Fréttatíminn - 04.12.2015, Qupperneq 74
V ið eyðum töluverðum tíma á hverj-um degi í að hugsa um mat, ákveða hvað skuli snæða og svo auðvitað að
borða matinn sjálfan. Þetta eru lífsnauðsyn-
legir hlutir, sumir njóta þess að spekúlera
í mat og drykk, aðrir vilja helst klára þetta
sem fyrst svo þeir geti farið að gera eitthvað
annað mikilvægara. Vissulega getur farið
mikill tími í þessar pælingar, sérstaklega ef
maður lætur hugmyndaflugið og lystina ráða
för. Það getur orðið ákveðin nautn að hlakka
til og fá bragð í munninn af mat sem maður
á eftir að elda, velta vöngum yfir hráefninu,
öllum möguleikum samsetninga og meðlæt-
is. Endalaus sæla kynnu sumir að segja, aðrir
myndu kalla það tímaþjóf. Sumir eru svo það
heppnir að geta sest að borðinu og einhver
annar hefur tekið þetta að sér fyrir þá. Auð-
vitað geta allir eldað, það er spurning um að
sýna því áhuga, í það minnsta að hafa áhuga
á því hvað maður setur ofan í sig. Sérstaklega
ef horft er til heilsu og lífsstíls almennt þá fer
þetta að skipta verulegu máli.
Bragðskynið og truflanir
Það eru til ýmsar rannsóknir um það hversu
miklum tíma við eyðum í þessar hugsanir, en
svo virðist sem það sé allt frá hálftíma og upp
í tvær klukkustundir á dag sem er býsna mik-
ið ef það er talið saman. Þá er hér verið að
tala um þá sem eru ekki með neina sjúklega
tengingu við mat og matarinntöku samanber
átraskanir eða kaloríuteljara. Bragðlaukarnir
á tungunni og nefið auk augnanna eru þau
skynfæri sem við notum mest til að ákveða
hvaða mat okkur líkar við, það er einstak-
lingsbundið og hver og einn nemur bragð
á ákveðinn máta og líklega enginn alveg
eins. Það má þó segja að það séu ákveðnar
tegundir sem við þekkjum samanber súrt,
sætt, beiskt, salt og svo umami sem kemur
frá Japan og þýðir bragðmikið. Flestir hafa
þúsundir bragðlauka sem spila saman, en
aðrir hafa mun fleiri og hafa þannig eigin-
leika sem geta gagnast þeim verulega í mat-
argerð, vínsmökkun og svo framvegis. Allt
getur þetta bilað og í grunninn mætti segja
að hlutverk bragðskyns sé að geta greint
á milli skemmds matar og heilsuspillandi
sem er býsna mikilvægt. Ýmislegt getur haft
neikvæð áhrif á bragðskyn, ber þar fyrst að
nefna reykingar, en tóbaksnotkun í nefi og
munni getur líka haft skemmandi áhrif.
Tannskemmdir, léleg tannhirða og bólgur
eru alræmdar ástæður truflana. Sýkingar
í munnholi, eyrum og kinnholum, ofnæm-
iskvef, aukaverkanir af lyfjanotkun, áverkar
bæði í munni en einnig á taugum og heila
geta breytt bragðskyni. Það getur verið flók-
ið að átta sig á stundum og þá geta truflan-
irnar verið tímabundnar eða varanlegar.
Þjálfun og matarvenjur
Það er líka hægt að æfa bragðlaukana, venja
þá við, jafnvel breyta því sem var vont í eitt-
hvað gómsætt með tímanum. Frægasta dæm-
ið eru líklega ólífur og máltækið að maður
eigi eftir að þroskast líki manni þær ekki
frá upphafi. En þjálfun með þessum hætti
felst í því að vera óhræddur við að smakka
og taka afstöðu til bragðsins, lyktarinnar og
áferðarinnar sem þú finnur. Sem betur fer
erum við ekki öll eins og því er matur jafn
fjölbreytt og vinsælt viðfangsefni og raun ber
vitni. Lykilatriðið er að njóta þess að borða,
gefa sér tíma og vera meðvitaður um það
hvað maður lætur ofan í sig, það sem er gott
getur nefnilega líka verið hollt. Ef þú horfir á
mat eingöngu sem eldsneyti, treður honum í
hausinn á þér og skeytir engu um það hvern-
ig hann er samsettur eða búinn til, þá ertu
að vanvirða líkama þinn og það sem þér var
gefið. Þú ferð einnig á mis við þau jákvæðu
áhrif á líkama og sálarlíf sem góður matur og
drykkur getur gefið. Ekki gera málamiðlanir,
maturinn skiptir máli!
Skiptir maturinn máli?
PISTILL
Teitur
Guðmundsson
læknir
Unnið í samstarfi við Doktor.is.
Ýmislegt
getur haft
neikvæð
áhrif á
bragðskyn,
ber þar fyrst
að nefna
reykingar,
en tóbaks-
notkun í nefi
og munni
getur líka
haft skemm-
andi áhrif.
Breyta lyf bragðskyninu?
Lyf geta haft áhrif á bragðskyn, sum meira en önnur.
