig nokkuð skynsama
manneskju og kunna muninn
á réttu og röngu, en engu að
síður þá held ég framhjá. Í
nokkur ár hef ég verið að slá
mér upp með samstarfsmanni en
er orðin ofboðslega þreytt á þessu
mynstri og langar að losna úr því. Við
erum bæði gift en það er um 10 ára
aldursmunur á okkur. Hann er og var
þekktur daðrari og var búin að eiga í
nokkrum smá „flingum“ í vinnunni
sem ég og flestir vissu vel af, og stóð
nákvæmlega á sama um því ég pældi
lítið í manninum. Ég er mikill daðrari
og kynvera en mér hefur tekist að
halda því nokkurn veginn bara fyr-
ir mig og bólfélaga, svo ég er ekki al-
ræmd á vinnustaðnum eins og hann.
Köttur og mús
Þegar hann tók eftir mér á sínum tíma,
átti ég sennilega bara að vera næsta
stutta „flingið“ hans og líklega hefur
hann haldið að kötturinn gæti leikið
sér stuttlega að þessari mús eins og
öðrum, en nei, þarna hitti skrattinn
ömmu sína og við erum ennþá í sama
pakkanum næstum hálfum áratug
síðar. Við erum oft búin að reyna að
hætta í bæði góðu og illu – höfum rif-
ist, hatast og niðurlægt, verið afhjúp-
uð af mökum oftar en einu sinni og
þar fram eftir götunum.
Við erum ekki mjög náin – deilum
einhverju á yfirborðinu en pössum
okkur alltaf að fara ekki dýpra, og við
eyðum litlum sem engum tíma saman
fyrir utan þetta leynilega. Fyrir framan
aðra erum við frekar stirð í samskipt-
um, og þess vegna verður stundum
misskilningur og leiðindi. En hvað er
það sem við erum að sækja í?
Í raun þoli ég hann illa, finnst
hann sjálfumglaður, „over the top“
og bráður á allan hátt, en jú, hann
er nokkuð myndarlegur og með gott
sjálfstraust og við eigum það sam-
eiginlegt að vera skíthælar með enga
sjálfstjórn. Hvaða stelpa hefur ekki
elskað vonda strákinn?
Kynferðislegir yfirburðir
Af hverju er hann að sækja í mig? Ég
er örugglega ekki mikið skárri í hans
augum, ég er alltaf til og hef klárlega
töluverða yfirburði yfir hann á kyn-
lífssviðinu – og það er nokkuð ljóst
að ég er að veita honum eitthvað sem
hann fær ekki heima hjá sér.
Á móti kemur að hann er ekki að
koma með neitt nýtt inn á borð til
mín nema sig sjálfan. Jú, ég er sirka
áratug yngri, og í sambandi svo það
er engin hætta á að ég vilji eitthvað
meira samband og ég legg jafn mik-
ið ef ekki meira upp úr því að ekkert
komist upp.
Niðurstaðan er eiginlega að
SPENNA sé lykilorðið hjá okkur báð-
um.
Lítill sjálfsagi
Þó svo að þetta sé spennandi þá
er þetta líka orðið svo þreytt. Ég
er löngu farin að þekkja mynstrið
og ætti fyrir löngu að vera farin að
geta tekið sveig þegar ég veit í hvað
stefnir. Annað hvort okkar fær reglu-
lega samviskubit og kúplar sig út, og
til að halda „kúlinu“ lætur hinn aðil-
inn eins og honum sé sama þannig
á endanum springur fyrri aðilinn á
limminu og orgar eins og smákrakki
eftir athyglinni aftur og allt dettur í
sama farið.
Þar sem að ég er aumingjagóð
blaðka með lítinn sjálfsaga vona
ég alltaf undir niðri að hann segi
endan lega stopp því ég veit það fyrir
víst að ég eltist ekki við menn sem
vilja mig ekki en ég er farin að halda
að það gerist ekki þar sem hann er
sennilega nákvæmlega eins. Hvað
gera Danir þá? Kveðja, Ylfa
Elsku Ylfa
Mikið svakalega fannst mér bréfið
þitt skýrt og skemmtilegt. Ég veit að
þú veist að ég mun ekki leysa vand-
ann þinn með örfáum orðum á síðu
Kynlífspressunnar, en á sama hátt
skil ég að það hafi verið gott fyrir þig
að koma hugsunum þínum á blað –
og það er alltaf gott að fá álit. Ég vona
samt að þú eigir einhverja glögga
trúnaðarvinkonu sem þú getur eytt
löngum stundum með við að kryfja
málið.
Mér finnst þú hafa prýðilegt inn-
sæi í stöðuna – þú ert (svo vitað sé) í
einhliða opnu sambandi, og í því fel-
ast alltaf dálítil svik. Þú minnist lítið
á sambandið við eiginmanninn, og
á orðum þínum skil ég að sjóðheiti
vinnufélaginn sé nú ekki sá eini sem
þú hefur átt í hliðarsambandi við í
gegnum tíðina. Ég ætla ekki að setja
mig á háan hest og dæma þig fyrir
þínar gjörðir, lífið er ekki svarthvítt
og þú ert greinilega ekki gerð til að
vera eins manns kona, en í guðanna
bænum reyndu að minnsta kosti að
halda þessu leyndu fyrir mannin-
um þínum og ekki taka eitthvað játn-
ingakast. Með því værir þú bara að
færa þinn sársauka og samviskubit
yfir á hans herðar.
Finndu eitthvað nýtt að gera
En hvað er best að gera í stöðunni?
Ég held hreinlega að þú þurfir að
finna þér eitthvað annað að gera.
Mynstrið ykkar uppfyllir greinilega
einhverja þörf hjá þér, þess vegna
sækir þú í sama farið. Þú talar um
spennuna, en þarna er líka ákveðið
vald sem þú hefur, þú segist vera
meiri kynlífsmeistari en hann, þú ert
yngri – fyrir það uppskerð þú eflaust
lotningu hans. Hann fellur hvað eft-
ir annað og tilfinningin sem því fylgir
er örugglega jafnsæt og kandífloss á
fögrum sumardegi. Hvort sem það
verður annar ástmaður, fallhlífar-
stökk eða sjósund – finndu þér eitt-
hvað að gera, kona, og prófaðu að fá
kikkið út úr neiinu. Það getur verið
mikill kraftur í að setja mörk. n
Bestu kveðjur, Ragga
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Fyrir framan aðra
erum við frekar stirð
í samskiptum, og þess
vegna verður stundum
misskilningur og leiðindi.
Skrifstofukynlíf
Forboðinn hiti í
fundarherberginu. Ég held
framhjá
og get ekki hætt
n Stjórnlaust vinnustaðasamband n „Eigum það sameiginlegt að vera skíthælar“
Smart föt
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54