Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 77

Fréttatíminn - 04.12.2015, Page 77
C aralluma er 100% náttúru-legur kaktus sem aðstoðar við þyngdarstjórnun, eykur fitubrennslu og hamlar fitumynd- un. Caralluma kemur jafnvægi á svengdarhormónið „Ghrelin,“ dreg- ur úr sykurþörf, narti milli mála og löngun í óhollustu. Caralluma hent- ar þeim sem vilja létta sig, auka fitu- brennslu, ná stjórn á mataræðinu, losna við sykurlöngun og ná aukn- um árangri í líkamsræktinni. Betri árangur með Caralluma BALSAM KYNNIR: Caralluma Fimbriata frá Natural Health Labs. Caralluma kemur jafnvægi á svengdarhormónið „Ghrelin“ sem er oft í of miklu magni í líkamanum og kallar á ofát, sætuþörf og löngun í óhollustu. Rósa Björg Guðlaugsdóttir, Íslands- meistari í Fitness, fann fyrir aukinni orku eftir að hún byrjaði að nota Caralluma, auk þess sem henni gekk betur að ná mark- miðum sínum. PreCold® - Lausn gegn kvefi Vistor kynnir: PreCold munn- úði dregur úr líkum á kvefi og styttir tíma kvefeinkenna ef það er notað frá upphafi kvef- einkenna. Pre- Cold inniheldur virk náttúruleg sjávarensím. S öngkonan og tónlistarkenn-arinn Guðrún Árný Karls-dóttir mælir með Pre- Cold og segir það frábært fyrir söngvara og aðra sem þurfa að koma fram og beita röddinni að það sé loks komin vara sem geti fyrirbyggt og dregið úr líkum á kvefi. „Einnig dreg- ur það verulega úr kvíða og áhyggjum á veturna þegar umgangspestir og kvef eru allt um kring en það er jú eitt það versta sem getur komið fyrir söngvara sem búinn er að bóka „gigg“ að fá kvef,“ segir Guðrún Árný. Auk þess hefur PreCold eng- in áhrif á röddina sjálfa. „Ég hafði mestar áhyggjur af því að PreCold myndi setjast í hálsinn og valda óþægindum en það voru óþarfa áhyggjur,“ segir Guðrún Árný, hin vin- sæla söngkona, alsæl með Pre- Cold. Hvað er PreCold? „PreCold er munnúði sem not- aður er gegn kvefi, til að draga úr einkennum kvefs og til að stytta tíma kvefeinkenna,“ segir Guðný Traustadóttir, markaðstengill hjá Vistor hf. PreCold myndar vernd- andi filmu á slímhúðinni í kokinu. Filman sem inniheldur virk nátt- úruleg sjávarensím dregur úr getu veiranna til að bindast við slímhúð- ina í kokinu og fyrirbyggir þannig kvef. PreCold minnkar líkurnar á að smitast af kvefi og styttir tíma veikindanna ef það er notað frá upp- hafi kvefeinkenna. PreCold munnúðinn: n Hentar fullorðnum og börnum frá 2 ára aldri n Hefur staðbundna verkun í hálsi n Er án sykurs og rot- varnarefna Hvernig á að nota PreCold? Beinið stútnum að kokinu og úðið tvisvar Við kvefeinkennum: Notið PreCold á 2-3 tíma fresti, u.þ.b. sex sinnum á dag þar til einkenni hverfa. Hafið samband við lækni ef kvefeinkenni vara lengur en í 10 daga. Fyrirbyggjandi við kvefi: Notið tvo úðaskammta þrisvar sinnum á dag, þó ekki lengur en 30 daga í senn. Fyrirbyggjandi notkun Að sögn Guðnýjar er hægt að nota PreCold fyrirbyggjandi ef aukin hætta er á kvefsmiti, t.d. ef þú ert innan um fólk með kvef eða ert að fara í flug. Ef nota á PreCold fyrir- byggjandi er úðinn notaður þrisvar sinnum á dag. PreCold er CE merkt vara skráð sem lækningatæki í flokki I. Zymetech, framleiðandi PreCold, er íslenskt líftæknifyrir- tæki sem er leiðandi í heiminum í notkun sjávarensíma og sem sér- hæfir sig í rannsóknum og þróun á vörum sem innihalda ensím, Pen- zyme®, úr Norður-Atlantshafs þorski. PreCold er íslenskt hugvit og íslensk framleiðsla. PreCold fæst í öllum apótekum Nánari upplýsing- ar um PreCold má nálgast á www. precold.is og www.facebook.com/ precold.is. Unnið í samstarfi við Vistor Í Klínískri rannsókn á PreCold blöndunni sem var framkvæmd á Skåne Háskóla- sjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð fækkaði veirum í koki um 99% og kvefdögum fækkaði að meðaltali um helming í samanburði við lyfleysu. Söngkonan Guðrún Árný mælir með PreCold og segir það frábært fyrir söngvara og aðra sem þurfa að koma fram og beita röddinni. „Einnig dregur það verulega úr kvíða og áhyggjum á veturna þegar umgangspestir og kvef eru allt um kring.