Eftirfarandi lyfjaflokkar geta valdið bragðskynstruflunum:
n Sýklalyf
n Flogaveikilyf
n Þunglyndislyf
n Kólesteróllækkandi lyf
n Ofnæmislyf
n Háþrýstilyf
n Bólgueyðandi lyf
n Geðrofslyf
n Krabbameinslyf
n Parkinsonlyf
n Vöðvaslakandi lyf
Er allt stíflað?
Í andlitsbeinum mannsins eru fjögur
pör af holum sem kallast skútar og
sýking í þeim því skútabólga eða
kinnholubólga. Við sýkingu þrengjast
frárennslisgöng frá kinnholum til
nefsins. Einkennin eru verkir í kinn-
um, bak við augu, enni og stundum í
hnakka. Kvillinn er algengur hjá eldri
börnum og fullorðnum. Meðferðin
felur í sér að losa um rennslið frá
lokaða holrúminu.
Hvað er til ráða?
n Rétt er að forðast líkamlega
áreynslu.
n Rétt er að forðast mikinn hita
og kulda því hitabreytingar auka á
verkina.
n Gott er að anda að sér gufu þar
sem raki eykur á rennslið.
n Gott er að drekka mikinn vökva
þannig að líkaminn sé vel birgur, það
þynnir einnig slímið.
n Gott er að hafa hátt undir höfði
við svefn.
n Til eru lyf sem draga saman æðar í
slímhúð nefsins.
n Sýklalyf eru notuð í erfiðum til-
fellum þar sem hiti fylgir.
n Við krónískum kinnholubólgurm
getur læknir þurft að blása og skola
út úr holunum með þar til gerðu tæki.
Hvað á að forðast fyrir svefninn?
Mataræði og svefn tengjast mjög sterkum böndum og er því mikilvægt að huga að
mataræðinu ef bæta á svefninn. Sömuleiðis getur bættur svefn hjálpað þér við að bæta
mataræðið. Sum atriði eru augljós en það er margt sem getur haft áhrif á svefn þinn:
1 Koffein: Ef að þú átt erfitt með svefn er gott að draga úr inntöku koffeinríkra drykkja, s.s. kaffi, kóladrykkjum og orkudrykkjum upp
úr hádegi því það tekur líkamann 8-12 tíma að skola út áhrifum þeirra.
2 Sykrað ruslfæði: Gosdrykkir og nammi getur skotið upp blóðsykrinum. Það getur verið einfalt að sofna í sykurfallinu en
síðar um nóttina þegar blóðsykurinn nær lágmarki getur það raskað
svefnferlinu og vakið þig.
3 Unnar kjötvörur og þroskaðir ostar: Þessi matvæli innihalda amínósýruna tyramine sem losar örvandi boðefni og raskar
blóðþrýstingsstjórn okkar. Mikið kryddaður matur getur einnig verið
örvandi og raskað hitastýringu líkamans. Þessa fæðu ætti því að
forðast á kvöldin.
4 Þungar máltíðir: Bakflæði er algeng orsök röskunar á svefni og er mikilvægt fyrir þá sem hafa einkenni að huga að mataræðinu
fyrir svefninn. Þungar máltíðir fyrir svefn, brasaður skyndibiti, sítrus-
ávextir, kaffi og gos eru því á bannlista. Trefjaríkur matur er lykilatriði
og hnetusmjör getur verið hjálplegt kvöldsnarl.
5 Áfengi: Sumir fá sér einn áfengan drykk fyrir svefninn, það gæti þó verið meira til ógagns. Þó svo að áfengið sé slævandi þá eru
áhrifin skammvinn. Áfengið raskar svefnferlinu og minnkar endurnær-
andi djúpsvefn og eykur líkur á að þú vaknir of snemma og óendur-
nærð(ur).
Næringarefnum bætt í matvæli
Öll þurfum við nauðsynleg næringarefni
til að halda heilsu. Hollt, fjölbreytt fæði
getur veitt okkur öll þessi efni, þó með
fáeinum mikilvægum undantekningum og
þá sérstaklega D-vítamín sem ekki fæst
í nægjanlegu magni úr algengu fæði. En
verði fæðið of fábreytt eða lítilfjörlegt
verða vítamín og steinefni oft af skornum
skammti. Ákveðnir hópar, ekki síst
aldraðir, eru líklegri en aðrir til að fá ófull-
nægjandi næringu. Ein leið til að tryggja
sem flestum bætiefnaríkt fæði og koma
í veg fyrir skort er að bæta einstökum
efnum í matvæli.
Bætiefni sett í matvæli til að bæta
lýðheilsu
Dæmi eru um að íblöndun einstakra efna
í ákveðin matvæli sé lögbundin eða að
reglugerðarákvæði hvetji til íblöndunar í
því skyni að bæta heilsu almennings eða
hópa fólks.
Dæmi um slíka íblöndun eru:
n D-vítamín
í mjólk víða á
norðurhveli.
n Joð í salt víða
um heim þar sem
joðskortur er
landlægur.
n Járn og B-vít-
amín í mjöl.
Til að íblöndun bætiefna virki sem lýðheilsuaðgerð er mikilvægt að matvaran sem um
ræðir sé vandlega valin og nái til alls þorra markhópsins. Íblöndun efna í mörg eða margs
konar matvæli á markaði er ekki æskileg þar sem það eykur líkur á að fólk fái það mikið af
einstökum næringarefnum að það skaði heilsuna.
Helgin 4.-6. desember 201574