Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 38
Helgarblað 17.–20. júlí 201538 Fólk E ftir hrun buðu yfirvöld í Kanada þúsundum Íslendinga að flytjast til Manitoba und- an kreppunni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íslendingar flytja vestur þegar skóinn herðir. Fyrsta tilraunin var gerð í kringum árið 1000. Sú stóð stutt, en enn má þó sjá minjar um hana á Nýfundnalandi og í Glaumbæ fyrir utan Sauð árkrók þar sem Snorri Þorfinnsson bjó, en hann var fyrsti Íslendingurinn sem fæddist í Kanada. Öllu fleiri fóru á síðasta fjórðungi 19. aldar, um 20.000 manns eða allt að fjórðungur þjóðar- innar. Fæstir komu aftur og búa af- komendur þeirra enn í góðu yfirlæti í Manitoba og þar um kring. Meðal þekktra seinni tíma innflytjenda má nefna Bjarna Tryggvason geimfara og Sturlu Gunnarsson leikstjóra, en báð- ir eru fæddir á Íslandi en uppaldir í Kanada. Ný bylgja Íslendinga En hvernig reiðir þeim af sem fóru í síðustu bylgjunni? Einn þeirra er Birgir Róbertsson, sem opnaði bak- arí í Gimli en er nú fluttur til stór- borgarinnar Toronto þar sem hann rekur Viking Bakery. Hvað kom til að hann ákvað að flytjast vestur? „Mér hefur alltaf þótt Kanada spennandi land, stórt land og fjöl- breytt. Ég var nýfluttur heim til Ís- lands frá Úkraínu 2008–2009 á þeim tíma þegar bankarnir féllu. Allir á Íslandi voru í miklu sjokki og and- rúmsloftið kannski ekkert sérstak- lega áhugavert á þeim tíma. Mig langaði út aftur, helst aftur til Úkra- ínu en því miður var staðan þar sýnu verri en á Íslandi, því var alveg tilval- ið að kjósa Kanada og ég sé ekki eftir því. Ég var lengi búinn að setja stefn- una á Toronto, þetta er jú stærsta borg landsins og oft kölluð New York Kanada, hér er mikið að gerast og svo er hún afskaplega alþjóðleg, maður heyrir hin ýmsu tungumál á hverjum degi. Einnig er auðvelt að ferðast frá Toronto, það er beint flug til Íslands alla daga og frábærar flug- samgöngur í allar áttir, þetta er frá- bær borg sem vex hratt.“ Með hvaða hætti aðstoðuðu yfir­ völd í Manitoba við flutninginn? „Það var gerður samningur á milli Vinnu- málastofnunar á Íslandi og ríkis- stjórnar Manitoba fljótlega eftir hrun. Tveir fundir voru haldnir á Íslandi fyrir troðfullu húsi og nokkrar fjöl- skyldur fluttu til Manitoba í kjölfarið, eitthvað í kringum 40–50 manns.“ Varstu kominn með atvinnu­ tilboð þegar þú ákvaðst að fara? „Nei, ég var strax ákveðinn í að hefja minn eigin rekstur en papp- írsvinnan hér er töluvert öðruvísi. Ég þurfti að sýna fram á að ég væri búinn að vera með rekstur á Íslandi og í Úkraínu, og að ég skuldaði enga skatta eða skyldur í hvorugu landinu. Ferlið allt tók nákvæmlega sex mánuði.“ Hvað kom til að þú ákvaðst að opna bakarí? „Þegar ég kom til Gimli í fyrsta skipti sá ég strax tækifæri til að opna ís- lenskt bakarí, þarna eru sterkar ís- lenskar rætur, mikil virðing er borin fyrir öllu sem íslenskt er og íslenskt bakkelsi er jú á heimsmælikvarða. Reksturinn gekk vel og það var mik- ið að gera á sumrin. Gimli er af- skaplega vinsæll ferðamannabær á sumrin en síðan fellur allt í dvala á veturna. Ég hafði reyndar ekki unnið sem bakari í meira en 20 ár og ég hélt að ég myndi aldrei fara að baka aftur en engin veit sína ævi fyrr en öll er.“ Hver er munurinn á íslenskum bakaríum og kanadískum? „Kanadísk og íslensk bakarí eru töluvert frábrugðin. Í kanadískum bakaríum er mikið lagt upp úr „butt- er tarts,“ hér eru margar tegund- ir af „muffins“ og „donuts,“ mikið um eplapæ, „brownies“-kökur, „cupcakes“ og svo framvegis. Okkar tækifæri liggur í að vera öðruvísi, það er það sem við leggjum upp með. Það sem við seljum mest af hér í Toronto er hafrakex, piparkökur, kleinur og flatkökur. Nú er maður að velta því fyrir sér þessa dagana hvort maður eigi ekki bara að einbeita sér að þessum tegundum og vera ein- göngu í því, alla vega er markaður- inn stór í Toronto.“ Hver er helsti munurinn á Kanada og Íslandi? „Munurinn liggur kannski helst í því að Kanadamenn eru mun kurteisari en Íslendingar, hins vegar er galli hvað regluverkið er þungt á öllum sviðum og allt tekur óskaplega langan tíma í kerfinu. En öllu er auð- vitað hægt að venjast og allt hefst með þolinmæðinni.“ n Komdu til oKKar ...Eða leigðu lyftu og gErðu við bílinn sjálf/ur auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562 Við gerum Við bílinn faglegar Viðgerðir Íslenskur vÍkingur bakar Í ToronTo n Nýir vesturfarar eftir hrun n Kanadísk og íslensk bakarí mjög ólík Vínartertur Vesturfarar hafa löngum átt í heitu ástarsambandi við vínartertur. MyNd Valur GuNNarssoN „Þegar ég kom til Gimli í fyrsta skipti sá ég strax tæki- færi til að opna ís- lenskt bakarí, þarna eru sterkar íslenskar rætur, mikil virðing er borin fyrir öllu sem íslenskt er og íslenskt bakkelsi er jú á heimsmælikvarða. Víkingabakaríið Vinsælt í Toronto. MyNd Valur GuNNarssoN Birgir bakari Torontobúar hafa tekið bakkelsi Birgis opnum örmum. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.