“ Aukin orka Rósa Björg Guðlaugsdóttir er 44 ára Kópavogsbúi, hárgreiðslu- meistari og förðunarfræðingur, en íþróttir hafa einnig verið stór hluti af lífi hennar. „Ég hef alla ævi verið íþróttamanneskja og stundaði knatt- spyrnu til 20 ára aldurs, en þá tóku við lyftingar og þrektímar.“ Rósa Björg er einnig menntaður einka- þjálfari. Hún hefur hins vegar þurft að glíma við stoðkerfisvandamál. „Þegar þau komu upp byrjaði ég að lyfta af meiri áhuga. Ég er mik- il keppnismanneskja og það er lík- lega ástæðan fyrir því að ég byrjaði í fitness. Í því get ég lyft og æft með meiðslin mín í huga.“ Rósa er Ís- landsmeistari í fitness í flokki 35 ára og eldri. Hún lauk svo keppnisárinu með því að enda í öðru sæti á bikar- móti sem fram fór í nóvember. Rósa Björg notar Caralluma til að fá aukna orku. „Caralluma hefur bjargað mér síðastliðið hálfa árið. Ég var orðin þreytt eftir sumarið, var að jafna mig eftir slys og það voru miklar breytingar í gangi hjá mér. Eftir að ég prófaði Caralluma fann ég fyrir aukinni orku yfir daginn.“ Gengur betur að ná settum markmiðum Með Caralluma átti Rósa Björg auðveldara með að ná markmiðum sínum. „Ég fann að undirbúningur fyrir bikarmótið var auðveldari en áður, ég þreyttist minna og fitu- brennslan var mun meiri en áður.“ Auk þess fann Rósa Björg minna fyrir svengd. „Ég fann að ég var ekki eins svöng eins og ég hef átt til á kvöldin en ég tengi það við þessa auknu brennslu sem hélt mér gangandi.“ Rósa Björg mælir með Caralluma fyrir þá sem þarfnast aukinnar orku yfir daginn. „Þessi vara breytir fituforðanum okkar hraðar í orku og heldur blóðsykr- inum jafnari yfir daginn. Þess vegna erum við orkumeiri, þurfum minna að borða á kvöldin og höfum betri stjórn á mataræðinu.“ Caralluma er fáanlegt í öllum helstu apótekum landsins, Heilsuhúsinu, Hagkaup, Lifandi markaði, Fjarðarkaupum, Heilsuveri, Heilsuhorninu Blóma- vali, Orkusetrinu, Líkami og lífs- tíll.is, Systrasel, Heilsulausn.is og á Heimkaup.is. Unnið í samstarfi við Balsam Hvað er Caralluma? Caralluma er safaríkur kaktus sem vex villtur í eyðimörkum Indlands og Afríku. Caralluma kemur jafnvægi á svengdar hormónið „Ghrelin“ sem getur kallar á ofát, sætuþörf og löngun í óhollustu. Rann- sóknir sýna að Caralluma hindrar fitumyndun með því að hamla virkni á ensíminu „enzyme citrate lyase“. Ensímið gegnir lykilhlutverki í myndun og uppbyggingu fitu- frumna. Caralluma hjálpar til við að ná stjórn á mataræð- inu, hindra fituuppbyggingu og auka brennslu. Virkni Caralluma: n Kemur jafnvægi á svengdarhormónið „Ghrelin“. n Eykur fitubrennslu og þyngdartap. n Seðjar hungur. n Eykur orku og úthald. n Hamlar fitumyndun í líkamanum. n Hjálpar til við að ná skjótari árangri samhliða líkamsrækt. Rósa Björg Guð- laugs- dóttir fann fyrir aukinni orku eftir að hún byrjaði að nota Ca- ralluma og henni gengur betur að ná mark- miðum sínum. Rósa Björg er Íslands- meistari í Fitness í flokki kvenna 35 ára og eldri. Mynd/Hari. Hvert glas inniheldur 60 grænmetis- hylki. Ráðlögð notkun: 1-2 hylki á dag. Helgin 4.-6. desember 2015 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.